Síða 1 af 1

.

Sent: Lau 21. Júl 2018 19:38
af Ratorinn
.

Re: Ætti ég að uppfæra annaðhvort eða bæði?

Sent: Lau 21. Júl 2018 19:46
af littli-Jake
Ég er með sama cpu og 1070. Finnst það hafa komið nokkuð vel út.
Nvidia eru svo að koma með 1180 á næstu mánuðum og þá 1170 og 1160 í framhaldi. Spurning fyrir þig að bíða aðeins lengur.

Re: Ætti ég að uppfæra annaðhvort eða bæði?

Sent: Sun 22. Júl 2018 14:33
af Emarki
Henda sér strax á 1060 gtx, maður á ekki að eyða leikjaspilunartímanum sínum í að bíða eftir nýjum kynslóðum.

Það er ómögulegt að segja nákvæmlega hvenær nýju kortin detta inn, enn hinsvegar eru yfirgnæfandi líkur á að þau verði á hærra verðlagi enn við eigum að venjast. Landslagið í GPU heiminum núna er alls ekki gott, enginn pressa á Nvidia vegna engrar samkeppni.

Kv. Einar

Re: Ætti ég að uppfæra annaðhvort eða bæði?

Sent: Sun 22. Júl 2018 18:52
af Moldvarpan
Fáðu þér betra skjákort! Strax!

Re: Ætti ég að uppfæra annaðhvort eða bæði?

Sent: Sun 22. Júl 2018 19:49
af Klemmi
Emarki skrifaði:Henda sér strax á 1060 gtx, maður á ekki að eyða leikjaspilunartímanum sínum í að bíða eftir nýjum kynslóðum.

Það er ómögulegt að segja nákvæmlega hvenær nýju kortin detta inn, enn hinsvegar eru yfirgnæfandi líkur á að þau verði á hærra verðlagi enn við eigum að venjast. Landslagið í GPU heiminum núna er alls ekki gott, enginn pressa á Nvidia vegna engrar samkeppni.

Kv. Einar
Tek undir með þessu.

Fór í GTX 1060 um síðustu jól, það átti bara að vera til bráðabirgða því næsta kynslóð var handan við hornið...

7 mánuðir síðan og enn engar traustar heimildir um það hvenær næsta kynslóð skilar sér.

Auðvitað getur vel verið að þú verðir óheppinn og það komi tilkynning frá nVidia rétt eftir að þú kaupir, en getur allt eins verið að það sé enn löng bið.

Re: Ætti ég að uppfæra annaðhvort eða bæði?

Sent: Sun 22. Júl 2018 19:58
af Baldurmar
Fyrir utan að 1160 kortið verður pottþétt bara repacketing a 1060, mögulega þetta standard 8% betra fyrir 30% hærra verð

Re: Ætti ég að uppfæra annaðhvort eða bæði?

Sent: Sun 22. Júl 2018 20:00
af Emarki
Það er nefnilega mjög líklegt að næsta kynslóð verður ekki mjög stórt stökk.

Ef ég ætti að giska á hvenær 1160 gtx kemur út, þá myndi ég segja nóv/des.

Re: Ætti ég að uppfæra annaðhvort eða bæði?

Sent: Mán 23. Júl 2018 10:04
af Viggi
Er með sama setup og persónulega myndi ég ekki uppfæra neitt heldur safna mér saman í eina splunkunýja á næsta ári en ef það er möst þá reyna kreista aðeins meira OC úr CPU og nýtt skjákort. Spila ekki mikið AAA leiki í pc núorðið en kjamsar í sig alla VR leiki eins og ekkert sé