Síða 1 af 2
Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fös 15. Des 2017 14:28
af bixer
Ég veit ekki alveg með þetta nafn á þræðinum, pælingin er semsagt hvaða coin menn eru að fylgjast með, hvort sem þau séu vanmetin eða gætu orðið verðmæt.
Ég allavega er að fylgjast með nokkrum coins í þessari röð. væri áhugahvert að fá að vita hvað aðrir eru að hugsa.
ATH: framtíðarvirði er bara ágiskun hjá mér. Ég er ekki að mæla með neinu, bara að reyna að vekja upp umræðu.
ég reyni að miða við framtíðarvirði 2018. því ég tel að 2018 verði altcoin vöxtur.
Nafn:Electroneum(ETN)
Núvirði: $0,07
Framtíðarvirði:$0,5+
Ástæður: mikið hype í kringum þetta coin, mér finnst það samt ekki vera að koma með neinar nýjar lausnir. Hefur líka reynst mér vel að geyma coin sem eru mest profitable að minea.
Gallar:bara á Cryptopia...
Nafn: Vertcoin(VTC):
Núvirði: $7,7
Framtíðarvirði:$5-20
Ástæður: tók stórt stökk um daginn og vakti mikla athygli. Ég keypti nokkur stykki á sirka 3 dollara stykkið.
Gallar:búið að vera óstöðug
Nafn:Monero(XMR):
Núvirði:$306
Framtíðarvirði:$?-500
Ástæður: Fólk er hrifið af nafninu, og það er búið að ná ákveðinni festu á markaðnum.
Nafn:Litecoin(LTC)
Núvirði:$295
Framtíðarvirði:$500
Ástæður:verð er ekki í samræmi við bitcoin, næst þekktasta coinið og á inni vöxt eftir ris bitcoin undanfarið.
Coin sem ég veit ekki með:
IOTA:Missti af því þegar það var "ódýrt" finnst ólíklegt að það sé áhættunar virði eins og er
LIFE:hástökkvari með gott nafn en virðist ekki hafa neitt annað
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fös 15. Des 2017 15:18
af svanur08
En hvað með Gull coin?
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fös 15. Des 2017 15:46
af Mug
Ég er að veðja á Stratis
$9.75 USD
0.00054954 BTC
Hafa gert frábæra hluti á árinu og 2018 roadmapið lítur vel út.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fös 15. Des 2017 20:17
af Sallarólegur
Elska þennan þráð!
Ég hef mikla trú, bæði á BTC og BCH.
Ég myndi alveg veðja á top 5 coins núna fyrir long runnið Bitcoin, Eth, Ripple, Btccash, Litecoin. Karfa af þessum stærstu ætti alveg að standa vel undir sér.
Þarf að skoða litlu altcoins betur - hverjir verða líklegir hástökkvarar.
Verst hvað það þetta eru mikil speculations, en ég hef trú á þessari tækni til framtíðar.
Hvar er hægt að versla með litlu myntirnar, nokkuð safe - frá Íslandi?
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fös 15. Des 2017 20:55
af KRASSS
Alltaf gott ad eiga skitnog af Doge sma grin og alvara er alltaf gott,
sem eg er ad fylgjast med eru NXT,Ardor,ETN,XMR, KMD og ETH,
Raiblocks gaeti lika verid eitthvad, TRANSACTION A MINUTU!!!!!!!!!!!! thats future shit
PS
Maeli med ad folk noti Shapeshift.io og haldi ser fra exchanges mikid af theim sem byggjast undir Tether(USDT) sem er mjog liklega [SCAM]
Shapeshift tharftu ekki ad vera med account bara addressu a walletid sem thig langar ad faera af og addressu a coinid sem thu vilt
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Þri 16. Jan 2018 00:46
af dawg
Bömp á þetta, einhverjir spámenn? Sjálfur með ADA XRP og RDD í sigtinu. Væri gaman að heyra hvað aðrir eru að skoða.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Þri 16. Jan 2018 12:58
af KRASSS
Ein spurning samt, er folk ekkert ad skoda projectin og lesa white papers bakvid coinin, erudi bara a reddit og skoda mesta hypeid og vona thad besta?
