Síða 1 af 1
Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 17:22
af appel
Ef ég skil rétt þá eru öryggisgallar í öllum nýjustu örgjörvunum sem eru seldir núna. Spectre og Meltdown.
Þannig að fyrir þá sem eru að pæla í uppfærslu þá eru þeir án efa að velta þessu fyrir sér, þ.e. hvort það eigi að kaupa örgjörva núna sem er með þetta eða bíða eftir að framleiðendur gefi út lagfærða örgjörva.
Hefur einhver heyrt eitthvað um hvort það verði gefnir út lagfærðir örgjörvar bráðlega? Eða kallar það á drastíska endurhönnun á örgjörvanum? Eða er þetta bara einhver smá patch sem þeir gera á núverandi framleiðslulínu?
Mér sýnist að hraðatap í desktop/gaming ham sé mjög lítið eftir Windows patch, þannig að það er spurning hvort það borgi sig að bíða?
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 17:59
af GuðjónR
Ef ég væri í þessum pælingum akkúrat í dag þá myndi ég hinkra aðeins með örgjörva kaup, lendi það oft á gölluðu að ég færi ekki viljandi að kaupa gallaða vöru. Myndi hinkra og sjá hvernig viðbrögðin hjá Intel verða.
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 18:00
af Stuffz
Bíða og sjá / wait and see
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 18:22
af hfwf
Myndi bíða lengi lengi, spurning hvað lengi, nýjir örgjörvar sem koma út post meltdown/spectre verða líka bara með sama bög nema patched, þarf ekki örugglega að hanna þetta aftur upp frá grunni.
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 20:10
af Klemmi
Bara bíða í nokkrar vikur og sjá hver staðan er þá, þ.e. bæði af væntu framhaldi og svo líka bara hvert raunverulegt performance tap er.
Finnst líklegt að þetta sé bara kvikkfix núna til að koma í veg fyrir misnotkun á buggnum, svo verður þetta skoðað og bestað betur.
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 20:17
af Manager1
Ég pantaði örgjörva í gær

Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 20:21
af Hjaltiatla
Klemmi skrifaði:Bara bíða í nokkrar vikur og sjá hver staðan er þá, þ.e. bæði af væntu framhaldi og svo líka bara hvert raunverulegt performance tap er.
Finnst líklegt að þetta sé bara kvikkfix núna til að koma í veg fyrir misnotkun á buggnum, svo verður þetta skoðað og bestað betur.
Jupp þessir patchar eru bara workaround .T.d til að leysa Meltdown buggin (intel specific böggur) þá þyrfti maður að senda cpu-inn til intel og hann yrði patchaður eða lagaður (Sé það ekki gerast btw). Hins vegar er mjög líklegt að Intel lagi þennan bögg í nýju kynslóðinni af örgjörvunum.
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 20:51
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:Klemmi skrifaði:Bara bíða í nokkrar vikur og sjá hver staðan er þá, þ.e. bæði af væntu framhaldi og svo líka bara hvert raunverulegt performance tap er.
Finnst líklegt að þetta sé bara kvikkfix núna til að koma í veg fyrir misnotkun á buggnum, svo verður þetta skoðað og bestað betur.
Jupp þessir patchar eru bara workaround .T.d til að leysa Meltdown buggin (intel specific böggur) þá þyrfti maður að senda cpu-inn til intel og hann yrði patchaður eða lagaður (Sé það ekki gerast btw). Hins vegar er mjög líklegt að Intel lagi þennan bögg í nýju kynslóðinni af örgjörvunum.
Samkvæmt fréttum þá eru þeir hjá Intel búnir að vita þetta lengi, sumir vilja meina allt frá síðasta sumri. Af hverju eru þeir ekki löngu búinir að laga þetta í Coffee Lake örgjörvunum?
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 20:56
af Hjaltiatla
GuðjónR skrifaði:
Samkvæmt fréttum þá eru þeir hjá Intel búnir að vita þetta lengi, sumir vilja meina allt frá síðasta sumri. Af hverju eru þeir ekki löngu búinir að laga þetta í Coffee Lake örgjörvunum?
My best bet væri ef rétt reynist - peningar
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 21:00
af littli-Jake
Hef stundum velt fyrir mér hversu "langt á undan" vélbúnaðarh0nnuður/framleiðendur eru á undan markaðsvörunni (rosalega hlítur íslenskukennarinn minn að hafa snúst í gröfinni núna)
Veit að bílaframleiðendur eru að stærstum hluta 3/5 árum á undan. Þ.e. núna er verið að hana bílana sem koma nýjir á markað 2020/2025. Ekki það að kjarninn í bílunum er óbreittur í mörg ár í senn. Sem dæmi hefur lítil þróun orðið á undirvagni Ford Focus í um 10 ár. Sá undirvagn er líka notaðir í lítt breittri mynd í til dæmis Volvo S40/60 sem og mözdu 6
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 21:02
af Revenant
GuðjónR skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:Klemmi skrifaði:Bara bíða í nokkrar vikur og sjá hver staðan er þá, þ.e. bæði af væntu framhaldi og svo líka bara hvert raunverulegt performance tap er.
