Ég myndi ekki kaupa Edgerouter nema þú sért mjög flinkur að stilla router alveg frá grunni
Held að það sé mjög svipað að setja upp Edgerouter og venjulegan Asus eða TP-Link router, Nota bara Setup wizardin
Heldur þú það? Ég veit að þessi router er vesen. Ég er ágætlega techsavvy og ég var í heila kvöldstund að setja upp routerinn með hjálp frá vini. Tala svo ekki um fínpússeringar eins og dns stillingar og svoleiðis sem þú getur dundað þér við, sem betur fer eru port forwarding stillingarnar mjög straight forward.
Svo eins og ég segi, ef þú ert ekki tilbúinn í vesen að þá myndi ég finna mér eitthvað einfaldara en Edgerouter.
configure
set system offload hwnat enable
commit
save
hvort sem þetta sé "True" gigabit er hægt að ræða um, en þetta ætti að gefa ásættanlegar tölur.
Re: Router kaup
Sent: Lau 28. Des 2019 13:12
af Hjaltiatla
Sjálfur myndi ég einfaldlega versla mér einhvern ódýran TP link með fínu Wifi t.d AC1750 og setja upp open-wrt/dd-wrt. Edit: tek reyndar eftir að open-wrt 5ghz er ekki í boði fyrir TP-link AC1750 , þannig að það er ekki góð hugmynd að fara í hann ef maður vill nota Open-Wrt.
Getur þá alltaf einfaldlega keypt þér Unifi Access punkt fyrir peninginn sem þú sparar þér frekar en a' að versla þér dýran router.