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Þri 16. Jan 2018 15:22
af bixer
KRASSS skrifaði:Ein spurning samt, er folk ekkert ad skoda projectin og lesa white papers bakvid coinin, erudi bara a reddit og skoda mesta hypeid og vona thad besta?
Mér finnst ég þurfa að gera bæði. Ef hypeið er ekki til staðar þá skiptir white paper eða fólkið á bak við coinið litlu máli. Ég ætla að láta XRP alveg vera eftir að hafa skoðað það þó að það sé nóg hype í kringum það. Mögulega myndi ég stökkva á það í stuttann tíma ef það heldur áfram að falla eins og í dag.
Ég er í viðskiptafræðinámi og hef haft gaman af því að nota "hlutabréfagreiningu" á rafmyntirnar,
https://walletinvestor.com/forecast þetta er nálægt því sem ég hef fengið út. En ég fer ekki eftir þessu. Ég get ekki séð að það sé hægt að nota sömu tól og í öðrum fjárfestingum.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Mið 17. Jan 2018 11:11
af everdark
bixer skrifaði:Ég er í viðskiptafræðinámi og hef haft gaman af því að nota "hlutabréfagreiningu" á rafmyntirnar,
https://walletinvestor.com/forecast þetta er nálægt því sem ég hef fengið út. En ég fer ekki eftir þessu. Ég get ekki séð að það sé hægt að nota sömu tól og í öðrum fjárfestingum.
Hvaða lógík liggur að baki þess að nota "hlutabréfagreiningu" á gjaldmiðla? Slíkar aðferðir ganga almennt út á að núvirða arðgreiðslugetu til framtíðar - gjaldmiðlar bera ekki arð
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Mið 17. Jan 2018 13:45
af bixer
Það er ástæða fyrir því að ég var með "hlutabréfagreiningu" í gæsalöppum. Ég notaði þau tól sem ég get notað á rafmyntir. Hlutabréfagreining er oftast í mörgum skrefum og ég get ekki séð að þú þurfir/eigir að fara í þau öll. Þú ert væntanlega að tala um fundamental greiningu en ég er að horfa á technical hliðina þar sem gröf eru aðalega notuð(eins og í linknum). En það þýðir ekki að þú þurfir að stoppa þar og að fara eftir hráum tölum væri bara heimskulegt.
Vandamálið með rafmyntir er að þær eru ekki gjaldmiðlar, ekki hlutabréf en hvað?
þó þær beri ekki arð þá er hægt að áætla vöxt út frá fortíð. Menn hafa samt talað um að rafmyntir fari ekki eftir sömu lögmálum og aðrar fjárfestingar en ég er ekki búinn að mynda mér skoðun á því
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Mið 17. Jan 2018 14:43
af KristinnK
Bitcoin líkist að mínu mati mest Pyramid eða Ponzi scheme. ,,Ávöxtun" fyrri ,,fjárfesta" felst í því að nýjir ,,fjárfestar" eru tilbúnir til að borga hærra verð en hinir fyrru vegna þess að þeir halda að verðið muni halda áfram að hækka. Ef fólk hættir að vilja borga ennþá hærra verð, það er hætta að trúa að næsti maður á eftir þeim muni borga ennþá hærra verð, mun verðið hætta að hækka. Og ef það hættir að hækka munu flestir selja (vegna þess eins og annar hér að ofan réttilega bennti á þá er Bitcoin ekki verðbréf, það gefur ekki af sér hagnað vegna einhvers reksturs). Og ef einhverjir byrja að selja fer verðið að lækka, og ef verðið lækkar vilja allir selja og ,,verðgildi" Bitcoin mun hrapa. Og ólíkt gjaldmiðlum með ríkisstjórn á bakvið sig, verðbréf með rekstur á bakvið sig, etc. þá hefur Bitcoin ekkert sem mun stoppa þetta hrap og verðgildið mun bókstaflega gufa upp.
