Síða 1 af 1
Er þetta góður skjár?
Sent: Fim 04. Jan 2018 07:13
af moc133
Sælir vaktarar, nú fer að koma að því að mig vanti nýjan skjá. Er ekkert óskaplega picky neitt en veit að þessi týpa er ekki alveg glæný er bara að spá hvort þessi skjár sé þess virði að versla? -
https://www.att.is/product/asus-28-pb287q-4k-skjar
Re: Er þetta góður skjár?
Sent: Fim 04. Jan 2018 07:23
af andriki
ef þú ert að fá þer skja fyrir tolvu leiki myndi ég frekar fara í 2k 144hz i staðinn fyrir 4k
Re: Er þetta góður skjár?
Sent: Fim 04. Jan 2018 07:26
af moc133
andriki skrifaði:ef þú ert að fá þer skja fyrir tolvu leiki myndi ég frekar fara í 2k 144hz i staðinn fyrir 4k
Meira bara að eiga solid skjá sem mun endast mér kannski 5+ ár eða svo. Spila lítið af tölvuleikjum fer af og til í nokkra en þeir eru eldri leikir.
Er svona að hallast að því að kaupa þennan skjá.
Re: Er þetta góður skjár?
Sent: Fim 04. Jan 2018 08:15
af andriki
moc133 skrifaði:andriki skrifaði:ef þú ert að fá þer skja fyrir tolvu leiki myndi ég frekar fara í 2k 144hz i staðinn fyrir 4k
Meira bara að eiga solid skjá sem mun endast mér kannski 5+ ár eða svo. Spila lítið af tölvuleikjum fer af og til í nokkra en þeir eru eldri leikir.
Er svona að hallast að því að kaupa þennan skjá.
hérna er gott review af honum,
https://www.youtube.com/watch?v=EEMvkNSmXSY,
passaðu þig bara að skjakortið sem þú ert með sé með display port plug sem styður 4k í 60hz
Re: Er þetta góður skjár?
Sent: Fim 04. Jan 2018 14:04
af Alfa
Sennilega fínasti skjár en persónulega ef ég væri ekki að leita að gaming skjá (60hz+) myndi ég alltaf kaupa IPS frekar og þetta er TN panel skjár, reyndar mjög góður 10 bit TN panel en samt !
Re: Er þetta góður skjár?
Sent: Fim 04. Jan 2018 17:14
af einarn
Er með þennan. Flottur 1440p ips 144hz! Er allveg í skýjunum eftir að hafa keypt hann.
http://kisildalur.is/?p=2&id=3484
Eins og @Andriki segir. Þá eru 4k skjáir ekki góðir fyrir leiki. Það segja flestir að 1440p sé optimal fyrir leiki.