Síða 1 af 1

Vantar álit á ágætis leikjavél

Sent: Þri 15. Mar 2005 17:52
af goldfinger
Einn sem ég þekki ætlar að fara að kaupa sér nýjann turn og nýtt stuff i hann, orðið frekar úrelt það sem hann er með.

Hann vill góða leikjavél en samt ekki háværa og einnig að hún sé hellst innan 100þús.

Kassi: Antec Sontana - 14.900kr. (bodeind.is)
Örgjörvi: AMD Athlon 64 3200+ (2.2GHz) R. - 17.650kr. (att.is)
Móðurborð: MSI K8N NEO3 FSR - nForce4 - 14.900kr. (tolvulistinn.is)
Vinnsluminni: OCZ PC3700 512MB EL Gold Edition Rev3 - 12.990kr. (start.is)
Skjákort: Skjákort: GeFORCE 6600GT 128MB DDRIII AGP - 19.900kr. (start.is)
HDD: 200GB (7.2K RPM) (8MB) - 10.850kr. (att.is)
DVD skrifari: DVD±R/RW 16x Dual - 6.950kr. (att.is)
Viftur: 2x SilenX 80mm 14dBA - 2x 1.500kr. (start.is)

Samtals: 100þús sirka

Sent: Þri 15. Mar 2005 18:10
af vldimir
Myndi alveg vel skoða Shuttle XPC kassana, hljóðlátir, litlir, flottir.

Muna bara að taka Radeon kort ef maður fær sér þannig, þar sem GeForce kortin taka of mikið rafmagn.

En í sambandi við hina vélina þá myndi ég halda þetta væri mjög fín vél.

Sent: Þri 15. Mar 2005 19:56
af nomaad
Fínasta vél sýnist mér, en bara að benda á að 3200+ er 2ghz, ekki 2.2 :D

Sent: Þri 15. Mar 2005 22:38
af goldfinger
nomaad skrifaði:Fínasta vél sýnist mér, en bara að benda á að 3200+ er 2ghz, ekki 2.2 :D
þetta er allt c/p

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1052

stendur 2,2 þarna

ég á 3200+ sjálfur og hann er 2,2

Sent: Þri 15. Mar 2005 23:10
af wICE_man
A64 3200+ er til í þremur útfærslum:

S754 2.0GHz 1MB L2 (Clawhammer)
S754 2.2GHz 512KB L2 (Newcastle)
S939 2.0GHz 512KB L2 (Winchester)

Þar hafiði það :)

Sent: Mið 16. Mar 2005 08:41
af goldfinger
jebbz :P

Sent: Mið 16. Mar 2005 08:47
af gnarr
goldfinger skrifaði:
nomaad skrifaði:Fínasta vél sýnist mér, en bara að benda á að 3200+ er 2ghz, ekki 2.2 :D
þetta er allt c/p

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1052

stendur 2,2 þarna

ég á 3200+ sjálfur og hann er 2,2
gangi þér vel að setja þennann s754 örgjörva á þetta s939 móðurborð.

Sent: Mið 16. Mar 2005 10:14
af Daz
Það er kannski bara ég, en ef ég ætti að setja saman öfluga vél sem má ekki kosta of mikið myndi ég líklega taka eins ódýrann kassa og ég finn. Jafnvel þó þessi sé mikið seldur út á að hann sé "hljóðlátur" má örugglega setja saman kassa+PSU fyrir minni pening og samt haldið hljóðinu úr PSUinu í lágmarki.

Sent: Mið 16. Mar 2005 16:02
af goldfinger
gnarr skrifaði:
goldfinger skrifaði:
nomaad skrifaði:Fínasta vél sýnist mér, en bara að benda á að 3200+ er 2ghz, ekki 2.2 :D
þetta er allt c/p

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1052

stendur 2,2 þarna

ég á 3200+ sjálfur og hann er 2,2
gangi þér vel að setja þennann s754 örgjörva á þetta s939 móðurborð.
hvaða móðurborð ert þú að tala um ?

þetta er s754, getur gáð sjálfur á tolvulistinn.is en annars skiptir ekki, var að fatta að þetta er PCI-express

Sent: Mið 16. Mar 2005 18:52
af DoRi-
vldimir skrifaði:Myndi alveg vel skoða Shuttle XPC kassana, hljóðlátir, litlir, flottir.
satt, frændi minn á svona, eina hljóðið sem er í henni er í harða disknum :D