Síða 1 af 1
Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Mán 24. Feb 2020 14:28
af Hjaltiatla
Var að prófa ákveðna stillingu í Developer mode á Android símanum mínum og hún gerir allar aðgerðir miklu hraðvirkari en default stillingar.
Unlock Developer Options:
Settings > About Phone > 7x tap on Build Number (nokkrum sinnum)
Decrease animation time:
Settings > System > Developer Options > Set all Options with Animation Scale to x0.5 or less
Síminn er margfalt hraðvirkari t.d að opna öpp og framkvæma flest allar aðgerðir

Re: Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Mán 24. Feb 2020 15:21
af brynjarbergs
Ég fíla þetta! Finnst síminn vera meira responsive
Er með Note 9.
Re: Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Mán 24. Feb 2020 16:40
af peturthorra
Áhugavert, ég er ekki frá því að þetta skilaði sér í meira "smooth-ness"
Re: Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Mán 24. Feb 2020 17:59
af kizi86
hef gert þetta frá því fékk minn fyrsta android síma <3
Re: Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Þri 25. Feb 2020 01:14
af Gassi
Vó, gerði þetta og þvílíkur munur!
Re: Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Þri 25. Feb 2020 08:58
af Sporður
Hjaltiatla er nýi uppáhaldsvaktarinn minn.
Re: Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Þri 25. Feb 2020 09:18
af Hjaltiatla
Maður var orðinn frekar þreyttur á epla fólkinu þegar það sagði Android vera hægvirkt. Þetta hjálpar til

Re: Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Þri 25. Feb 2020 09:44
af Storm
well I'll be damned..
Re: Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Mið 26. Feb 2020 22:25
af netkaffi
Er með LG K20 sem er 16.000 kr sími hjá Nova.is, hann virkaði ultra-smooth fyrst en svo hægðist alltaf meira og meira á honum fljótt. Þá gerði ég reset, en svo byrjaði ferlið aftur alltaf hægari og hægari upp að vissi marki svo ég fór að nota hann bara sem æfingu fyrir þolinmæðina frekar en að vera pirraður. En heyrðu, ég setti öll animations á off eftir þínum ráðum. Hann er orðinn eins og þegar ég notaði hann fyrst ef ekki hraðari! Var búinn að furða mig á þessu fyrirbæri með mörgum Android símum í nokkur ár. Jafnvel dýrasta símanum á sínum tíma Note8, fannst hann hægjast ööörlítið með tímanum. Þetta var ekkert smá infuriating að þurfa bíða alltaf örlítið lengur og lengur þegar maður var að skipa á milli forrita. Þetta er mega plús. Takk maður, bjargaðir öllu.
Re: Tip: Hraðvirkari Android sími
Sent: Fim 27. Feb 2020 08:57
af Hjaltiatla
netkaffi skrifaði:Er með LG K20 sem er 16.000 kr sími hjá Nova.is, hann virkaði ultra-smooth fyrst en svo hægðist alltaf meira og meira á honum fljótt. Þá gerði ég reset, en svo byrjaði ferlið aftur alltaf hægari og hægari upp að vissi marki svo ég fór að nota hann bara sem æfingu fyrir þolinmæðina frekar en að vera pirraður. En heyrðu, ég setti öll animations á off eftir þínum ráðum. Hann er orðinn eins og þegar ég notaði hann fyrst ef ekki hraðari! Var búinn að furða mig á þessu fyrirbæri með mörgum Android símum í nokkur ár. Jafnvel dýrasta símanum á sínum tíma Note8, fannst hann hægjast ööörlítið með tímanum. Þetta var ekkert smá infuriating að þurfa bíða alltaf örlítið lengur og lengur þegar maður var að skipa á milli forrita. Þetta er mega plús. Takk maður, bjargaðir öllu.
Gott að vita hvernig upplifunin er á ódýrari símum, sjálfur er ég að nota nokia 7 plus og hann er Mjög hraður eftir að ég gerði þessar breytingar.
Held að einu rökin fyrir því að versla 100.000 kr + síma sé myndavélin.