Passar þessi í kassann? Hún er mitt fyrsta val fyrir 3900X.
(Relevant Linus)
Re: CPU kæling fyrir Ryzen 3900X
Sent: Fim 22. Ágú 2019 15:25
af B0b4F3tt
Dropi skrifaði:https://noctua.at/en/products/cpu-cooler-retail/nh-u12a
NH-U12A skilar sambærilegum afköstum og NH-D15 þrátt fyrir að vera minni. Hún slær sumar stórar AIO kælingar alveg útaf borðinu og hún er hljóðlátari.
Passar þessi í kassann? Hún er mitt fyrsta val fyrir 3900X.
(Relevant Linus)
Þessi rétt passar í kassann þar sem maximum cooler height er 160mm en þessi er 158mm
Re: CPU kæling fyrir Ryzen 3900X
Sent: Fim 22. Ágú 2019 15:28
af Dropi
B0b4F3tt skrifaði:Þessi rétt passar í kassann þar sem maximum cooler height er 160mm en þessi er 158mm
Þetta er ekki skali hún smellpassar þá!
Ég veit ekki hvað liggur fyrir mönnum þegar féið er fest í AIO. Það er ekkert vitlausara ef þú ert ekki stanslaust að overclocka og brasa í tölvunni því sumar endast ekki nema 2 ár áður en dælan fer að vera léleg og gefur sig jafnvel alveg.
Loftkæling er stórt ál og koparstykki og frá Noctua með 6 eða 7 ára ábyrgð, mín hefur gengið 24/7 síðan 2013 og farið úr Intel yfir í Ryzen með adapter kit.
Re: CPU kæling fyrir Ryzen 3900X
Sent: Fös 23. Ágú 2019 00:36
af odduro
Ég pantaði mér svona https://www.overclockers.co.uk/nzxt-kra ... 1b-nx.html og er mjög sáttur, para hana við amd ryzen 7 2700x og hitinn hefur verið í 55-60 í leikjaspilun, en aftur á móti á eftir að koma í ljós hversu lengi hún kemur til með að enda