Síða 1 af 3

Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Sun 05. Maí 2019 15:09
af Stuffz
Er að spá í Rafmagnað farartæki eins-og neðangreind, hver er reynslan hér á landi af svona græjum
..

"Electric UniCycle"

Mynd

eða

"OneWheel"

Mynd

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Sun 05. Maí 2019 15:40
af Stuffz
Varðandi innflutning þá sem dæmi til samanburðar eitt ECU sem kom vel út í leitinni hjá mér KingSong KS-16S

er á 1350-1450$* í US
https://www.ewheels.com/product/kingson ... -unicycle/

og 1499€ í EU
https://www.kingsong-europe.com/en/unic ... s-16s.html

*1450$ með 240W charger

er að spá í hvort séu sömu eða minni álögur hérlendis ef ég flytti þetta inn frá EU en ekki US?

edit nafn.

EDIT #2 OFANGREINDAR SÍÐUR SENDA EKKI TIL ÍSLANDS
En neðangreindur Breskur söluaðili sendir til Íslands frítt *(6-10 daga), og dregur frá local VAT.

https://www.speedyfeet.co.uk/products/kingsong-ks-16s
* +40 Bresk Pund vegna extra Fedex gjalda, (sennilega ástæðan hin fyrirtækin baila á a senda hingað)

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Sun 05. Maí 2019 15:52
af kubbur
Er í svipuðum hugleiðingum, ertu búinn að skoða electric mountain board frá trampaboards?

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Sun 05. Maí 2019 16:53
af Stuffz
kubbur skrifaði:Er í svipuðum hugleiðingum, ertu búinn að skoða electric mountain board frá trampaboards?
Hmm 500$ og stór dekk ok lít á þetta líka, var búinn að útiloka bretti einsog "Boosted board" fannst dekkin of smá fyrir Reykjavík/Ísland aðstæður og tekur lengur að beygja svo þarf líka fjarstýringu sem þíðir einni hendi minna frí, svo Onewheel og EUC voru álitlegri kostir sökum stærri dekkja, fljótar að beygja + handfrjáls.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Sun 05. Maí 2019 17:46
af Sallarólegur
Shiii hvað þetta lítur vel út.
The Onewheel was invented by Future Motion Inc. founder and CEO, Kyle Doerksen. Doerksen holds multiple engineering degrees from Stanford University. Doerksen spent 8 years tinkering and creating Onewheel prototypes before starting Future Motion Inc. in 2013.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Sun 05. Maí 2019 17:56
af kubbur
Stuffz skrifaði:
kubbur skrifaði:Er í svipuðum hugleiðingum, ertu búinn að skoða electric mountain board frá trampaboards?
Hmm 500$ og stór dekk ok lít á þetta líka, var búinn að útiloka bretti einsog "Boosted board" fannst dekkin of smá fyrir Reykjavík/Ísland aðstæður og tekur lengur að beygja svo þarf líka fjarstýringu sem þíðir einni hendi minna frí, svo Onewheel og EUC voru álitlegri kostir sökum stærri dekkja, fljótar að beygja + handfrjáls.
en miklu meiri kraftur, hærri max hraði og meira hægt að sníða að þér

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Sun 05. Maí 2019 19:50
af Stuffz
Sallarólegur skrifaði:Shiii hvað þetta lítur vel út.
The Onewheel was invented by Future Motion Inc. founder and CEO, Kyle Doerksen. Doerksen holds multiple engineering degrees from Stanford University. Doerksen spent 8 years tinkering and creating Onewheel prototypes before starting Future Motion Inc. in 2013.
Jamm og þessi Onewheel XR (eXtended Range) útgáfa er 1800$, þeir eru hættir að framleiða eldri útgáfurnar (OW og OW Plus, ekki OW XR) en þeir voru líka að kynna nýja smærri og ódýrari útgáfu sem heitir Onewheel Pint og er á 950$

