Síða 1 af 1
Hvernig ferðatölvu á ég að fá mér
Sent: Þri 15. Mar 2005 18:22
af xtr
Þarf ferðatölvu fyrir 100 til 200þúsund.
Engin leikjatölva, bara vinnur vel og fljótt.
Hvað eru bestu ferðatölvurnar núna
Veit ekkert um ferðatölvur og fæ þetta géfins fra vinnuni
*lagað af stjórnanda*
Sent: Mið 16. Mar 2005 09:24
af einarsig
afhverju ætti vinnan þín að gefa þér Ferðatölvu þegar þú segir tölva
annar myndi ég kíkja task-ice vélarnar, færð geggjaða spekka fyrir ekkert svo mikinn pening.... hef notað 2 svona vélar og hef ekkert út á hávaða eða performance að setja.
http://www.task.is
Sent: Mið 16. Mar 2005 11:30
af skipio
IBM Thinkpad T vélarnar eru langsamlega bestar - að vísu dálítið dýrar á Íslandi en svo er auðvitað dollarinn lágur og alþjóðleg ábyrgð á tölvunum þannig að það er alltaf möguleiki að panta frá BNA ...
Annars eru ferðatölvur eitt af því fáa þar sem ég horfi á merkið og vil helst kaupa frá stærri búðunum eða þá a.m.k. af þeim litlu búðum sem kaupa af heildsala á Íslandi (eins og er t.d. með HP vélarnar). Ástæðan er einfaldlega sú að þjónustan þarf að vera nógu áreiðanleg því þessi kvikindi eiga það til að bila talsvert oft og öfugt við borðtölvurnar getur maður ekki gert við þetta sjálfur nema að mjög takmörkuðu leyti.