Síða 1 af 1
SATA 2??
Sent: Þri 08. Feb 2005 01:16
af Aimar
Nú þegar sata2 controlerarnir eru komnir út. þarf þá að kaupa nyja diska sem styðja þennan tvöfalda hraða eða eru gömlu sata diskarnir með getuna fyrir það? Annað, er einhver að nota raptor diska sem styðja þennan hraða og raida þá 0??
Sent: Þri 08. Feb 2005 09:16
af MezzUp
Nei, gömlu diskarnir styðja líklega ekki SATA II, en ég held að það skipti engu máli þar sem að harðir diskar eru ekki að fullnýta SATA I getuna, og bætir því SATA II ekki miklu uppá hraða.
Hinsvegar gæti NCQ bætt hraða eitthvað, en til þess að nýta NCQ þarftu bæði HD og controller(right?) sem að styður NCQ, þá annaðhvort SATA II eða SATA I+NCQ
Sent: Þri 08. Feb 2005 09:23
af gnarr
diskarnir verða EKKERT hraðari við þessu auka 150MBPS sem þeir fá í bandvídd, hinsvegar getur ncq hraðað þeim nokkuð.
Sent: Þri 08. Feb 2005 13:28
af CraZy
eru þá gömlu IDE hörðudiskarnir þá ornir gérsamlega úreltir

Sent: Þri 08. Feb 2005 20:50
af zaiLex
Getiði útskýrt svona once for all hvernig SATA er ekki hraðara þó þeir eru með meiri bandvídd því ég hef aldrei skilið þetta

.
Sent: Þri 08. Feb 2005 21:12
af Aimar
og er það ekki bara stærri diskarnir sem búa yfir NCQ tækni??
eða eru til 36gb. diskar sem hafa hana líka?
Sent: Þri 08. Feb 2005 21:39
af MezzUp
zaiLex skrifaði:Getiði útskýrt svona once for all hvernig SATA er ekki hraðara þó þeir eru með meiri bandvídd því ég hef aldrei skilið þetta

.
Mættir hugsa þetta svona;
5 bílar ferðast á veg þar sem að 8 akreinar eru í áttina sem að þeir eru að fara. Ef að þú myndir auka fjöldan af akreinum úr 8 í 15 væru bílarnir ekkert sneggri að komast þar sem að þeir eru bara 5 og taka því alltaf bara 5 akreinar. (vitaskuld gróf myndlíking)
Alveg eins þá vinna harðir diskar ekkert hraðar þótt að bandvíddinn á kaplinum sé aukin úr 133MB/s yfir í 150MB/s, ef að diskurinn sjálfur(snúningurinn á mótornum, segulhausinn sem les gögnin...) gefur bara frá sér t.d. 60MB/s
Vonandi að ég hafi gert mig nógu skiljanlegan
Sent: Þri 08. Feb 2005 23:28
af axyne
góð samlíking.
Sent: Þri 08. Feb 2005 23:30
af MezzUp
Er að fara að taka skriflega ökuprófið á morgun, það fyrsta sem mér datt í hug

Sent: Mið 09. Feb 2005 12:51
af Pandemic
Smá off topic
En ef það eru svona margar akreinar og lítið um bíla ertu þá ekki að kvetja til hraðaksturs

Sent: Mið 09. Feb 2005 13:16
af axyne
Pandemic skrifaði:Smá off topic
En ef það eru svona margar akreinar og lítið um bíla ertu þá ekki að kvetja til hraðaksturs

eru allt 50höhö opel corsur.