Síða 1 af 1

Rippa af Vimeo

Sent: Lau 09. Sep 2017 16:35
af Hauxon
Ég hef verið að spá í að leigja video í gegnum Vimeo (um stangveiði). Leigan gildir í 2 daga en mig langar að geta rippað þetta til að eiga. Einhver hérna sem hefur gert þetta?

Re: Rippa af Vimeo

Sent: Lau 09. Sep 2017 16:36
af beatmaster
Eitthvað þarna sem að hjálpar þér?

https://www.google.com/search?q=downloa ... =firefox-b

Re: Rippa af Vimeo

Sent: Lau 09. Sep 2017 17:13
af Hauxon
Jú var búinn að gúggla. Vildi heyra hvort einhverjir héna mæltu með einhveju sérstöku.

Re: Rippa af Vimeo

Sent: Lau 09. Sep 2017 21:55
af kelirina
ég hef notast við þetta með góðum árangri bæði af youtube og vimeo

http://www.clipconverter.cc/

Re: Rippa af Vimeo

Sent: Lau 09. Sep 2017 22:14
af kiddi
Ef allt annað bregst, þá er alltaf hægt að notast við screen recorder eins og t.d. Camtasia eða OBS

Re: Rippa af Vimeo

Sent: Sun 10. Sep 2017 10:57
af Hauxon
kelirina skrifaði:ég hef notast við þetta með góðum árangri bæði af youtube og vimeo

http://www.clipconverter.cc/
Gallinn við þetta er að ég þarf að vera loggaður inn á Vimeo til að geta horft á þetta og þess vegna gengur ekki að sendi link eitthvert annað.

Ég setti inn extension í browserinn sem heitir Video DownloadHelper sem virkar, leyfir þér t.d. að velja ef það eru margar upplausnir í boði og saumar saman videóið hjá þjónustum (eins og Vimeo) sem kötta strauminn í marga pínu litla undirstrauma. Eini gallinn þar er að þeir setja QR kóða í hornið á videóinu (sem vísr á greiðslusíðu) nema þú donate-ir $28. ...sem ég er að melta hvort ég geri.

Re: Rippa af Vimeo

Sent: Sun 10. Sep 2017 18:26
af Risadvergur
Mögulega heimskuleg spurning í sumra augum en þar sem það er engin leið fyrir mig að vita þetta öðruvísi þá spyr ég bara :fly

Er ekki hægt að kaupa þetta myndband af vimeo ?

Og ef það er hægt, er ekki í boði að hlaða niður skránni ?

:oops: :oops:

Re: Rippa af Vimeo

Sent: Mán 11. Sep 2017 12:03
af Hauxon
Þetta er bara í boði sem 2 daga VOD eða að kaupa DVD.

Ég keypti bara licence af DownloadHelper. Samt ódýrara en að kaupa 1 DVD. :D