Síða 1 af 1
Að hreinsa DVD diska.
Sent: Lau 09. Apr 2005 19:25
af Birkir
Þannig er mál með vexti að ég keypti mér DVD disk fyrir stuttu. Þegar ég loks tók umbúðirnar utan af honum þá kom í ljós að það var stór límklessa á disknum.
Nú spyr ég ykkur kæru vaktarar; Hvernig get ég náð þessu af án þess að skemma diskinn?
P.s. Það er ekki inni í myndinni að skila disknum þar sem hann var keyptur í Danmörku.
Sent: Lau 09. Apr 2005 19:35
af SolidFeather
Sandpappír ætti að virka
Sent: Lau 09. Apr 2005 19:53
af MezzUp
Er hún það stór/þétt að þú getir náð henni af í einu lagi eða?
Er hún ofaná eða undir disknum? Var diskurinn sem sagt í plasti þegar þú fékkst hann?
Sent: Lau 09. Apr 2005 19:55
af gnarr
ég myndi ekki halda að efni og vinna í að losa lím af DVD disk sé þess virði. þú getur fengið nýjann fyrir 100kall útí búð.
Sent: Lau 09. Apr 2005 21:39
af Birkir
gnarr skrifaði:ég myndi ekki halda að efni og vinna í að losa lím af DVD disk sé þess virði. þú getur fengið nýjann fyrir 100kall útí búð.
Nei? Þetta er ekki DVD-R
MezzUp skrifaði:Er hún það stór/þétt að þú getir náð henni af í einu lagi eða?
Er hún ofaná eða undir disknum? Var diskurinn sem sagt í plasti þegar þú fékkst hann?
Ég get ekki náð henni af í einu lagi, þetta er frekar klístrað og svona vesen. Hún er undir disknum og diskurinn var í hulstri þegar ég keypti hann (festingin átti að notast við þetta lím til að haldast við pakkninguna en hún losnaði og diskurinn límdist við í staðinn).
Sent: Lau 09. Apr 2005 22:02
af Pandemic
Hreinsað bensín all the way fæst í öllum apótekum.
Sent: Lau 09. Apr 2005 22:14
af MezzUp
Ég held að það sé skárra fyrst að þetta er undir disknum, og þú gætir kannski prófað mjög fínan sandpappír, en mér finnst nú eins og það sé samt of „harkalegt“
En annars er þetta rétt hjá gnarr, það tekur því varla að vera að gera þetta
Sent: Lau 09. Apr 2005 22:48
af axyne
bara nudda með puttanum.
pappír með heitu vatni og nudda.
virkar þa ekki fínt bara ?
Sent: Lau 09. Apr 2005 23:30
af gnarr
MezzUp skrifaði:En annars er þetta rétt hjá gnarr, það tekur því varla að vera að gera þetta
Mér skilst að þetta sé ekki skrifanlegur DVD diskur, heldur bíómynd eða leikur eða eitthvað álíka.
Birkir skrifaði:Nei? Þetta er ekki DVD-R
Sent: Lau 09. Apr 2005 23:43
af MezzUp
gnarr skrifaði:MezzUp skrifaði:En annars er þetta rétt hjá gnarr, það tekur því varla að vera að gera þetta
Mér skilst að þetta sé ekki skrifanlegur DVD diskur, heldur bíómynd eða leikur eða eitthvað álíka.
Birkir skrifaði:Nei? Þetta er ekki DVD-R
Ahh, skil ykkur. Þegar Birkir sagði þetta fór ég að hugsa um Dual Layer DVD+RW eða eitthvað álíka

Sent: Sun 10. Apr 2005 12:07
af Birkir
Hehe, ég biðst afsökunar ef ég hef ekki tekið þetta nógu skýrt fram

Sent: Sun 10. Apr 2005 12:27
af Snorrmund
þetta gerðist með Iron Maiden tónleika sem að ég á..(svona tappi sem límist á spjald losnaði og diskurinn nuddaðist á "límblettinn" ég náði í vatn og svona sérstaka "gler og spegla" tusku.. Ótrulega fíngerð og er algjör snilld á skjái..

En annars virkar örugglega alchahol vel..(s.s. Hreinsað Bensín..)
Sent: Sun 10. Apr 2005 13:01
af Birkir
Hehe, þetta er einmitt Iron Maiden diskur (Rock in Rio nánar tiltekið)

Sent: Sun 10. Apr 2005 13:47
af Snorrmund
hahaha.. þetta líka

Frábær diskur
