Síða 1 af 1
Eru epli dýrari á Íslandi
Sent: Lau 21. Sep 2019 10:47
af krissdadi
Sælir Vaktarar
Ég tók eftir því núna þegar iPhone 11 pro max er að koma út að hann kostar $1099 á apple.com
allt í góðu með það, hann reiknast á hérna heima um 200þ
https://elko.is/iphone-11-pro-max-64gb-space-grey
En það sem truflar mig er að Samsung Note 10+ kostar líka $1099
en hann kostar út úr búð 180þ
https://elko.is/samsung-galaxy-note10-svartur-n975
Veit einhver hvaða skýring er á þessu?
væri gaman að heyra hana
Góðar stundir
Re: Eru epli dýrari á Íslandi
Sent: Lau 21. Sep 2019 10:48
af Tiger
Elsta markaðsfyrirbæri veraldar.......framboð og efturspurn.
Re: Eru epli dýrari á Íslandi
Sent: Lau 21. Sep 2019 10:50
af ChopTheDoggie
Ég helt að þú værir að tala um venjuleg epli þegar ég sá titilinn..
En ég hélt að Apple væri alltaf langt dýrasta tækin hér á klakanum, þannig þetta meikar allt sjens í mínum auga

Re: Eru epli dýrari á Íslandi
Sent: Lau 21. Sep 2019 10:57
af krissdadi
Tiger skrifaði:Elsta markaðsfyrirbæri veraldar.......framboð og efturspurn.
Semsagt Íslenski umboðsaðilinn smyr vel á þetta á meðan þetta er nýtt og ferkst

Re: Eru epli dýrari á Íslandi
Sent: Lau 21. Sep 2019 10:58
af dori
$1099 er ríflega 170 þúsund komið heim með innflutnings gjöldum (en engum sendingarkostnaði).
Svo þarf einhverja álagningu (m.a. til að covera seinna árið í lögbundinni ábyrgð á íslenskri smásölu).
Ég held að stærsta ástæðan fyrir þessu sé betri heildsöluverð á Samsung vörum.
Re: Eru epli dýrari á Íslandi
Sent: Lau 21. Sep 2019 10:58
af krissdadi
ChopTheDoggie skrifaði:Ég helt að þú værir að tala um venjuleg epli þegar ég sá titilinn..
En ég hélt að Apple væri alltaf langt dýrasta tækin hér á klakanum, þannig þetta meikar allt sjens í mínum auga

Þessir símar eru jafn dýrir erlendis

Re: Eru epli dýrari á Íslandi
Sent: Lau 21. Sep 2019 10:59
af krissdadi
dori skrifaði:$1099 er ríflega 170 þúsund komið heim með innflutnings gjöldum (en engum sendingarkostnaði).
Svo þarf einhverja álagningu (m.a. til að covera seinna árið í lögbundinni ábyrgð á íslenskri smásölu).
Ég held að stærsta ástæðan fyrir þessu sé betri heildsöluverð á Samsung vörum.
Hljómar sennilega
Re: Eru epli dýrari á Íslandi
Sent: Lau 21. Sep 2019 13:02
af olihar
Munið að það á eftir að setja söluskatt ofan á öll uppgefin verð í USA, hann getur verið allt að 10%, reyndar nokkur ríki með 0%
dori skrifaði:$1099 er ríflega 170 þúsund komið heim með innflutnings gjöldum (en engum sendingarkostnaði).
Svo þarf einhverja álagningu (m.a. til að covera seinna árið í lögbundinni ábyrgð á íslenskri smásölu).
Ég held að stærsta ástæðan fyrir þessu sé betri heildsöluverð á Samsung vörum.
Þetta er nær 190þ án allra sendingakostnaða...
Að hann sé á 200þ er bara vel samkeppnishæft við USA.
Re: Eru epli dýrari á Íslandi
Sent: Lau 21. Sep 2019 21:16
af Sallarólegur
Þetta er oft svona með fyrstu eintökin, svo endar þetta yfirleitt nálægt
http://www.apple.dk verðinu.
Apple dollarinn hefur verið í kringum 200 kr. ISK í Evrópu.