Síða 1 af 1

Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:01
af appel
Ég er forvitinn.

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:05
af svingi
Jebb hefur verið eitthvað hökt hjá mér þó að routerinn segi að allt sé í lagi, er hjá símanum og veit að það voru vandræði með DNS þjóna hjá þeim í dag, spurning hvort að það sé ennþá í gangi.

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:05
af siggidzy
Já, flest útlenskt virkar ekki, mjög svo pirrandi.

Er hjá símanum.

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:08
af morsi
Er hjá símanum, flestallt dautt núna

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:09
af DJOli
Yep. Lenti í veseni fyrr í kvöld, og ennþá í smá veseni.
Datt út úr online leikjum, missti samband við Steam og Discord nokkrum sinnum.
Hef náð að halda sambandi við Youtube einhvernveginn, en Speedtest.net virkar ekki, og ég get ekki framkvæmt línupróf á línunni heima hjá mér, en get gert það í símanum, og þar er allt með felldu.

Kæmi mér ekki á óvart ef Míla væru að vinna í einhverju viðhaldi/búnaðaruppfærslum.
Ef ekki þeir, þá eitt af fyrirtækjunum sem þjónustuaðilar okkar nota til að tengja okkur við umheiminn.

edit: er hjá símanum með bæði heimatenginguna, og gemsann.
edit2: get núna prófað línuna hjá mér á heimatengingunni, en speedtest t.d. virkar ekki.

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:11
af appel
Ég bjalla í menn.

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:13
af DJOli
appel skrifaði:Ég bjalla í menn.
Hvaða menn?

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:15
af morsi
4G router tengdur og allt virkar, heimanet virkar ekki....

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:21
af rbe
allt virðist virka eðlilega hér gagnaveita-vodafone

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:30
af appel
Þetta er í skoðun.

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:39
af AlexJones
Kemst ekkert. Hjá símanum.

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:42
af svingi
Fékk þetta sent frá Símanum fyrr í dag.
Einhver vandamál virðast vera hjá hluta notenda við að fletta upp lénanöfnum í Internet þjónustu á nafnaþjónum Símans ("DNS lookup").
Nafnaþjónarnir eru 212.30.200.200 og 194.105.224.1.
Óljóst er með hversu víðtækt og alvarlegt vandamálið er.
Unnið er að greiningu og viðgerð.

Frá: 27/03/2018 kl: 00:00
Þar til viðgerð lýkur.

Flokkur: Internet
Tegund: Atvik

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum, sem þetta kann að valda.
Starfsfólk Símans

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:44
af appel
Ég nota google dns nafnaþjóna. Ætti ekki að eiga við um þá.

edit: komið í lag!

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:45
af svingi
appel skrifaði:Ég nota google dns nafnaþjóna. Ætti ekki að eiga við um þá.
Þá er líklegast eitthvað annað í gangi :)

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 02:51
af appel
svingi skrifaði:
appel skrifaði:Ég nota google dns nafnaþjóna. Ætti ekki að eiga við um þá.
Þá er líklegast eitthvað annað í gangi :)
Búið að leysa úr þessu vonandi.

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 03:17
af ZiRiuS
Allt erlent var useless fyrr í kvöld, en komið í lag. Er hjá Vodafone/Gagnaveitunni samt.

Re: Truflanir á neti hjá einhverjum?

Sent: Mið 28. Mar 2018 04:08
af jonfr1900
Það er virðist vera smá vesen að tengjast vefsíðum sem eru hýstar á Íslandi héðan frá Danmörku. Þetta eru bara sumar vefsíður sem ég fer á, ekki nærri því allt saman.