Síða 1 af 1
Speedtest.net - Ísland ekki á listanum?
Sent: Mið 22. Jan 2020 00:54
af alexanderlyd
Tók eftir því að ísland er ekki á Speedtest.net listanum(
https://www.speedtest.net/global-index) Er einhver ástæða fyrir því ? Mér finnst það skrítið vegna þess að önnur fámanna lönd eru þar t.d. Lichtenstein og Malta, er speedtest.net ekki lángmest notað hér af þessum hraðaprófum? Singapore í fyrsta sæti með 200Mb/s, en ég held að ísland myndi vera í allavegana topp 5, ef ekki fyrst - flestir komnir með 1000Mb/s ljósleiðara þessa dagana..
Re: Speedtest.net - Ísland ekki á listanum?
Sent: Mið 22. Jan 2020 01:20
af Manager1
Það er enginn úti á landi kominn með 1000mb/s ljósleiðara, nema kannski Akureyri?
Re: Speedtest.net - Ísland ekki á listanum?
Sent: Mið 22. Jan 2020 01:41
af kizi86
Re: Speedtest.net - Ísland ekki á listanum?
Sent: Mið 22. Jan 2020 01:43
af pepsico
Við verðum líklega komin þarna inn um miðjan febrúar vegna breytingar: Results are updated mid-month for the previous month. January 1, 2019 onward countries must have at least 300 unique user results for mobile or fixed broadband to be ranked in either category. Prior to January 1, 2019 we required 670 unique user results for mobile and 3333 for fixed broadband.
Re: Speedtest.net - Ísland ekki á listanum?
Sent: Mið 22. Jan 2020 02:02
af kizi86
pepsico skrifaði:Við verðum líklega komin þarna inn um miðjan febrúar vegna breytingar: Results are updated mid-month for the previous month. January 1, 2019 onward countries must have at least 300 unique user results for mobile or fixed broadband to be ranked in either category. Prior to January 1, 2019 we required 670 unique user results for mobile and 3333 for fixed broadband.
2019 er keyword þarna, síðasta árið ættu allaveganna að vera fleiri en 300 test per mánuð frá okkur íslendingum...
Re: Speedtest.net - Ísland ekki á listanum?
Sent: Mið 22. Jan 2020 04:03
af pepsico
Góður punktur. Ég var að skoða listana 2017-2019 m. Wayback Machine og við hurfum út af listanum án útskýringa í mars 2019 þrátt fyrir að hafa verið í 1.-3. sæti í bæði Mobile og Fixed Broadband í tvö ár fyrir það. Mig grunar að við séum ennþá í fyrsta sæti í Mobile og í 1. eða 2. í Fixed Broadband þó það sé ekki sýnt.
Re: Speedtest.net - Ísland ekki á listanum?
Sent: Mið 22. Jan 2020 13:04
af alexanderlyd
Manager1 skrifaði:Það er enginn úti á landi kominn með 1000mb/s ljósleiðara, nema kannski Akureyri?
GPON ljósleiðara kerfi Mílu er til staðar á mörgum stöðum úti á landi, og fer fjölgandi - markmið ríkisstjórninar er að ná 99.99% útbreiðslu fyrir 2021 og eru að veita styrki til þess að tengja nær alla sveitabæja með 1Gíg. Míla eru búnir hækka hraðan upp í 500/1000Mb/s á þeirra kerfi(til að keppa við GR) sjáðu:
https://www.mila.is/um-milu/frettasafn/ ... idara-milu
Samt sem áður væri meiginhluti speedtest.net virknin á höfuðborgarsvæðinu, eða örruglega helmingur af hraðaprófonum væri frá Vaktarum