Þetta er klassísk bóla, hún mun halda áfram að þenjast um einhvern tíma, og þeir sem kaupa og selja áður en bólan springur munu ná að hafa einhvern pening af þeim sem komu seinna inn í leikinn. En rétt eins og með Pyramid og Ponzi scheme þá takmarkast þetta við einhverja stærð peninga þeirra sem eru tilbúnir til að taka þátt í þessu, og þegar þeirri stærð er náð mun bólan springa.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Mið 17. Jan 2018 15:15
af Sallarólegur
KristinnK skrifaði:Bitcoin líkist að mínu mati mest Pyramid eða Ponzi scheme. ,,Ávöxtun" fyrri ,,fjárfesta" felst í því að nýjir ,,fjárfestar" eru tilbúnir til að borga hærra verð en hinir fyrru vegna þess að þeir halda að verðið muni halda áfram að hækka. Ef fólk hættir að vilja borga ennþá hærra verð, það er hætta að trúa að næsti maður á eftir þeim muni borga ennþá hærra verð, mun verðið hætta að hækka.
Veistu hvað blockchain er og út á hvað cryptocurrencies ganga út á?
Þú ert basically að kalla öll hlutabréf pyramid eða ponzi scheme.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Mið 17. Jan 2018 15:34
af g0tlife
Hvar væri best að kaupa í svona ef maður vildi ? Núna getur maður leikið sér á heimabankanum sínum en ég veit ekki hvar væri örugt að prófa kaupa eitthvað af þessu
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Mið 17. Jan 2018 15:34
af bixer
Sallarólegur skrifaði:KristinnK skrifaði:Bitcoin líkist að mínu mati mest Pyramid eða Ponzi scheme. ,,Ávöxtun" fyrri ,,fjárfesta" felst í því að nýjir ,,fjárfestar" eru tilbúnir til að borga hærra verð en hinir fyrru vegna þess að þeir halda að verðið muni halda áfram að hækka. Ef fólk hættir að vilja borga ennþá hærra verð, það er hætta að trúa að næsti maður á eftir þeim muni borga ennþá hærra verð, mun verðið hætta að hækka.
Veistu hvað blockchain er og út á hvað cryptocurrencies ganga út á?
Þú ert basically að kalla öll hlutabréf pyramid eða ponzi scheme.
tvær gamlar og góðar bólur, maður sér ekki mikið frá þessum fyrirtækjum í dag.
Fallið undanfarna daga er staðfesting fyrir sumum um að þetta sé bóla eða scam, en það gæti líka verið að verðið sé bara að leiðréttast. Vöxturinn undanfarið er ekki eðlilegur, líklega tilkominn vegna þess að allir ætluðu að græða á bitcoin. fólk var hrætt um að missa af og er núna hrætt við að tapa.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Mið 17. Jan 2018 15:36
af GullMoli
Virkilega fyndið að fylgast með r/bitcoin
Allir að úthúða hvort öðrum sem vitleysingum fyrir að vita ekki hvernig hitt og þetta virkar þegar þeir sjálfir hafa eflaust enga hugmynd um hvað þeir eru að tala. Lang stærsti hluti þeirra sem eru í þessu eru þarna í þeim tilgangi að græða meiri "raunpening", enda ertu ekkert að fara versla neitt að viti með rafmynt.
