Síða 1 af 1
Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 00:52
af Glazier
Sælir félagar, long time no see!
Er nýlega byrjaður með rekstur sem fer fram á faceook, ég þarf að senda og móttaka talsvert af tölvupóstum tengdum rekstrinum og var að spá hvernig ég gæti stofnað mitt eigið netfang?
Ég spurði kunningja sem sagði að eina leiðin sem hann vissi um væri að vera með sitt eigið veffang og búa til lén í gegnum hýsingarfyrirtæki vefsíðunnar minnar.
Ég keypti lénið en ætla mér ekki að stofna heimasíðu strax heldur hafa reksturinn eingöngu á facebook til að byrja með, get ég eignast mitt eigið netfang öðruvísi?
Lénið mitt er
http://www.ljosameistarinn.is sem directar beint á facebook síðuna mína

Re: Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 04:51
af DJOli
Held að minnsta "hassle-ið" sé að kaupa office 365 áskrift ef þú ert þegar ekki með svoleiðis.
Skráir domainið þitt (ljosameistarinn.is) þar inn, og gefur kerfinu nokkra klukkutíma til að samstilla sig.
Í kjölfarið á o365 að sækja allann póst sem sendur er á @ljosameistarinn.is.
o365 Business Premium ($12,50, eins árs skuldbinding áskriftar, öll greidd í einu) virðist koma best út.
https://products.office.com/en-us/compa ... aprimaryr2
Re: Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 08:54
af Klemmi
Almennt séð þarftu að gera custom DNS færslu til að sýna fram á að þú stýrir viðeigandi léni.
Tiltölulega lítið mál að tengja við Gmail,en það kostar ca. $4 á mánuði. Ég hef verið að nota Zoho mail, það er $1 á mánuði, þykir það ekki síðra en gmail, en ég líka geri ekki miklar kröfur í þeim rekstri, þarf lítið að leita í gömlum samtölum og þess háttar, sem er líklega þar sem Gmail blómstrar

Re: Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 11:37
af Hjaltiatla
Tek eftir af þú ert að nota forwarding hjá ISNIC sem takmarkar möguleika með að stilla lénið þitt eftir þörfum.
Þarft að ákveða hvaða dns þjónustu þú vilt nýta þér t.d hjá 1984 eða cloudflare etc.til að geta sett inn mx færslur fyrir þá póstþjónustu sem þú ætlar að nota.
Re: Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 14:40
af rapport
Gerði þetta fyrir mig fyrir einhverju síðan, nota DNS þjónustu hjá 1984 frítt og fór eftir leiðbeiningum G-suit um samstillingu við URL, tók örstuttastund og hefur virkað perfect í nokkur ár.
Veit ekki hvort það sé eitthvað þægilegra en Office 365, en það er virkilega þægilegt að geta notað "gmail" login auðkenningaþjónustuna í alskonar öpp og síður með þessu póstfangi.
Re: Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 14:50
af Hjaltiatla
rapport skrifaði:Gerði þetta fyrir mig fyrir einhverju síðan, nota DNS þjónustu hjá 1984 frítt og fór eftir leiðbeiningum G-suit um samstillingu við URL, tók örstuttastund og hefur virkað perfect í nokkur ár.
Veit ekki hvort það sé eitthvað þægilegra en Office 365, en það er virkilega þægilegt að geta notað "gmail" login auðkenningaþjónustuna í alskonar öpp og síður með þessu póstfangi.
1984 er með ljómandi fína DNS þjónustu, cloudflare analytics dashboard fídusinn er einnig mjög þæginlegur t.d ef maður vill fá statistic á léninu Total Requests, Unique Visitors etc (án þess að spá í Google analytics). Hentar örugglega mjög vel ef hann er eingöngu að re-directa léninu á facebook.
Dæmi :

Re: Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 15:41
af gnarr
Route53 í AWS er sjúklega þægilegt og ódýrt. Mæli með því

Re: Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 16:17
af olihar
gnarr skrifaði:Route53 í AWS er sjúklega þægilegt og ódýrt. Mæli með því

Second that, og skella þér svo í G-Suite með emailið.
Re: Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 18:16
af Revenant
Ég hef verið að nota
FastMail fyrir mitt persónulega netfang fyrir $50 á ári.
Þeir bjóða líka upp á að hýsa DNS þjónustunna fyrir lénið sem þú ert með (þá stilla þeir allar nauðsynlegar A, MX og TXT færslur fyrir lénið).
Re: Að stofna sitt eigið netfang?
Sent: Þri 05. Nóv 2019 20:50
af nidur