Síða 1 af 1

Komast yfir tónlist

Sent: Fös 14. Feb 2020 16:43
af Dúlli
Hvar er best að sækja tónlist ? Er oft að vinna á leiðinlegum svæðum þar sem útvarspsamband né netsamband næst.

Re: Komast yfir tónlist

Sent: Fös 14. Feb 2020 16:46
af Viggi
Þú getur downlodað á spotify á símann þinn

Re: Komast yfir tónlist

Sent: Fös 14. Feb 2020 16:46
af Dúlli
Viggi skrifaði:Þú getur downlodað á spotify á símann þinn
Ertu þá ekki kominn í það að greiða einhvað per lag ?

Re: Komast yfir tónlist

Sent: Fös 14. Feb 2020 16:55
af kiddi
Dúlli skrifaði: Ertu þá ekki kominn í það að greiða einhvað per lag ?
Engir bakreikningar, ef þú ert Premium notandi þá máttu sækja og geyma 10.000 lög á max 5 tækjum, eina er að þú þarft að logga þig inn á 30 daga fresti til að halda lögunum opnum.

Re: Komast yfir tónlist

Sent: Fös 14. Feb 2020 16:56
af Climbatiz
mæli með Soulseek, allt til þar

Re: Komast yfir tónlist

Sent: Fös 14. Feb 2020 17:04
af worghal
kiddi skrifaði:
Dúlli skrifaði: Ertu þá ekki kominn í það að greiða einhvað per lag ?
Engir bakreikningar, ef þú ert Premium notandi þá máttu sækja og geyma 10.000 lög á max 5 tækjum, eina er að þú þarft að logga þig inn á 30 daga fresti til að halda lögunum opnum.
þetta!
ég nota þetta óspart þegar kemur að því að fljúga og ég elska að þetta er hægt!
bara verst að það er ekki allt þarna inni :(

Re: Komast yfir tónlist

Sent: Lau 15. Feb 2020 00:37
af geiri42
Tékkaðu á vefsvæðinu http://genyoutube.com, en það myndar einskonar hjúp utan um efni af sjálfri YouTube-síðunni.

Ef þú finnur óhöfundarréttað lag í YouTube-myndskeiði, þá má nota þetta vefsvæði til að nálgast eintak á MP3-formi (ATH. virkar líka fyrir höfundarréttarvarið stöff... :megasmile ).

Best er að ekki þarf að stofna notanda, né setja upp viðbætur, öpp eða forrit! :happy

Það er annaðhvort hægt að leita beint gegnum GenYouTube.com-síðuna (https://genyoutube.com eða https://genyt.net), eða breyta "youtube.com/..."-slóð yfir í "genyoutube.com/...".

Undir myndskeiði á GenYouTube.com (neðan við "Sponsored Content"-renninginn) má sjá tengilinn "Generate Download Links". Eftir að smellt er á hann birtast tenglar á þau formött sem hægt er að vista dót á sem, s.s. MP4, 3GP og WEBM, en einnig oftast líka MP3. :8)

Re: Komast yfir tónlist

Sent: Lau 15. Feb 2020 09:29
af Hjaltiatla
Sjálfur er ég með Spotify Premium (þessa stundina).

Sýnist youtube-dl vera að skora hátt inná r/datahoarder:
https://www.reddit.com/r/DataHoarder/co ... s_here_is/