Í þeim pælingum mætti kannski helst líkja þessu við samblöndu af hlutabréfa-gjaldeyrisbraski, nema á ótrúlega viðkvæmum markaði. Staðirnir sem þú stundar viðskiptin þín eru varla öryggir, transfer tímar geta verið nokkrir dagar (sem er nóg til að helminga eða tvöfalda gengið) ofl.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Mið 17. Jan 2018 16:24
af Haukursv
Bólur eru ekki það sama og scam, það er fullkomnlega eðlilegt að markaðurinn leiðrétti sig þegar hann hefur vaxið svona ört, bitcoin hefur átt þónokkur bólutímabil nú þegar en það heldur alltaf áfram á endanum. Tæknin er áhugaverð og mun eflaust spila stórt hlutverk í framtíðinni, hvortsem það verður í gegnum gjaldmiðla eins og BTC og platforma eins og ETH eða eitthvað allt annað. Eins og með flestar áhættufjárfestingar á maður ekki að fjárfesta meiru en maður tímir að tapa. Svo er bara að bíða og hugsa sem minnst um þetta (nema þú sért að reyna trade-a aktívt sem er erfiður leikur að vinna þegar markaðurinn verður bearish). Vorkenni aðallega fólki sem veit ekkert um þetta og keypti í des á toppnum til að græða og er núna að panic selja. Oh well.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Mið 17. Jan 2018 17:19
af Sallarólegur
g0tlife skrifaði:Hvar væri best að kaupa í svona ef maður vildi ? Núna getur maður leikið sér á heimabankanum sínum en ég veit ekki hvar væri örugt að prófa kaupa eitthvað af þessu
Kaupir öruggt
http://www.bitpanda.com og færa það yfir á
https://www.ledgerwallet.com/products/ledger-nano-s en getur notað
http://www.shapeshift.io til þess að breyta á milli coins.
Margir kaupa ETH til þess að komast inn í leikinn vegna hárra færslugjalda á BTC.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fim 18. Jan 2018 11:30
af everdark
bixer skrifaði:Vandamálið með rafmyntir er að þær eru ekki gjaldmiðlar, ekki hlutabréf en hvað?
þó þær beri ekki arð þá er hægt að áætla vöxt út frá fortíð. Menn hafa samt talað um að rafmyntir fari ekki eftir sömu lögmálum og aðrar fjárfestingar en ég er ekki búinn að mynda mér skoðun á því
Rafmyntir eiga ekkert skylt við hlutabréf, það er á hreinu. En hvað eru rafmyntir annað en gjaldmiðlar? Felst eitthvað annað virði í þeim en getan til að færa verðmæti á milli aðila?
Sallarólegur skrifaði:Veistu hvað blockchain er og út á hvað cryptocurrencies ganga út á?
Þú ert basically að kalla öll hlutabréf pyramid eða ponzi scheme.
Rafmyntir eiga ekkert skylt við hlutabréf - þetta lýsir eintómri vanþekkingu.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fim 18. Jan 2018 12:33
af Sallarólegur
everdark skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Veistu hvað blockchain er og út á hvað cryptocurrencies ganga út á?
Þú ert basically að kalla öll hlutabréf pyramid eða ponzi scheme.
Rafmyntir eiga ekkert skylt við hlutabréf - þetta lýsir eintómri vanþekkingu.
Flott hjá þér að taka svarið mitt úr samhengi og koma með eitthvað svar sem tengist því sem ég sagði ekki neitt
Þessi lýsing á mjög vel við hlutabréf:
KristinnK skrifaði:,,Ávöxtun" fyrri ,,fjárfesta" felst í því að nýjir ,,fjárfestar" eru tilbúnir til að borga hærra verð en hinir fyrru vegna þess að þeir halda að verðið muni halda áfram að hækka. Ef fólk hættir að vilja borga ennþá hærra verð, það er hætta að trúa að næsti maður á eftir þeim muni borga ennþá hærra verð, mun verðið hætta að hækka. Og ef það hættir að hækka munu flestir selja (vegna þess eins og annar hér að ofan réttilega bennti á þá er Bitcoin ekki verðbréf, það gefur ekki af sér hagnað vegna einhvers reksturs). Og ef einhverjir byrja að selja fer verðið að lækka, og ef verðið lækkar vilja allir selja
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fim 18. Jan 2018 12:40
af halldorjonz
Sallarólegur skrifaði:everdark skrifaði:

Haha hvernig er hann að taka svar þitt úr samhengi? Hann er bara svara tilbaka við því sem þú sagðir (sem var mjög vitlaust.) , hárétt hjá honum
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fim 18. Jan 2018 12:49
af everdark
Sallarólegur skrifaði:everdark skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Veistu hvað blockchain er og út á hvað cryptocurrencies ganga út á?