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Sun 05. Maí 2019 21:34
af Stuffz
kubbur skrifaði:
Stuffz skrifaði:
kubbur skrifaði:Er í svipuðum hugleiðingum, ertu búinn að skoða electric mountain board frá trampaboards?
Hmm 500$ og stór dekk ok lít á þetta líka, var búinn að útiloka bretti einsog "Boosted board" fannst dekkin of smá fyrir Reykjavík/Ísland aðstæður og tekur lengur að beygja svo þarf líka fjarstýringu sem þíðir einni hendi minna frí, svo Onewheel og EUC voru álitlegri kostir sökum stærri dekkja, fljótar að beygja + handfrjáls.
en miklu meiri kraftur, hærri max hraði og meira hægt að sníða að þér
já krafturinn er gagnlegur sérstaklega ef maður er mikið að ferðast uppímóti.

svo er hægt að fá enn meiri kraft á 1000$

9000W!! ;)

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 12:19
af kubbur
finnst þetta looka bara fyrir að vera miklu meiri græa

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 13:19
af hagur
Hafið þið ekkert skoðað rafhlaupahjól, eins og t.d Xiaomi Mi365? Ég fékk svoleiðis nýlega og það er snilld að snattast um á þessu. Mætti vissulega vera meiri kraftur í því uppá brekkurnar að gera en í sannleika sagt myndi ég ekki vilja fara mikið hraðar á þessu á jafnsléttu.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 14:27
af Stuffz
hagur skrifaði:Hafið þið ekkert skoðað rafhlaupahjól, eins og t.d Xiaomi Mi365? Ég fékk svoleiðis nýlega og það er snilld að snattast um á þessu. Mætti vissulega vera meiri kraftur í því uppá brekkurnar að gera en í sannleika sagt myndi ég ekki vilja fara mikið hraðar á þessu á jafnsléttu.
Ég sá eina á eitthverju tilboði á nova.is fyrir nokkrum vikum, 70þús núna.

Var að velta þessu fyrir mér yfir páskna en svo að lokum var maður meira inná hugmyndinni um tæki sem er handfrjálst og svo líka eitthvað sem getur ferðast í slyddu eða jafnvel smá snjó svo electric unicycle og sérstaklega onewheel koma sterkir inn þar.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 15:41
af dori
Þið sem eruð að skoða sovna rafmagns bretti. Hafið þið prófað að fara á hjólabretti og fara þokkalega hratt? Ég hef svolítið notað venjulegt órafmagnað longboard sem fararskjóta á milli A og B og ég er ekki viss um að ég myndi þora að nota svoleiðis með mótor, hvað þá eitthvað þar sem maður er strappaður niður eins og þetta sem kubbur setti inn mynd af hérna fyrir ofan.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 15:51
af Stuffz
dori skrifaði:Þið sem eruð að skoða sovna rafmagns bretti. Hafið þið prófað að fara á hjólabretti og fara þokkalega hratt? Ég hef svolítið notað venjulegt órafmagnað longboard sem fararskjóta á milli A og B og ég er ekki viss um að ég myndi þora að nota svoleiðis með mótor, hvað þá eitthvað þar sem maður er strappaður niður eins og þetta sem kubbur setti inn mynd af hérna fyrir ofan.
Þú þarft pottþétt að vera með hlífðarbúnað að einhverri gráðu, svo eru hraðatakmarkanir á t.d. þessum King Song Electric UniCycles sem ég er að spá í sem aflæsast ekki fyrr en eftir að hafa ferðast x marga km, ég er persónulega ekki að þora að vera mikið á hámarkshraðanum 22mph nema ef ég fjárfesti í meiri/viðeigandi hlífðarbúnði.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 18:52
af chaplin
Ég er með Xiaomi M365 frá Mii.is í láni fyrir myndband sem ég er að gera um tækið.

