Síða 1 af 1
Fartölva eða Turn ?
Sent: Mið 12. Feb 2020 08:39
af gufan
Daginn
Ég ætla gefa stráknum mínum leikjatölvu í fermingargjöf. Hvort mæli þið með fartölvu eða turn ? er mikill verðmunur á þessu ef þetta á að vera almenninlegt ?
Ég er mjög grænn í þessu svo allar ráðleggingar væru vel þegnar
Re: Fartölva eða Turn ?
Sent: Mið 12. Feb 2020 09:13
af Mossi__
Hvað hafðirðu hugsað þér með budget?
Þú getur fengið fartölvu sem dugar vel í leiki og vinnslu fyrir ca 150.000. En auðvitað færðu meira ef þú eyðir meira. Passa bara að þar sé skjákort en ekki bara skjástýring.
Ég geri allt mitt á 6-7 ára gamalli fartölvu sem dugar enn vel. Kostaði þá 190.000. Jújú, get ekki spilað í hæstu gæðum, en get spilað alla leiki á henni. En á þessu 6-7 árum þá hefur orðið svakalega mikil þróun á vélbúnaði.
Með turn. Þá er það nú bara þannig að turnar munu alltaf hafa möguleikann á meiri afkastagetu. Það er soldið svona, the sky is the limit.
Nú hreinlega veit ég ekki hvað er í tísku í dag hjá unglingum, turnar eða fartölvur. Spurning að fylgja því?
Turn gæti kveikt á vélbúnaðargrúskbakteríunni hjá kauða.. sem eg myndi kalla kost
En honum fylgir auðvitað að kaupa skjá og lyklaborð og mús og svona og það er hægt að nördast heilan helling yfir hvqð af því ert best og flottast.
Re: Fartölva eða Turn ?
Sent: Mið 12. Feb 2020 10:28
af Baldurmar
Turn alla leið, hvað fer í hann er alveg eftir budgetinu ykkar.
Hægt að smíða geggjaða leikjatölvu fyrir ~250.000 með öllu (skjá og lyklaborð, heyrnatól, mús) með slatta af RGB (fermingabarn

)
En það er alveg sveigjanleiki í boði í turnum +- hundrað þús jafnvel, hægt að kaupa ódýrara og krakkinn gæti þá t.d uppfært í framtíðinni fyrir eigin pening