Síða 1 af 1

Kæling á i7 9700k

Sent: Mið 12. Feb 2020 10:44
af demaNtur
Sælir

Er að huga að uppfærslu á örgjörvakælingu, er með Noctua NH-L12S, sem er ekki að gera góða hluti, 91°c er hæðsta tala sem ég hef séð undir loadi í tölvuleikjum (enda kæling svosem ekki speccuð fyrir þennan örgjörva).

Hvað mynduð þið mæla með, langar ekki í custom vökvakælingu en þó opinn fyrir vatnskælingum.

Myndi segja 30.000.- væri max verð.

Re: Kæling á i7 9700k

Sent: Mið 12. Feb 2020 11:13
af Jón Ragnar
Ferðu ekki bara í þessa?

á að vera gucci

https://att.is/product/noctua-nh-d15-sv ... jorvavifta

Re: Kæling á i7 9700k

Sent: Mið 12. Feb 2020 11:47
af pepsico
Erum frekar hamlaðir loftkælingalega séð af kassanum ef þetta er tölvan í undirskriftinni. Held það séu engin stór stökk í boði í loftkælingum því hámarks hæðin er 140mm, en það er skv. einhverjum sölusíðum hægt að hafa 240mm AIO með báðum viftunum ef maður fjarlægir optical diskadrifið en bara einni ef það er ekki fjarlægt. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. H100x yrði fyrir valinu ef ég ætlaði að kaupa mér 240mm AIO, 22.000 hjá bæði Tölvutækni og Tölvulistanum.

Re: Kæling á i7 9700k

Sent: Mið 12. Feb 2020 14:33
af demaNtur
pepsico skrifaði:Erum frekar hamlaðir loftkælingalega séð af kassanum ef þetta er tölvan í undirskriftinni. Held það séu engin stór stökk í boði í loftkælingum því hámarks hæðin er 140mm, en það er skv. einhverjum sölusíðum hægt að hafa 240mm AIO með báðum viftunum ef maður fjarlægir optical diskadrifið en bara einni ef það er ekki fjarlægt. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. H100x yrði fyrir valinu ef ég ætlaði að kaupa mér 240mm AIO, 22.000 hjá bæði Tölvutækni og Tölvulistanum.
Er kominn með nýjan kassa, ekki jafn limitaður í kælingu lengur

Re: Kæling á i7 9700k

Sent: Mið 12. Feb 2020 16:04
af pepsico
Þá tæki ég NH-D15 ef kassinn leyfir. Kostar undir 14 þús. í @tt og Tölvulistanum ef maður tekur ekki svörtu útgáfuna.

Re: Kæling á i7 9700k

Sent: Mið 12. Feb 2020 16:58
af andriki
demaNtur skrifaði:
pepsico skrifaði:Erum frekar hamlaðir loftkælingalega séð af kassanum ef þetta er tölvan í undirskriftinni. Held það séu engin stór stökk í boði í loftkælingum því hámarks hæðin er 140mm, en það er skv. einhverjum sölusíðum hægt að hafa 240mm AIO með báðum viftunum ef maður fjarlægir optical diskadrifið en bara einni ef það er ekki fjarlægt. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. H100x yrði fyrir valinu ef ég ætlaði að kaupa mér 240mm AIO, 22.000 hjá bæði Tölvutækni og Tölvulistanum.
Er kominn með nýjan kassa, ekki jafn limitaður í kælingu lengur
hvaða kassa, ertu með núna ?

Re: Kæling á i7 9700k

Sent: Mið 12. Feb 2020 19:11
af andriki
er líka öruglegga sniðugt fyrir þig að prófa að undervolta, hvar er cpuinn að nota mikið voltage þegar þú ert í leikjum, stundum er auto voltage of aggresive og oft hægt að lækka það töluvert

Re: Kæling á i7 9700k

Sent: Mið 12. Feb 2020 21:48
af addon
andriki skrifaði:er líka öruglegga sniðugt fyrir þig að prófa að undervolta, hvar er cpuinn að nota mikið voltage þegar þú ert í leikjum, stundum er auto voltage of aggresive og oft hægt að lækka það töluvert
jebb og ef þú ert með eitthvað Auto Overclock setur það líka yfirleitt óþarflega hátt voltage... og þar með hita