Þú ert basically að kalla öll hlutabréf pyramid eða ponzi scheme.
Rafmyntir eiga ekkert skylt við hlutabréf - þetta lýsir eintómri vanþekkingu.
Flott hjá þér að taka svarið mitt úr samhengi og koma með eitthvað svar sem tengist því sem ég sagði ekki neitt
Þessi lýsing á mjög vel við hlutabréf:
KristinnK skrifaði:,,Ávöxtun" fyrri ,,fjárfesta" felst í því að nýjir ,,fjárfestar" eru tilbúnir til að borga hærra verð en hinir fyrru vegna þess að þeir halda að verðið muni halda áfram að hækka. Ef fólk hættir að vilja borga ennþá hærra verð, það er hætta að trúa að næsti maður á eftir þeim muni borga ennþá hærra verð, mun verðið hætta að hækka. Og ef það hættir að hækka munu flestir selja (vegna þess eins og annar hér að ofan réttilega bennti á þá er Bitcoin ekki verðbréf, það gefur ekki af sér hagnað vegna einhvers reksturs). Og ef einhverjir byrja að selja fer verðið að lækka, og ef verðið lækkar vilja allir selja
Verð hlutabréfa getur vissulega stjórnast af óraunhæfum væntingum. Það er hinsvegar reginmunur á þessu hvað rafmyntir og hlutabréf varðar, þ.s. fyrirtæki skapa verðmæti fyrir eigendur sína, þ.e. væntingar á hlutabréfamarkaði stjórnast af arðgreiðslugetu fyrirtækja til frambúðar - hvort sem væntingarnar eru óraunhæfar eða ekki, þá byggja þær í það minnsta á væntingum um sköpun verðmæta. Rafmyntir skapa ekki verðmæti, önnur en ábatann af því að geta flutt verðmæti á milli aðila! Af því leiðir að spákaupmennska með rafmyntir byggist einungis á því hvað þú heldur að næsti maður sé til í að greiða fyrir þessi verðmæti - hefur virði ábata þess að geta flutt verðmæti á milli aðila með BTC 2300-faldast frá 2012? (5$ -> 11,500$) Ég bara spyr.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fim 18. Jan 2018 12:54
af bixer
everdark skrifaði:bixer skrifaði:Vandamálið með rafmyntir er að þær eru ekki gjaldmiðlar, ekki hlutabréf en hvað?
þó þær beri ekki arð þá er hægt að áætla vöxt út frá fortíð. Menn hafa samt talað um að rafmyntir fari ekki eftir sömu lögmálum og aðrar fjárfestingar en ég er ekki búinn að mynda mér skoðun á því
Rafmyntir eiga ekkert skylt við hlutabréf, það er á hreinu. En hvað eru rafmyntir annað en gjaldmiðlar? Felst eitthvað annað virði í þeim en getan til að færa verðmæti á milli aðila?
Ég er ekki sammála þér að rafmyntir séu gjaldmiðlar. Ég hef ekki ennþá séð rafmynt sem stenst skilgreininguna á gjaldmiðli
Hugmyndin á bakvið rafmyntir er líka verðmæti. Tesla til dæmis er að tapa peningum daglega, en hlutabréfin eru að rjúka upp á sama tíma. Fyrir mér snýst þetta ekkert endilega um að skilgreina rafmynt sem eitthvað fyrirbæri, þetta er ný tækni og það sem ég hef allavega verið að reyna að benda á er að með nýrri tækni fylgir sveifla í verði.