Initial impression er að þetta er fáranlega mikil snilld. Ég er búinn að sigla á þessu 97 km á síðustu 5-6 dögum og þrátt fyrir að þetta mætti fara aðeins hraðar upp brekkur að þá er samt sem áður meðalhraðinn hjá mér í hverri ferð um 20-21 km/klst.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 19:40
af kubbur
dori skrifaði:Þið sem eruð að skoða sovna rafmagns bretti. Hafið þið prófað að fara á hjólabretti og fara þokkalega hratt? Ég hef svolítið notað venjulegt órafmagnað longboard sem fararskjóta á milli A og B og ég er ekki viss um að ég myndi þora að nota svoleiðis með mótor, hvað þá eitthvað þar sem maður er strappaður niður eins og þetta sem kubbur setti inn mynd af hérna fyrir ofan.
klárlega skylda að vera með hlífðarbúnað á þessu, ef ég fer út í þennan pakka þá er það brynja frá toppi til táar :)

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 19:55
af hagur
chaplin skrifaði:Ég er með Xiaomi M365 frá Mii.is í láni fyrir myndband sem ég er að gera um tækið.

Initial impression er að þetta er fáranlega mikil snilld. Ég er búinn að sigla á þessu 97 km á síðustu 5-6 dögum og þrátt fyrir að þetta mætti fara aðeins hraðar upp brekkur að þá er ég samt sem áður meðalhraðinn hjá mér í hverri ferð um 20-21 km/klst.
Sammála, hugsa að ég sé með hærri meðalhraða á þessu en á reiðhjóli, m.v. sömu leiðina - nema ég sé að puða extra mikið á reiðhjólinu. Dýrka þetta apparat.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 21:33
af Stuffz
hagur skrifaði:

puða já, enginn sveittur og þreyttur gaur sem stígur af þessum græjum á leiðarenda einsog væri raunin með órafmagnaðan farskjóta.

btw ég sé að það er PRO týpa til líka af þessum M365 með aðeins aflmeiri mótor fyrir brekkurnar.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 22:05
af chaplin
Stuffz skrifaði: btw ég sé að það er PRO týpa til líka af þessum M365 með aðeins aflmeiri mótor fyrir brekkurnar.
Þú getur líka sagt bæ við ábyrgðina og flash-að custom firmware. Menn hafa náð allt að 42 km/klst með custom firmware og stærri dekkjum. Bilun. Svo er einnig hægt að flash-a minna klikkað firmware, 31 km/klst og flýgur upp brekkur. Mjög áhugavert.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mán 06. Maí 2019 22:36
af Stuffz
chaplin skrifaði:
Stuffz skrifaði: btw ég sé að það er PRO týpa til líka af þessum M365 með aðeins aflmeiri mótor fyrir brekkurnar.
Þú getur líka sagt bæ við ábyrgðina og flash-að custom firmware. Menn hafa náð allt að 42 km/klst með custom firmware og stærri dekkjum. Bilun. Svo er einnig hægt að flash-a minna klikkað firmware, 31 km/klst og flýgur upp brekkur. Mjög áhugavert.
já flash og mod o.s.f mér skilst að öll þessi batterý farartæki sé hægt að kreysta meiri hraðar útúr en á móti þá skilst mér líka að hættan eykst á að eitthvað innvoltis fari úrskeiðis og þá t.d. að græjan slái út á mesta hraða og maður steypist á hausinn :-#

annars IMO ætli 30km/klst ætti ekki að vera alveg nóg fyrir flest allar svona léttvigtar græjur.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Þri 07. Maí 2019 09:11
af Sallarólegur
Fyrir áhugasöm eru Nova með Mii rafhlaupahjól á 69K

https://www.nova.is/barinn/vara/rafmagnshlaupahjol
chaplin skrifaði: Initial impression er að þetta er fáranlega mikil snilld. Ég er búinn að sigla á þessu 97 km á síðustu 5-6 dögum og þrátt fyrir að þetta mætti fara aðeins hraðar upp brekkur að þá er samt sem áður meðalhraðinn hjá mér í hverri ferð um 20-21 km/klst.
Hvernig er þetta á slæmu undirlagi eins og ósléttu malbiki? Heldurðu að þú myndir til dæmis meika að rúnta í 30-40 mínútur til vinnu á þessu á hverjum degi(Seljahverfi - Miðbær)?

