Síða 1 af 1
Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 09:02
af Halli25
Er að borga alltof mikið fyrir farsímana hjá mér og konunni og af einhverjum ástæðum breyttist 100mb net sem var margfaldað með 10x = 1GB(díll ef maður var með allt hjá Vodafone) í 25GB áskrift á 4.490 úr 1.990 kr!!
fór svo að skoða
https://aurbjorg.is/#/farsimi
Tók eftir að 10GB sem nægir konunni alveg og gigantískt fyrir mig er á bara 1.990 hjá sambandinu sem er tengt Vodafone.
Eina sem stoppar mig er að fara úr áskrift og í frelsi og hef enga reynsla af sambandinu... einhverjar hryllingssögur eða góðar af þeim hjá ykkur?
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 09:17
af ZiRiuS
Ef þú ert með ótakmarkað net hjá Hringdu færðu ótakmörkuð símtöl og sms ásamt 100gb farsímanet á 1990 kr.
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 09:22
af Halli25
ZiRiuS skrifaði:Ef þú ert með ótakmarkað net hjá Hringdu færðu ótakmörkuð símtöl og sms ásamt 100gb farsímanet á 1990 kr.
Vinnan borgar netið sem er hjá Vodafone svo get ekki farið í þennan pakka
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 09:27
af Njall_L
Sambandið er bara hipp og kúl dótturfélag Vodafone og ef þú ferð í áskrift hjá þeim gerir þú viðskiptasamning við Vodafone/Sýn. Ég hef ekki prófað þá persónulega en hef ekki heyrt neinar hryllingssögur heldur, myndi halda að þetta sé bara ágætis valkostur ef verðin eru góð.
Frétt af Stundinni:
https://stundin.is/grein/9539/
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 09:52
af Hjaltiatla
Get allavegana sagt að ég var í áskrift hjá Vodafone og færði mig yfir í Frelsi (sami pakki fyrir 1000 kr minna á mánuði) og það var ekkert vandamál Það er meira segja hægt að skrá sig í sjálfvirka áfyllingu ef það hentar betur en að gera þetta handvirkt.
Er í dag hjá Nova og er að prófa þjónustuna hjá þeim, fæ frítt að hringja og senda sms (þarf að fylla á frelsið á þriggja mánaða fresti til að halda þjónustu lifandi). Ætla að reyna að komast upp með að nota eingöngu Wi-fi eins mikið og ég get til að borga ekki of mikið fyrir þjónustur sem ég þarf ekki á að halda.
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 13:25
af Lexxinn
Ég er búinn að vera hjá Sambandinu núna í 5 mánuði. Hefur gengið hnökralaust. Appið er þægilegt og hentugt að gagnamagnið safnist upp ef það er ekki notað. Á þessari stundu á ég akkurat inni 44gb - til að nota þau þarf ég þó að borga mánaðarlega, svo þegar ég virkilega þarf á 4g að halda mun þetta koma sér vel. Ég færði mig akkurat frá Nova til að spara þennan 12þ á ári + ég fæ meira gagnamagn erlendis fyrir 10gb í gegnum Sambandið heldur en hjá Nova.
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 14:27
af Fautinn
Er með netið hjá Hringdu 1 gíg. Oftast toppþjónusta - 3 gsm með 100 gíg og 1.990 þá fyrir hvern síma.
En eitt rugl hjá þeim: félagi minn fer með mini-spjaldtölvu út á land og ætlaði að fa sér simkort í það og nota í leiðinni sem vinnusíma, en þá var sagt að það væri ekki hægt, væri orðið ferðanet
samt sem er sama og gsm er hvort eð er. Myndi kosta 2.990 að fá simkort í þetta.
Þannig að viðkomandi kom með gsm síma til Hringdu fékk kort í hann 1990 kr og tók svo kortið úr og setti í spjaldtölvuna. Skil ekki alveg þessa hugsun hjá Hringdu.
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 16:50
af beatmaster
Fautinn skrifaði:Er með netið hjá Hringdu 1 gíg. Oftast toppþjónusta - 3 gsm með 100 gíg og 1.990 þá fyrir hvern síma.
En eitt rugl hjá þeim: félagi minn fer með mini-spjaldtölvu út á land og ætlaði að fa sér simkort í það og nota í leiðinni sem vinnusíma, en þá var sagt að það væri ekki hægt, væri orðið ferðanet
samt sem er sama og gsm er hvort eð er. Myndi kosta 2.990 að fá simkort í þetta.
Þannig að viðkomandi kom með gsm síma til Hringdu fékk kort í hann 1990 kr og tók svo kortið úr og setti í spjaldtölvuna. Skil ekki alveg þessa hugsun hjá Hringdu.
Ég fer í sumarbústað kanski tvisvar til þrisvar á ári og fer þá og skrái nýtt kort á mig til að nota í 4G Router og segi svo upp áskriftinni samdægurs, hefur aldrei verið vesen og ætti ekki að vera vesen.
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 18:51
af jonsig
Lexxinn skrifaði:Ég er búinn að vera hjá Sambandinu núna í 5 mánuði. Hefur gengið hnökralaust. Appið er þægilegt og hentugt að gagnamagnið safnist upp ef það er ekki notað. Á þessari stundu á ég akkurat inni 44gb - til að nota þau þarf ég þó að borga mánaðarlega, svo þegar ég virkilega þarf á 4g að halda mun þetta koma sér vel. Ég færði mig akkurat frá Nova til að spara þennan 12þ á ári + ég fæ meira gagnamagn erlendis fyrir 10gb í gegnum Sambandið heldur en hjá Nova.
Ég skil ekki hvernig fólk nennir svona "safnast upp" rugli, í stað þess að vera bara hjá hringdu og hafa 100gb mánaðarlega. Spurning um að semja við vinnuveitandan um að skaffa þér eitthvað annað í staðinn og segja upp vúdafún.
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 21:19
af Lexxinn
jonsig skrifaði:Lexxinn skrifaði:Ég er búinn að vera hjá Sambandinu núna í 5 mánuði. Hefur gengið hnökralaust. Appið er þægilegt og hentugt að gagnamagnið safnist upp ef það er ekki notað. Á þessari stundu á ég akkurat inni 44gb - til að nota þau þarf ég þó að borga mánaðarlega, svo þegar ég virkilega þarf á 4g að halda mun þetta koma sér vel. Ég færði mig akkurat frá Nova til að spara þennan 12þ á ári + ég fæ meira gagnamagn erlendis fyrir 10gb í gegnum Sambandið heldur en hjá Nova.
Ég skil ekki hvernig fólk nennir svona "safnast upp" rugli, í stað þess að vera bara hjá hringdu og hafa 100gb mánaðarlega. Spurning um að semja við vinnuveitandan um að skaffa þér eitthvað annað í staðinn og segja upp vúdafún.
Þú hefur ekki rétta sín á meirihluta vinnuveitenda á Íslandi. Burt séð frá því er ég í fullu námi erlendis sem ég á ennþá 2,5 ár eftir og því ekki í neinni fastri vinnu.
Re: Sambandið reynslusögur
Sent: Mið 05. Feb 2020 21:33
af jonsig
Þetta var ekki beint að þér neitt persónulega, ég einfaldlega skil ekki hvað fær fólk til að vera með dýrari tengingar með takmarkað gagnamagn hérna í den en hafa valkost að ótakmörkuðu. Síðan þetta uppsafnaða gagnamagn sem hljómar eins og eitthvað 10árum á eftir hinum norðurlöndunum