Síða 1 af 1
Windows activation vesen
Sent: Sun 03. Apr 2005 18:29
af hahallur
Já ég er búin að fikta fullt í tölvunni m.a. fá harða diska til að vera hraðari, því fylgdi það vesen að það er sagt að ég sé búin að nota MS Windows code-ann minn 5 sinnum.
Hvað er hægt að gera í þessu ?
Sent: Sun 03. Apr 2005 18:58
af gumol
Hringdu bara í microsoft og biddu þá um að laga þetta:
Microsoft á Íslandi, S: 510 6900
Sent: Sun 03. Apr 2005 18:59
af kristjanm
Hringdu í þjónustunúmerið sem þú færð upp í Activation menu. Þarft að stimpla inn kóða sem þú færð gefinn upp í gegnum síma eða þá að tala við þjónustuaðila frá Microsoft.
Þjónustunúmerið sem ég fékk upp þegar ég valdi "Iceland" var á norsku eða dönsku svo að ég hringdi í númerið sem kom upp þegar ég valdi "United Kingdom"
Edit: Já ok, vissi ekki af íslensku Microsoft númeri
Sent: Sun 03. Apr 2005 20:46
af emmi
Breytir engu, þú endar líklega á því að þurfa að tala við MS í Danmörku eða Noregi.
Sent: Sun 03. Apr 2005 21:24
af MezzUp
Microsoft.is – „Þjónustan er veitt á ensku, dönsku, sænsku eða norsku.“
Sent: Mán 04. Apr 2005 10:58
af gnarr
"íttu á 5 ef þú vilt tala við microsoft með íslenskum túlk"
Sent: Mán 04. Apr 2005 13:15
af hahallur
Djöfulsins vesen, mér var sagt að hringja í eitthvað annað númer þegar ég hringdi til noregs.
Sent: Mán 04. Apr 2005 22:11
af emmi
Þetta ætti að kenna þér að kaupa ekki neitt frá MS.
Sent: Þri 05. Apr 2005 08:28
af gnarr
USA = Microsoft, Evrópa og asía = USA..
kauptu bara dót frá afríku
Sent: Þri 05. Apr 2005 13:49
af hahallur
Hahahah. . .ég hringdi í microsoft á íslandi, þar var mér sagt að hringja til noregs og þar var mér sagt að hringja til Englands.
Sent: Fös 15. Apr 2005 13:07
af Hannesinn
Þetta íslenska Microsoft númer er auðvitað bara út í hróa... og þetta activation drastl er auðvitað líka út í hróa, en það er allt önnur saga.
Ég hef stundum þurft að rí-aktívera Office pakka við vélaruppfærslur, og þá hringi ég í íslenska númerið og og vel ensku. Ef svo plebbinn úti segir mér að hringja til Noregs eða reynir að losa sig undan samtalinu, þá þarf að biðja hann um að gefa þér samband við Activation center.
Ég var að missa vitið í fyrstu skiptin sem að ég þurfti að ganga í gegnum þetta. Ég legg þetta símanúmer á sama stað í hilluna og 800-7000, undir titlinum "samband við neðra."
Sent: Mán 18. Apr 2005 22:45
af Zn0w
Skjótum þessu bara upp í skinsemina fáum okkur linux
seigi ég og geri ekkert í því
Sent: Þri 19. Apr 2005 13:21
af hahallur
Jæja ég talaði við einhvern indverja í morgun og reddaði þessu.
Sent: Þri 19. Apr 2005 13:42
af ponzer
hahallur skrifaði:Jæja ég talaði við einhvern indverja í morgun og reddaði þessu.
Þetta activation er svo sorglegt hjá MS
Sent: Þri 19. Apr 2005 15:09
af gnarr
hvað helduru að þeir hefðu selt mörg eintök af XP ef þeir hefðu ekki haft þetta? svona 10... 20 mestalagi.
Sent: Þri 19. Apr 2005 15:33
af CraZy
hvað er þetta activation dæmi breitir það einhverju? veit að vinur minn er að runna XPpro sem var bara brenndur á disk.
Sent: Þri 19. Apr 2005 15:38
af ponzer
CraZy skrifaði:hvað er þetta activation dæmi breitir það einhverju? veit að vinur minn er að runna XPpro sem var bara brenndur á disk.
Ef þú notar þetta serial sem allir nota sem byrjar á FCKGW þá geturu ekki installað SP, en veit ekki með Windows Update
Sent: Þri 19. Apr 2005 15:54
af CraZy
já ok þannig
Sent: Þri 19. Apr 2005 19:00
af galileo
Var að gera þetta áðan afþví að ég var að fá nýtt móðurborð sem ég er drullu ósáttur við, en það var allaveganna ekkert mál fyrst stimplaði ég bara inn product key og svo hringdi ég og fékk þetta að vita í norge.
Sent: Mið 20. Apr 2005 08:11
af gnarr
ponzer skrifaði:CraZy skrifaði:hvað er þetta activation dæmi breitir það einhverju? veit að vinur minn er að runna XPpro sem var bara brenndur á disk.
Ef þú notar þetta serial sem allir nota sem byrjar á FCKGW þá geturu ekki installað SP, en veit ekki með Windows Update
maður verður að vera með SP2 til að geta notað windows update.