Síða 1 af 1
Kaup á multimeter
Sent: Fim 20. Feb 2020 09:29
af B0b4F3tt
Góðan daginn kæru vaktarar
Ég er að spá í því að kaupa mér multimeter til þess að mæla hvort að CR2032 rafhlaða sé orðin tóm eða ekki. Svo væri bara fínt að eiga svona upp á fikt í framtíðinni.
Því spyr ég ykkur, er eitthvað sérstakt sem maður þarf að hafa í huga við kaup á svona græju?
Var að spá í að kaupa þessa græju hér:
https://sindri.is/digital-multimeter-st ... tht0-77364
Kv. Elvar
Re: Kaup á multimeter
Sent: Fim 20. Feb 2020 09:39
af Njall_L
Það er fínt að horfa á að mælirinn geti mælt eftirfarandi ef þig langar að fikta eitthvað í framtíðinni
- AC og DC spenna með mælisvið upp í 300V að lágmarki
- Viðnámsmæling með mælisvið 0 - 20MΩ að lágmarki
- Díóðumæling
- Hitastig og þéttamæling er kostur en ekki nauðsynlegt.
Sjálfur hef ég ekki sérstaka reynslu af Stanley mælum, var reyndar með aðra týpu en þú linkar á. Í svona ódýrari flokki er ég persónulega mjög hrifinn af Extech sem fást hjá Fálkanum. Sem dæmi þessir tveir hérna að neðan. Þeir eru einfaldari í notkun þar sem þú stillir bara á hvaða gildi þú vilt mæla en þarft ekki að pæla í mælisviðinu eins og á Stanley mælinum, setur bara próbana á og mælir.
https://falkinn.is/vara/fjolsvidsmaelir-dm110/
https://falkinn.is/vara/fjolsvidsmaelar-mn36-og-mn36/
Re: Kaup á multimeter
Sent: Fim 20. Feb 2020 14:27
af Hauxon
Ísmar er líka að selja Extech mæla. Ég á EX350 sem dugar í margt en er ekki mjög dýr.
https://ismar.is/vorur/maelar/smamaelar ... ds-maelar/
Re: Kaup á multimeter
Sent: Fim 20. Feb 2020 21:29
af Hlynzi
Það er nú ein aðferð sem svínvirkar til að "mæla" minni rafhlöðurnar (allt að 9V kubbinum) og það er að setja tungubroddinn á milli pólanna, þá finnur maður fyrir straum (eða smá kítli ef hún er nánast tóm)
Bestu mælarnir eru frá Fluke og Kyoritsu, en þar sem þú ætlar að dunda þér í þessu sem hobbý dugir tiltölulega einfaldur og ódýr mælir, ég efast um að þessir professional mælar fari undir 10 þús. kr. Mér sýnist Njáll L hafa gert tæmandi lista nánast yfir hluti sem er gott að þessir mælar ráði við.
Re: Kaup á multimeter
Sent: Fim 20. Feb 2020 21:45
af Revenant
Ef þú ert bara að mæla rafhlöður og lága spennu þá dugar nánast hvaða fjölmælir sem er til (jafnvel 1000 kr) því upplausnin er ekki það krítísk.
Dýrari fjölmælar eru nákvæmari, með hærri upplausn, eru oft með autorange fídus (þ.e. þú þarft ekki að stilla hvaða svið þú ert að mæla á fyrir utan AC, DC eða viðnám) og eru með hærri CAT rating.
Re: Kaup á multimeter
Sent: Fim 20. Feb 2020 23:01
af Sporður
Re: Kaup á multimeter
Sent: Fös 21. Feb 2020 11:17
af jonsig
Ég á tvo fluke 87-V og 87-iii . Sé ekki eftir þeim kaupum
Og auðvitað fluke 289 getur loggað spennufallið á batterínu
Re: Kaup á multimeter
Sent: Fös 21. Feb 2020 11:22
af Tbot
Fjölsviðsmælir gefur þér spennuna á rafhlöðunni, þannig að þú getur áætlað hvort hún sé í lagi eða ekki.
Hins vegna gefur hann engar upplýsingar um rýmd hennar, þ.e. hversu lengi hún dugar. Það næst einungis með rafhlöðumælum sem eru með álagi eða herma það.
Íhlutir og miðbæjarradíó hafa verið að selja ódýra fjölsviðsmæla líka.
Re: Kaup á multimeter
Sent: Fös 21. Feb 2020 11:23
af Tbot
jonsig skrifaði:Ég á tvo fluke 87-V og 87-iii . Sé ekki eftir þeim kaupum
Og auðvitað fluke 289 getur loggað spennufallið á batterínu
Pínulítið "overkill" að fara í Fluke. Þar er ekki verið að tala um þúsundkalla, heldur tugi og hundruð þúsundkalla.
Re: Kaup á multimeter
Sent: Fös 21. Feb 2020 11:25
af jonsig
Tbot skrifaði:jonsig skrifaði:Ég á tvo fluke 87-V og 87-iii . Sé ekki eftir þeim kaupum
Og auðvitað fluke 289 getur loggað spennufallið á batterínu
Pínulítið "overkill" að fara í Fluke. Þar er ekki verið að tala um þúsundkalla, heldur tugi og hundruð þúsundkalla.
samt í fúlustu alvöru þá er til fluke 101 sem kostar lítið en allir slefa yfir. Líka skemmtilegra að eiga græju sem sýnir ekki allt önnur gildi eftir 2 ár.
Hann er á uþb 5500kr með tolli ef pantað frá s-kóreu á ebay