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Þri 07. Maí 2019 09:47
af hagur
Sallarólegur skrifaði:Fyrir áhugasöm eru Nova með Mii rafhlaupahjól á 69K

Það er ekkert mál að fara á þessu yfir óslétt malbik. Þó að það sé engin fjöðrun þá munar alveg um að vera með "alvöru" loftfyllt dekk. Sum þessara hjóla eru með solid dekk sem eru hastari.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Þri 07. Maí 2019 23:11
af zedro
chaplin skrifaði:Ég er með Xiaomi M365 frá Mii.is í láni fyrir myndband sem ég er að gera um tækið.

Initial impression er að þetta er fáranlega mikil snilld. Ég er búinn að sigla á þessu 97 km á síðustu 5-6 dögum og þrátt fyrir að þetta mætti fara aðeins hraðar upp brekkur að þá er samt sem áður meðalhraðinn hjá mér í hverri ferð um 20-21 km/klst.
Getum við búist við review'i á næstu dögum? :D

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Þri 07. Maí 2019 23:23
af chaplin
zedro skrifaði: Getum við búist við review'i á næstu dögum? :D
Yessir! :D

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mið 08. Maí 2019 12:54
af Stuffz
hagur skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Fyrir áhugasöm eru Nova með Mii rafhlaupahjól á 69K

https://www.nova.is/barinn/vara/rafmagnshlaupahjol
chaplin skrifaði: Initial impression er að þetta er fáranlega mikil snilld. Ég er búinn að sigla á þessu 97 km á síðustu 5-6 dögum og þrátt fyrir að þetta mætti fara aðeins hraðar upp brekkur að þá er samt sem áður meðalhraðinn hjá mér í hverri ferð um 20-21 km/klst.
Hvernig er þetta á slæmu undirlagi eins og ósléttu malbiki? Heldurðu að þú myndir til dæmis meika að rúnta í 30-40 mínútur til vinnu á þessu á hverjum degi(Seljahverfi - Miðbær)?
Það er ekkert mál að fara á þessu yfir óslétt malbik. Þó að það sé engin fjöðrun þá munar alveg um að vera með "alvöru" loftfyllt dekk. Sum þessara hjóla eru með solid dekk sem eru hastari.
Amm af því sem ég hef kynnt mér almennt um mismunandi rafskjóta þá varðandi lengri vegalengdir og ójafnt yfirborð í tengslum við fóta-þreytu o.s.f þá er réttur loftþrýstingur, rétt dekkjastærð, demparar og svo ég tali ekki um ef græjan hefur sæti samsvörun við aukin þægindi.

Re: Rafmagns Farskjótar.. RAFSKJÓTAR?

Sent: Mið 08. Maí 2019 18:21
af Lexinn
Ég fékk mér rafbretti í síðasta mánuði eftir að hafa lengi langað í Boosted Board, búinn að ná ca.450km á því og ef það hefði ekki verið svona blautt suma dagana væru þeir eflaust að nálgast 1000km :hjarta Hef reynt að nýta nánast öll tækifæri þegar færi gefst til að renna mér og það komu dagar þar sem það var hlaðið 2-3x sama dag og dugir hver hleðsla á þessu bretti um 20-25km.
IMG_20190316_125448.jpg
IMG_20190316_125448.jpg (2.26 MiB) Skoðað 12236 sinnum
Þetta þykir mér svo mikil snilld að ég er að gera heiðarlega tilraun til að draga konuna með í þetta ævintýri og er nú þegar búinn að panta allt í bretti fyrir hana! Er núna bara að bíða eftir að fá batterý og punktsuðuvél til að geta klárað þetta project.
IMG_20190508_150013.jpg
IMG_20190508_150013.jpg (2.87 MiB) Skoðað 12236 sinnum