Finnst líklegt að þetta sé bara kvikkfix núna til að koma í veg fyrir misnotkun á buggnum, svo verður þetta skoðað og bestað betur.
Jupp þessir patchar eru bara workaround .T.d til að leysa Meltdown buggin (intel specific böggur) þá þyrfti maður að senda cpu-inn til intel og hann yrði patchaður eða lagaður (Sé það ekki gerast btw). Hins vegar er mjög líklegt að Intel lagi þennan bögg í nýju kynslóðinni af örgjörvunum.
Samkvæmt fréttum þá eru þeir hjá Intel búnir að vita þetta lengi, sumir vilja meina allt frá síðasta sumri. Af hverju eru þeir ekki löngu búinir að laga þetta í Coffee Lake örgjörvunum?
Þróunartími á örgjörvum er mjög langur, oft 2-3 ár. Það er miklu fljótlegra að "laga" örgjörva sem koma út í dag með microcode uppfærslu heldur en að fara í það að breyta base layer/metal layer-inum (stepping).
Alvöru hardware fix (ekki microcode workaround) má því búast við í örgjörvum sem koma út eftir 2-3 ár.
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 21:04
af Hjaltiatla
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 22:18
af GuðjónR
Revenant skrifaði:
Þróunartími á örgjörvum er mjög langur, oft 2-3 ár. Það er miklu fljótlegra að "laga" örgjörva sem koma út í dag með microcode uppfærslu heldur en að fara í það að breyta base layer/metal layer-inum (stepping). Alvöru hardware fix (ekki microcode workaround) má því búast við í örgjörvum sem koma út eftir 2-3 ár.
Ég væri ekkert hissa að tæknin væri 5 árum á undan markaðnum.
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 22:39
af Revenant
GuðjónR skrifaði:Revenant skrifaði:
Þróunartími á örgjörvum er mjög langur, oft 2-3 ár. Það er miklu fljótlegra að "laga" örgjörva sem koma út í dag með microcode uppfærslu heldur en að fara í það að breyta base layer/metal layer-inum (stepping). Alvöru hardware fix (ekki microcode workaround) má því búast við í örgjörvum sem koma út eftir 2-3 ár.
Ég væri ekkert hissa að tæknin væri 5 árum á undan markaðnum.
Það sem er tímafrekast við framleiðslu á örgjörvum er eflaust að búa til nýja verksmiðju (þegar t.d. farið úr 22nm í 14nm) og síðan prófanir.
Að prófa örgjörva er gríðalega erfitt og ekki hægt að gera það með simulator/emulator því þeir eru alltof hægir. Af þeim sökum þarf að framleiða örgjörvann sem er verið að þróa (engineering samples) sem tekur kannski 6+ vikur.
Síðan taka við prófanir og lagfæringar sem taka aðrar 6-12 vikur og ferlið endurtekur sig 2-4 sinnum.
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Lau 06. Jan 2018 22:43
af appel
Mig grunar að við séum að sigla inn í nýtt tímabil "kaós" í tölvuöryggi. Þessi galli á hönnun örgjörva mun verða exploitaður af hökkurum. Meltdown og Spectre er aðeins upphafið held ég, og þessi "patch" sem er búið að gera fyrir windows og linux sé bara work-around í þessu tilfelli.
Þannig að það eru einhverjar smá líkur á að það sem maður kaupir í dag verði nær ónothæft sökum óöryggis eftir 1 ár.
Hardware þróun er gríðarlega tímafrek. En það er spurning hvort þeir spýti í lófana og hraði útgáfu nýs örgjörva með lagfæringu, þó hann verði ekkert endilega mikið hraðvirkari þá ætti hann að vera öruggari.
Re: Kaupa örgjörva núna eða bíða eftir þeir verði lagfærðir? (spectre/meltdown)
Sent: Sun 07. Jan 2018 10:17
af axyne
Eins og ég skil þetta þá er þörf á grundvallarbreytingu á architectúrnum til að komast hjá gallanum 100%
Sé fyrir mér það verða einhver ár þangað til þú getur keypt örgjörva sem er ekki skítapatchaður.