það er oft búið að dæma bitcoin dauðvona, kalla það scam og margt annað. Enda tel ég að eitthvað nýrra coin muni taka við af bitcoin eftir nokkur ár.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fim 18. Jan 2018 13:05
af everdark
bixer skrifaði:Ég er ekki sammála þér að rafmyntir séu gjaldmiðlar. Ég hef ekki ennþá séð rafmynt sem stenst skilgreininguna á gjaldmiðli
Það er auðvitað önnur og meiri umræða og ég er sammála því. Ég get t.a.m. ekki fengið launin mín greidd í BTC né greitt skattana mína. Eina virði BTC, í augnablikinu, er að geta fært verðmæti á milli aðila og því kalla ég það gjaldmiðil. Það þarf því að verðmeta BTC út frá væntum ábata þess að geta notað hann sem gjaldmiðil í framtíðinni.
bixer skrifaði:Hugmyndin á bakvið rafmyntir er líka verðmæti. Tesla til dæmis er að tapa peningum daglega, en hlutabréfin eru að rjúka upp á sama tíma. Fyrir mér snýst þetta ekkert endilega um að skilgreina rafmynt sem eitthvað fyrirbæri, þetta er ný tækni og það sem ég hef allavega verið að reyna að benda á er að með nýrri tækni fylgir sveifla í verði.
Þetta er góður punktur. Virði Tesla byggist á væntingum um framtíðararðgreiðslugetu - á hverju byggir virði BTC? Hlýtur að byggjast á virðisþróun ábata þess að geta notað BTC til millifærslu verðmæta í framtíðinni.
bixer skrifaði:það er oft búið að dæma bitcoin dauðvona, kalla það scam og margt annað. Enda tel ég að eitthvað nýrra coin muni taka við af bitcoin eftir nokkur ár.
Ef nýrri mynt tekur við af BTC eftir nokkur ár - hvert er þá vænt virði BTC í dag? Vænt virði fyrirtækis sem hefur ekki arðgreiðslugetu til frambúðar er 0 (+ upplausnarvirði).
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fim 18. Jan 2018 13:07
af hallizh
VEN & XRB.
Re: Framtíðarcoin-spámennskuþráður
Sent: Fim 18. Jan 2018 13:46
af bixer
everdark skrifaði:
bixer skrifaði:Hugmyndin á bakvið rafmyntir er líka verðmæti. Tesla til dæmis er að tapa peningum daglega, en hlutabréfin eru að rjúka upp á sama tíma. Fyrir mér snýst þetta ekkert endilega um að skilgreina rafmynt sem eitthvað fyrirbæri, þetta er ný tækni og það sem ég hef allavega verið að reyna að benda á er að með nýrri tækni fylgir sveifla í verði.
Þetta er góður punktur. Virði Tesla byggist á væntingum um framtíðararðgreiðslugetu - á hverju byggir virði BTC? Hlýtur að byggjast á virðisþróun ábata þess að geta notað BTC til millifærslu verðmæta í framtíðinni.
Persónulega hef ég meiri hag af rafmyntum en fyrir nokkrum árum og mér finnst ekki vera eins mikil áhætta í að geyma peninga í rafmyntum eins og fyrir nokkrum árum.
hluti af ástæðu fyrir vexti á btc undanfarið er að það er auðveldasta leiðin til að kaupa aðrar myntir, eins og er er btc besta skiptimyntin. EInnig eins og hjá hlutabréfum þá hafa fréttir af þróun allstaðar í heiminum áhrif á verð btc
everdark skrifaði:
Ef nýrri mynt tekur við af BTC eftir nokkur ár - hvert er þá vænt virði BTC í dag? Vænt virði fyrirtækis sem hefur ekki arðgreiðslugetu til frambúðar er 0 (+ upplausnarvirði).
Mögulega mun bitcoin vera geymsla á stórum upphæðum eða þróast í eitthvað annað. En ég myndi ekki mæla með því að fjárfesta í btc í dag. finnst það vera orðið of mikil áhætta og ákveðnir gallar komnir fram vegna verðs. Ég seldi btc á 75 þúsund stykkið fyrir nokkrum árum og fannst gæjinn sem keypti það af mér vera geðveikur fyrir að kaupa á "toppnum"