Síða 1 af 1

Vantar alskonar grams ódýrt eða gefins

Sent: Lau 21. Júl 2018 20:36
af rapport
Þannig er mál með vexti að ég kynntist gaurum í Serbíu fyrir c.a. 10 árum í gegnum tölvulaikjaclan.

Einn af þeim hefur þurft að ganga í gegnum alskonar rugl og ég hef verið honum innan handar með alskonar grams í gegnum tíðina, tölvan hans í dag er líklega 50% gamalt brak frá mér o.þ.h.

Nú er ég á leið til Serbíu í og við ætlum að taka okkur einn dag til að hittast yfir nokkrum bjórum og ég var búinn að lofa honum að reyna redda einhverju braki fyrir hann að garfast í og leika með.

Ég er til í að kaupa alskonar sniðugt ódýrt eða sækja gefins ef það er eitthvað sem þið viljið losna við.

Bara senda mér PM og tilboð ef það er eitthvað...

Re: Vantar alskonar grams ódýrt eða gefins

Sent: Lau 21. Júl 2018 21:02
af Ingisnickers86
Sæll,

Á Radeon 7730 á 5 kall ef þú vilt?

Re: Vantar alskonar grams ódýrt eða gefins

Sent: Sun 22. Júl 2018 01:57
af rapport
Ingisnickers86 skrifaði:Sæll,

Á Radeon 7730 á 5 kall ef þú vilt?
Þakka ágætis boð, þykir það frekar dýrt samt þetta kort hjá þér.

En ég gaf honum gamla 6950 kortið mitt fyrir 2-3 árum síðan, það er töluvert öflugra.

Re: Vantar alskonar grams ódýrt eða gefins

Sent: Sun 22. Júl 2018 08:10
af Ingisnickers86
Já, kannski það :)

Re: Vantar alskonar grams ódýrt eða gefins

Sent: Sun 22. Júl 2018 18:54
af gutti
Er með dvi Kapal fengið á 1000kr sirka inna við 10 metra

Re: Vantar alskonar grams ódýrt eða gefins

Sent: Sun 22. Júl 2018 19:02
af worghal
væri fínt samt að vita hvað hann er með svo fólk viti hvort það getið boðið uppfærslu :)

Re: Vantar alskonar grams ódýrt eða gefins

Sent: Mán 23. Júl 2018 00:57
af rapport
Hann er til í alskonar grams, en kannski frekar íhluti en snúrur.

Minni, örgjörva og skjákort kjannski einna helst...

Hann er með held ég i7 870 í dag eða seinast þegar ég vissi.

Ég ert kominn með tvær fartölvur (bilaðar), eitthvað minni og USB dót ...

Hann vantar bara eitthvað til að fikta með og selja til að halda sér á floti fjárhagslega.

Re: Vantar alskonar grams ódýrt eða gefins

Sent: Mán 23. Júl 2018 23:14
af rapport
BUMP

Re: Vantar alskonar grams ódýrt eða gefins

Sent: Þri 24. Júl 2018 00:34
af DJOli
Ég hjálpaði vini mínum í bretlandi fyrir ekki svo löngu að setja saman tölvu af ebay og amazon. Fann tölvu með 450w aflgjafa, intel core i5 3570, 4gb af ddr3 minni, og 500gb hdd á minnir mig tæp £200

Þetta er t.d. ekkert geðveikt hátt verð.
https://www.ebay.com/itm/Dell-Optiplex- ... m570.l1313