Síða 1 af 1
NTLDR is Missing
Sent: Mið 23. Mar 2005 17:11
af Ragnar
Góðan dag. Þegar ég ræsi tölvunna mína kemur allt sem á að koma = allt tengt BIOS. En svo þegar það á að koma windows glugginn. Þá kemur í staðinn upp í hægra horni.
NTLDR is missing
Press Ctrl alt delet to restart
Þetta hefur komið fyrir áður hjá mér. Þá fór ég með hana á verkstæði. Þeir sögðu mér að þetta væri eitthvað tengt vinnsluminninu. Að það væri einhver jumper sem þeir færðu til eða töku úr og settu aftur á sinn stað. Allavega núna ætla ég að spyrja ykkur hvað þetta er.
Hvað á ég að gera.
Ég er með Asus av8 deluxe og Super talent minni ddr 400.
Ég vona að þetta sé skiljanlegt og að þið finnið lausn á vandamáli mínu.
Þakka öll svör.
Ragnar Jóhannesson
Sent: Mið 23. Mar 2005 17:18
af MezzUp
Kom þetta eftir að þú settir harða disk í vélina eða bara uppúr þurru?
Ef að þú varst að breyta uppröðun eða bæta við hörðum disk þá gæti þessi villa komið afþví að þú ert að reyna að boot'a upp af nýja disknum/öðrum disk en hægt er að boota upp af.
Ef að þetta gerðist uppúr þurru gæti verið að NTLDR hafi corrupt'ast/horfið eða álíka. Þá er lítið mál að ná honum af Windows geisladisknum.
Endilega segðu okkur hvort þú telur vera meinið og ég get leiðbeint þér frekar.
Sent: Fim 24. Mar 2005 03:00
af Ragnar
Þetta kom uppúr þurru. Ég var að henda leikjum út með Control panel add or remove program svo restarta ég þá kom þetta upp allt í einu.

Sent: Fim 24. Mar 2005 03:19
af zaiLex
Ekki vissi ég að NTLDR væri fæll

Sent: Fim 24. Mar 2005 11:20
af axyne
ég lendi einu sinni í þessari villumeltingu á ferðavél.
ástæðan var ónýtur minniskubbur.
prufaðu að taka úr annan kubbinn ef þú ert með 2x kubba.
Sent: Fim 24. Mar 2005 14:48
af Ragnar
Ég skal prófa að taka 1 kubb úr og prófa. En Mezzup sagði að það væri hægt að nálgast NTLDR á windows disknum. En galinn er að ég á ekki windows disk

. Er þá bara ekki málið að Format því hvort sem er er tölvan mín alveg í hassi.
Allavega ég prófa minniskubbanna fyrst. Skrifa svo póst um hvernig það fór.
Og ef það virkar ekki þá prófa ég að Format OK ?.
Sent: Fim 24. Mar 2005 14:58
af hahallur
ekkert annað í stöðunni held ég.
Sent: Fim 24. Mar 2005 15:35
af corflame
Ragnar skrifaði:Ég skal prófa að taka 1 kubb úr og prófa. En Mezzup sagði að það væri hægt að nálgast NTLDR á windows disknum. En galinn er að ég á ekki windows disk

. Er þá bara ekki málið að Format því hvort sem er er tölvan mín alveg í hassi.
Allavega ég prófa minniskubbanna fyrst. Skrifa svo póst um hvernig það fór.
Og ef það virkar ekki þá prófa ég að Format OK ?.
Bara ein spurning, hvernig ætlarðu að formatta og setja vélina upp aftur
ef þú hefur ekki stýrikerfisdisk

Sent: Fim 24. Mar 2005 16:08
af Ragnar
Bara ein spurning, hvernig ætlarðu að formatta og setja vélina upp aftur
ef þú hefur ekki stýrikerfisdisk
Ég sjálfur á bara disk til að breyta frá windows 98 í xp

. En ég þekki æika fólk sem á diska og svo eru náttúrulega tölvuverslanir hér á Selfossi. það reddast en ekki fyrr en eftir páska því það er allt LOKAÐ.
Já og ég prófaði að taka Minniskubbana úr. Tók fyrst úr kubbinn sem er nær örgjafanum. Það kom það sama ntldr is missing þá setti ég hann aftur í og tók hinn úr. Þá gerðist ekkert. Jú tölvan fór í gang og var bara með læti. Allar viftur á fullt og bara VHURRRRRRRR engin píp eða nitt svoleiðis bara allt í botn. þá setti ég kubinn aftur í og þá kom svona val um eitthvað.
F1 for manual settup
F2 for automatic Bios setting
ég gerð f2 í von að þetta lagaðist en nei það gerði það ekki.
Sent: Fim 24. Mar 2005 17:20
af gnarr
ertu nokkuð með diskettu í disklingadrifinu?
Sent: Fim 24. Mar 2005 18:13
af Mysingur
prófaðu að setja einhvern stýrikerfisdisk eða bara einhvern disk sem er hægt að boota af í geisadrifið og settu cdrom fremst í bootorder.
svo þegar þú kevikir á tölvunni ætti að koma svona "press any key to boot from cd....." þá skaltu bara sleppa þvi að ýta á takka og bíða.
hefur virkað hjá mér

Sent: Fim 24. Mar 2005 18:59
af Yank
Sent: Fim 24. Mar 2005 19:47
af Ragnar
Mysingur skrifaði:prófaðu að setja einhvern stýrikerfisdisk eða bara einhvern disk sem er hægt að boota af í geisadrifið og settu cdrom fremst í bootorder.
svo þegar þú kevikir á tölvunni ætti að koma svona "press any key to boot from cd....." þá skaltu bara sleppa þvi að ýta á takka og bíða.
hefur virkað hjá mér

Þetta ætla ég að prófa. Og Yank Þakka þér fyrir þennan skemmtilega link.
Fyrst ætla ég að gera það sem Mysingur segir mér að prófa. Svo fer ég eftir þessum link hanns Yank.
Sent: Fim 24. Mar 2005 21:12
af Mysingur
þessi lausn verður reyndar nokkuð þreytandi til lengdar
væri alveg til í að fá lausn á þessu
ég er búinn að formatta tvisvar síðan þetta byrjaði hja mér en það gerir ekkert gagn... svo ef ég fer í recovery console og geri "copy H:\i386\ntldr F:\ntldr" þá þegar ég kveiki á tölvunni þá restartar hún sér alltaf rétt áður en windows loading screen ætti að koma

Sent: Fim 24. Mar 2005 21:19
af Ragnar
ég prófaði bæði eða nærstum bæið. Gerði það sem mysingur sagði mér að gera. Setti diskinn minn í = 98-xp og jú það koma press any key to start xp blah blah blah. Þá kom lika ntldr is missing blah blah blah.
Ég ætla bara að formata í þeirri von að þetta lagist.
Svo ef þetta gerist aftur sem ég vona ekki. Þá bara formata ég aftur

.
Sent: Mið 30. Mar 2005 20:23
af galileo
sorry ef að ég sé nýliði en hvað er NTLDR???

Sent: Mið 30. Mar 2005 20:45
af MezzUp
Windows NT loader
Eitt af forritunum sem tekur þátt í ræsingu á Window NT/2000/XP
takk
Sent: Mið 30. Mar 2005 21:21
af galileo
Takk fyrir kærlega

það er nú ekkert eðlilegt hvaðfólk er tilbúið að hjálpa manni á þessari síðu þótt maður komi með einhverjar núbba spurningar
