Síða 1 af 1

fermingarvél , budget 160k

Sent: Mán 18. Apr 2005 23:15
af Major Bummer
bróðir að fermast. Budget er 160.000 ,
yrði aðalega notuð í leiki , þarf ekki hátalara , er að spá í 19" flatan
hverju mæliði með ?

Sent: Þri 19. Apr 2005 07:45
af kristjanm
Ég mæli með að þú sendir öllum tölvuverslununum tölvupóst og biður þá um að setja saman vél fyrir þig fyrir 160k.

Það er miklu sniðugra en að kaupa tilbúna Dell eða Medion eða svoleiðis vél.

Sent: Þri 19. Apr 2005 07:56
af gnarr
gameboy color...




er 160.000kr í tölvu ekki soldið overkill fyrir 13 ára krakka?

anyways...



ég myndi taka:

AMD64 3000+ 939. ~ 15.000

2x PC3200 Corsair XMS LL 512MB eða OCZ Platinum EL ~ 20.000

DFI Lanparty Ultra-D ~ 20.000

nVidia 6800GT PCIe ~ 50.000

Raptor 74GB ~ 17.000kr

200GB Seagate / Samsung / Maxtor ~ 10.000kr

Kassa með 400w+ aflgjafa ~ 10.000kr

19" Hansol True Flat / CTX Executive Line 1600*1200@75Hz ~ 16.000kr

Samtals: ~ 158.000kr

Sent: Þri 19. Apr 2005 10:19
af MuGGz
Ef að hann sé mikið á lönum og á ferðinni með tölvuna myndi ég taka

Shuttle XPC SN25P

Amd64 3200+ winchester

1024MB PC-3200 OCZ Performance Enhanced Latency Dual Channel

svo eins og gnarr segir

Raptor 74GB ~ 17.000kr

200GB Seagate / Samsung / Maxtor ~ 10.000kr

er svo ekki alveg viss hvaða skjákort ég myndi skella í þennan pakka, enn t.d. er GeForce 6600GT PCI-Express og mjög fínt budget kort ef hann vill eyða meira í góðan skjá.

það er komið 350w psu í nýju shuttle vélina þannig það ætti að vera auðveldara að nota GeForce kort í henni enn vélunum á undan þessari, þar sem þær eru með 240w og 250w psu :)

er ekki mikið í skjáum þannig cant help u there :wink:

Sent: Þri 19. Apr 2005 11:40
af ponzer

Sent: Þri 19. Apr 2005 12:21
af MuGGz
miklu frekar tæki ég nýju shuttle vélina með s939 örgjörva og pci-express ... :roll:

í staðin fyrir s754 og agp

Sent: Mið 20. Apr 2005 13:09
af wICE_man
Gefum okkur að bróðir þinn vilji topp tölvu, beint úr kassanum, þ.e. ætlar sér ekki að yfirklukka eða neitt slíkt. Þá eru þetta mínar ráleggingar:

Örgjörvi: Athlon64 3200+ (Winchester) - 16.990Kr án viftu - Hugver
Móðurborð: Abit AX8 - 12.490Kr - Hugver
Minni: 2X512MB PC-3200 MDT Twinpacks - 9.643Kr - Tölvuvirkni
Skjákort: Sparkle GeFORCE 6800GT 256MB - 37.193Kr - Tölvuvirkni
HDD (System): 74GB WD Raptor - 16.490Kr - Hugver
HDD (Gögn): 250GB Seagate Barracuda 7200.8 - 12.490Kr - Hugver
Kassi: Einhvern góðan og flottan - 10.000Kr - Hugver/Tölvuvirkni
DVD: NEC 16X DL DVD±RW Drive - 6.992Kr - Tölvuvirkni
Skjár: 17" Samsung 710V - 24.027Kr - Tölvuvirkni

Samtals: 146.315Kr

Restina má nota í hátalara mús og lyklaborð eftir smekk.

Þetta er held ég nokkuð góður pakki og þó hann sé með AGP kort þá mun vera hægt að fá AGP útgáfur af nýjustu kortunum eilítið dýrari næstu árin held ég. Annars er bara að selja tölvuna eftir X mörg ár og setja saman nýja þá, kannski verður hann orðinn vaktari þá :)

Sent: Fim 21. Apr 2005 15:36
af DoRi-
gnarr skrifaði:er 160.000kr í tölvu ekki soldið overkill fyrir 13 ára krakka?
ég keypti tölvu fyrir 160k m/ vsk þegar ég fermdist

Sent: Fim 21. Apr 2005 16:17
af fallen
Pabbi gaf mér tölvu fyrir 220k þegar ég fermdist >:\

Sent: Fim 21. Apr 2005 18:18
af wICE_man
Ofdekruðu krakkar :P

Sent: Fim 21. Apr 2005 19:26
af Snorrmund
ég keypti tölvu fyrir 139þús þegar ég fermdist :)

Sent: Fim 21. Apr 2005 21:14
af MuGGz
ég keypti mér nú bara snjóbretti þegar ég fermdist, og keypti ekki tölvu fyrr enn ég var orðin 16 ára :lol:

Sent: Fim 21. Apr 2005 23:26
af Snorrmund
MuGGz skrifaði:ég keypti mér nú bara snjóbretti þegar ég fermdist, og keypti ekki tölvu fyrr enn ég var orðin 16 ára :lol:
Eitthvað sem að ég hefði átt að gera frekar :D

Sent: Lau 23. Apr 2005 23:22
af Andri Fannar
HEHE, ég keypti mér tölvu í sumar, fermdist áðan :8) þessa vél í undirskrift, nema ég nenni ekki að breyta undirskriftinni :lol: 2.8 oc í 3.3,512mb ram,9600xt.

Sent: Sun 24. Apr 2005 08:44
af einarsig
ég keypti núna tölvu fyrir 30k þegar ég fermdist ... reyndar 12 ár síðan hehehe :D

Sent: Mið 27. Apr 2005 17:12
af Gestir
ég fermdist 1994 þannig að ..hehe

En þá fékk ég forláta Ambra Sprinta II sem var 486 Dx 33 sem var FÁRÁNLEGA HRÖÐ tölva at the time. hún var alveg með held ég 2mb minni og allt ..


hehe toppiði það ...

Sent: Mið 27. Apr 2005 18:19
af Icarus
Ég keypti mér ekki tölvu fyrr en í níunda eða tíunda bekk og sú vel kostaði um 30þúsund kjall...

900mhz amd duron
128MB SDRAM
eitthvað rusl msi móðurborð
skjákort innbyggt í móðurborðið
10mb netkort
hljóðkort innbyggt í móðurborðið
skjár sem pabbi stal úr vinunni
2þúsund króna mús úr BT


það var líka bara t3h laggmaster 3000 !