Síða 1 af 1
..
Sent: Mið 03. Jan 2018 17:12
af i77800k
.
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Mið 03. Jan 2018 18:47
af pepsico
Radiatorinn í CPU_FAN og pumpuna í hvaða tengi sem er. Ert með þetta rétt tengt.
Sama hvernig þú tengir þetta mun vélin aldrei fatta að viftan sé dauð ef hún deyr (svo ég viti).
Tölvan mun bara drepa á sér við hitatölurnar í load ef kælikerfið hættir að virka að einhverju leyti.
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Mið 03. Jan 2018 19:27
af worghal
eins og ég hef alltaf lesið þetta, þá á pumpan að vera í cpu_fan
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Mið 03. Jan 2018 20:39
af pepsico
Ég held að það sé hætta á því að pumpan fái breytilegan straum (eftir örgjörvaálagi) ef maður lætur hana í CPU_FAN, allavega ef maður stillir hana þá ekki handvirkt í að vera í stanslausum fullum kraft, og það myndi skerða ævi pumpunnar að fá breytilegan straum.
Þá missir maður líka út að radiator viftan sé að aðlaga sig að álagi sem er aðlaðandi hegðun.
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Fim 04. Jan 2018 00:37
af worghal
pepsico skrifaði:Ég held að það sé hætta á því að pumpan fái breytilegan straum (eftir örgjörvaálagi) ef maður lætur hana í CPU_FAN, allavega ef maður stillir hana þá ekki handvirkt í að vera í stanslausum fullum kraft, og það myndi skerða ævi pumpunnar að fá breytilegan straum.
Þá missir maður líka út að radiator viftan sé að aðlaga sig að álagi sem er aðlaðandi hegðun.
samt ekki, en bæklingurinn fyrir h55 segir "Connect the pump power connector to any available 3-pin or 4-pin fan header on the motherboard."
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Fim 04. Jan 2018 05:52
af DJOli
pepsico skrifaði:Ég held að það sé hætta á því að pumpan fái breytilegan straum (eftir örgjörvaálagi) ef maður lætur hana í CPU_FAN, allavega ef maður stillir hana þá ekki handvirkt í að vera í stanslausum fullum kraft, og það myndi skerða ævi pumpunnar að fá breytilegan straum.
Þá missir maður líka út að radiator viftan sé að aðlaga sig að álagi sem er aðlaðandi hegðun.
Ég tel gífurlega litlar líkur á því að radiator viftan fari á fullan hraða þar sem þú ert með vökvakælingu á örgjörvanum, ef mér skjátlast ekki. Það sem þriggja pinna tengið fyrir örgjörvann gerir, er að hækka hraðann á örgjörvaviftunni þegar örgjörvinn hitnar, og þá til að reyna að halda honum köldum. En ef þú ert með svona klárlega viðeigandi kælingu, þá ætti hann ekki að hitna neitt af viti.
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Fim 04. Jan 2018 11:38
af pepsico
Með því að tengja pumpuna sjálfa í CPU_FAN tengið erum við að græða ekkert og tapa tvennu, annars vegar endingu pumpunnar og hins vegar feedbackið milli hitastigs og hávaðamyndunar.
Með því að tengja pumpuna í hvaða annað tengi sem er og setja viftuna á radiatornum í CPU_FAN græðum við feedbackið milli hitastigs og hávaðamyndunar en töpum engu.
http://forum.corsair.com/v3/showthread.php?t=168801
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Fim 04. Jan 2018 16:34
af jonsig
Hjá mér með Z270 Gigabyte er með óljósum hætti hægt að sjá úr manualinu að 2 headerar þola að knýja svona apparat max 2A minnir mig. Ef þú tengir þetta í standard Cpu 500-1000mA header þá geturu grillað driverinn fyrir þennan tiltekna header.
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Fim 04. Jan 2018 16:44
af jonsig
pepsico skrifaði:Ég held að það sé hætta á því að pumpan fái breytilegan straum (eftir örgjörvaálagi) ef maður lætur hana í CPU_FAN, allavega ef maður stillir hana þá ekki handvirkt í að vera í stanslausum fullum kraft, og það myndi skerða ævi pumpunnar að fá breytilegan straum.
Þá missir maður líka út að radiator viftan sé að aðlaga sig að álagi sem er aðlaðandi hegðun.
Þú gerir þér grein fyrir að þessi móðurborð í dag geta spennustýrt viftum sem og PWM stjórnað þeim. Ég hugsa að PWM stýring dragi ekkert úr endingunni fyrr en þú nærð mjög lágu PWM sem er kannski ekki hægt á móðurborð user friendly pwm stýringu. Þar að segja segulsviðið í vindingunum nær að falla það mikið áður en nýr kassapúls kemur og er nógu lengi til að leyfa vindingum að hitna í réttri víxlverknun.
Spennustýrð vifta nær ekki þessum skemmandi áhrifum nema eitthvað sé mikið bilað í móðurborðinu.
Ég hugsa að legan skemmist áður, eða einhver verksmiðjugalli láti sjá sig. Annars góð pæling hjá þér, sem á kannski betur heima í stórum iðnaðar mótorum.
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Fim 04. Jan 2018 18:03
af pepsico
Ef þú opnar slóðina sem ég sendi þá er þar starfsmaður Corsair að segja að spenna undir 12V muni skerða endingu pumpunnar.
Þ.a.l. er ekki góð ákvörðun að hafa pumpuna tengda með 3-pin tengi í tengi sem mun sjálfkrafa spennustýra henni sbr. CPU_FAN því þegar örgjörvinn er ekki við hátt hitastig mun spennan vera langt undir 12V og aldrei stöðug.
CPU_FAN er því versta valið, og ásamt CPU_OPT í rauninni eina lélega valið, ef þú stillir það ekki handvirkt eftirá að vera alltaf í 12V.
Ef það væri 4-pin tengi á þessari pumpu þá værirðu á réttum slóðum því á 4-pinna PWM tengjum er spennan jú alltaf 12V.
Re: h55 pumpa 3pin- tengist hvar??
Sent: Fös 05. Jan 2018 00:06
af jonsig
Já sæll. Ég að misskilja hèlt að þú værir að tala um vifturnar lol, skrítið að þessar pumpur noti ekki bara 4xMolex tengi.
Annars sniðugt að nota eitthvað 2Amper tengi ef það finnst og stilla PWM á 1/1 high.