Síða 1 af 1
PÆLING: Fer verðið á RAM eitthvað að lækka á næstunni?
Sent: Lau 19. Feb 2005 13:42
af Snorrmund
Var að spá í uppá grínið hvað 512mb 400mhz kubbur kostaði(alveg eins og ég er með núna) Þetta er Mushkin Basic Green 512mb á 9250 hjá start.is Sem mér finnst furðulegt því fyrir næstum ári(keypt í apríl) þá keypti ég mér svona minni alveg eins á Sjöþúsundtvöhundruð og eitthvað.. Hækkaði tveimur dögum seinna uppí 9250 og hefur ekki haggast síðan.
Bara smá pæling
er nú ekkert að spá í að kaupa.. Langar bara að kíkja hvort þetta lækki eitthvað
Sent: Lau 19. Feb 2005 14:11
af ponzer
Sent: Lau 19. Feb 2005 15:38
af hahallur
Nei dollarinn mun að öllum líkindum hækka í sumar, og það ætti að hafa einhver áhrif þó það sé fáránlegt.
Sent: Lau 19. Feb 2005 16:44
af Birkir
Það er lítið sem bendir til þess að dollarinn muni hækka mikið í sumar og ef hann myndi gera það þá sé ég ekki hverju það ætti að breyta, ekki lækkuðu þeir verðið þegar hann lækkaði?
Sent: Lau 19. Feb 2005 22:36
af skipio
Þetta finnst mér afskaplega merkilegt, gengispælingar á Vaktinni!
Allavega, uppáhalds blaðið mitt, The Economist, spáir því frekar að dollarinn muni veikjast frekar en að eflast og margir hagfræðingar eru á sama máli. Það þarf reyndar ekkert endilega að vera gott fyrir okkur ...
Annars hefur maður nú svona persónulega frekar áhyggjur af of sterkri stöðu krónunnar.
Sent: Lau 19. Feb 2005 22:47
af Zkari
Heyrði í fréttunum að dollarinn er ekkert að fara að styrkjast á næstunni vegna mikilla skulda BNA manna
Sent: Lau 19. Feb 2005 23:01
af MezzUp
Gaman fyrir okkur neytendurnar núna, en ætli þetta komi ekki bara í hausinn á okkur seinna?
Annars er bara að hamstra þangað til
Sent: Lau 19. Feb 2005 23:24
af hahallur
Ég var einmitt að spá í þessu, sjávarútvegurinn er allur í rugli því það fæst svo látt verð fyrir fiskinn.
Þeir liggja bara á bæn.
Annars þegar dollarinn fór uppí 130 kr um árið snarhækkaði allt, vegna lítillar samkeppnar á Íslandi voru þeir ekkert að lækka verið neytt allmennilega þó dollarinn hafi miknað um meira en 50% og sé búin að vera það nokk lengi.
Sent: Sun 20. Feb 2005 00:12
af Snorrmund
Já skil hvað þú meinar hahallur.. Annars er það með mig þar sem pabbi er á sjónum þá er gott að dollarinn hækki en samt ef ég ætla panta eitthvað frá usa þá er gott að hann lækki.. En annars er ég ekkert að fara að panta neitt frá usa þannig hann mætti alveg hækka mín vegna..
Sent: Sun 20. Feb 2005 00:39
af Dagur
gott fyrir neytendur, vont fyrir útflutning.
Sent: Sun 20. Feb 2005 13:04
af Daz
hahallur skrifaði:Ég var einmitt að spá í þessu, sjávarútvegurinn er allur í rugli því það fæst svo látt verð fyrir fiskinn.
Þeir liggja bara á bæn.
Á móti lækka greiðslur af erlendum lánum og olíukostnaðurinn ætti að lækka líka, það er ekki alslæmt þegar dollarinn lækkar (fyrir sjávarútveginn).
Sent: Sun 20. Feb 2005 13:42
af Pandemic
Ég spái kreppu á næstu árum
Allir fara og kaupa gull bara
Sent: Sun 20. Feb 2005 19:11
af gumol
Það er sama hver staðan verður, hún er alltaf slæm (miðað við það sem fjöldmiðlar segja).
Þannig er það bara og það mun því miður verða þannig.
Sent: Sun 20. Feb 2005 20:23
af Ragnar
Ég sá í kvöldfréttum að dolarinn væri ekkert að fara að hækka. Sökum þess að það færi svo mikill peningur í herinn og lán
. Kannski er ég að fara vitlaust með.
Sent: Sun 20. Feb 2005 20:36
af skipio
Ragnar skrifaði:Ég sá í kvöldfréttum að dolarinn væri ekkert að fara að hækka. Sökum þess að það færi svo mikill peningur í herinn og lán
. Kannski er ég að fara vitlaust með.
Sko, ertu þá ekki ánægður með að Dabbi og Dóri skyldu styðja innrásina í Írak og þar með stuðla að lægra gengi á dollaranum og hagstæðara verði á minniskubbum handa þér?
Sent: Mán 21. Feb 2005 13:45
af gnarr
verð á minnum eru búin að haldast næstum eins síðustu 2-3 árin.
Sent: Mán 21. Feb 2005 14:09
af Stutturdreki
skipio skrifaði:.. og þar með stuðla að lægra gengi á dollaranum og hagstæðara verði á minniskubbum handa þér?
Er það ekki alltaf þannig að ef Dollarinn lækkar þá er allt keypt af birgjum í Evrópu? (
Og þar af leiðandi verslað í öðrum gjaldeyri)
Sent: Mán 21. Feb 2005 14:27
af ponzer
Hann mun hækka eitthvað lítiðlega svo mun hann lækka ljótt aftur... Sem er bara betra fyrir okkur
Sent: Mán 21. Feb 2005 19:28
af wICE_man
Verð á minnum á eftir að standa að mestu í stað, þó tel ég líklegt að Low-latency minni lækki eitthvað með tímanum, sjáið bara Kingston HyperX minnin hjá tölvuvirkni.
Sent: Mið 23. Feb 2005 21:21
af Skippo
skipio skrifaði:Þetta finnst mér afskaplega merkilegt, gengispælingar á Vaktinni!
Allavega, uppáhalds blaðið mitt, The Economist, spáir því frekar að dollarinn muni veikjast frekar en að eflast og margir hagfræðingar eru á sama máli. Það þarf reyndar ekkert endilega að vera gott fyrir okkur ...
Annars hefur maður nú svona persónulega frekar áhyggjur af of sterkri stöðu krónunnar.
Þú ert ekki einn um það.
Fyndið (en samt ekki) hvernig bankarnir (og erlendir fjárfestar) geta leikið sér að Seðlabankanum. Eina ráðið er fyrir Seðlabankann er að hækka millibankavexti til að sporna við verðbólgu (vegna aukins fjármagns í umferð). Það leiðir síðan til þess að vaxtamunur á milli Íslands og annara landa eykst. Sem þýðir aftur að erlent fjármagn streymir til landsins. Það endar (flest) sem 90% húsnæðislán, þessir aurar enda í fasteignum á Íslandi. Ergo útlendingar eiga kumbaldana okkar
Síðan opna bankarnir útibú í Lux, Köben ofl. löndum og gera út á vaxtamuninn.
Glæsileg svikamilla!!
Sent: Mið 23. Feb 2005 23:15
af Gandalf
Pandemic skrifaði:Ég spái kreppu á næstu árum
Allir fara og kaupa gull bara
Kaupa frekar salt, enda er salt einhver stabílasta vara sem um getur
Sent: Fim 24. Feb 2005 09:23
af goldfinger
Verð á vinnsluminnum lækkar ekkert fyrr en það lækkar úti