Síða 1 af 1
Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fim 08. Jún 2017 16:07
af g0tlife
Ég var að fá mér LG Oled 65'' og er alveg frábært sjónvarp EN ... Það er ekki hægt að nota Plex í því. Ég spurði gæjan virka sömu fídusar í þessu sjónvarpi eins og í samsung t.d. plex og hann sagði já. Viti menn ég get ekki downloadað því.
Ég er líklegur til að skila því og fá mér samsung því plex er bara svo þægilegt (þekki ekkert annað). Þannig að ég ætla gefa þessu sjéns og bið um allar hugmyndir sem þið eru með hvernig ég kem 2000+ GB bluray myndonum mínum í sjónvarpið.
Sjónvarpið er inn í stofu en PC inn í herbergi.
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fim 08. Jún 2017 16:25
af Viggi
Málið er með plex að það styður ekki öll þessi codec sem þetta er allt rippað á. Mín lausn að ég er með android box tengt við og kodi á því sem spilar allt 4k dótið sem maður nær í. Annars tengist universal media server fínt við samsung tækið mitt sem ég horfi á alla þættina mína á. gætir tékkað á því
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fim 08. Jún 2017 16:33
af sibbsibb
Playstation hefur líka stuðning fyrir Plex. Ég á samsung sjónvarp frá 2012 sem ég hef keyrt plex á í dágóðann tíma og mjög ánægður með það. Hef aldrei lent í neinu veseni með codea eða neitt slíkt sem ég man eftir. Algjörlega dýrka Plex
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fim 08. Jún 2017 16:38
af Viggi
sibbsibb skrifaði:Playstation hefur líka stuðning fyrir Plex. Ég á samsung sjónvarp frá 2012 sem ég hef keyrt plex á í dágóðann tíma og mjög ánægður með það. Hef aldrei lent í neinu veseni með codea eða neitt slíkt sem ég man eftir. Algjörlega dýrka Plex
Hefurðu testað einhverja .mkv fæla? er líka að reyna að spila 50 gig bíómynd og no luck. kodi kjamsar það nú í sig samt
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fim 08. Jún 2017 16:58
af g0tlife
Viggi skrifaði:Málið er með plex að það styður ekki öll þessi codec sem þetta er allt rippað á. Mín lausn að ég er með android box tengt við og kodi á því sem spilar allt 4k dótið sem maður nær í. Annars tengist universal media server fínt við samsung tækið mitt sem ég horfi á alla þættina mína á. gætir tékkað á því
Ég hef heyrt marga tala um kodi og allt það en er það ekki flókið ? Plexið var svo easy kveikja á þig, stimpla inn kóða frá TV í PC komið og ekkert meira vesen.
Ef kodi myndi virka þá auðvitað skoða það en eru góðar síður hvernig skal setja þetta upp eða þarf ég að kaupa tæknimann frá vaktinni
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fim 08. Jún 2017 17:44
af viddi
Búinn að prófa stilla tækið á UK, þurfti að gera það á 55" LG tækinu mínu til að fá Plex inn
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fim 08. Jún 2017 17:59
af Sallarólegur
Ég nota bara Chromecast og gæti ekki verið sáttari.
Nota svo þetta ef ég vil spila beint af tölvu. Netflix í símanum. BOOM.
https://chrome.google.com/webstore/deta ... lagl?hl=en
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fim 08. Jún 2017 19:27
af brain
Nota Smartshare í Oled TV, downloada og setja upp í PC.
http://www.lg.com/us/support/product-he ... 7120133847
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fim 08. Jún 2017 23:43
af odinnn
Menn eru eitthvað að tala um forrit sem heitir xPlay eða playz til að sneyða framhjá þessum webOS3 vandræðum, hef enga reynslu en þetta kemur upp eftir stutt gúggl. Plex er ekki fljótt að uppfæra/gefa út nýja spilara fyrir hin og þessi tæki og er það að mínu mati stærsti gallinn við Plex. Var með Plex á Samsung sjónvarpinu mínu og elskaði það að nota bara eina fjarstýringu til að stjórna öllu, núna er nota ég chromecast á annað sjónvarp (ekki mitt) og það er álíka þægilegt þar sem síminn er hvort sem er ávalt á svæðinu hvort sem er.
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fös 09. Jún 2017 09:49
af kizi86
Ef kodi er til fyrir þetta sjónvarp, þá geturru addað plexkodiconnect addoninu.. Alger snilld það addon. Kodi er svo mikil snilld líka, og óendanlega customizeable
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fös 09. Jún 2017 18:15
af g0tlife
Takk fyrir allt ég lærði mjög mikið. En ég lét sjónvarpið á UK í location og gat notað plex. Mjög ánægður en hvernig hefði apple TV staðið sig í þessu ?
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Fös 09. Jún 2017 18:36
af Hrotti
g0tlife skrifaði:Takk fyrir allt ég lærði mjög mikið. En ég lét sjónvarpið á UK í location og gat notað plex. Mjög ánægður en hvernig hefði apple TV staðið sig í þessu ?
Ég er með nokkur appletv í svefnherbergjunum hérna og er hæst ánægður með þau. Nota mikið plex, netflix, ufc og svo 365 appið.
Re: Myndir úr pc yfir í TV
Sent: Lau 10. Jún 2017 10:41
af sibbsibb
Viggi skrifaði:sibbsibb skrifaði:Playstation hefur líka stuðning fyrir Plex. Ég á samsung sjónvarp frá 2012 sem ég hef keyrt plex á í dágóðann tíma og mjög ánægður með það. Hef aldrei lent í neinu veseni með codea eða neitt slíkt sem ég man eftir. Algjörlega dýrka Plex
Hefurðu testað einhverja .mkv fæla? er líka að reyna að spila 50 gig bíómynd og no luck. kodi kjamsar það nú í sig samt
Mkv fælar virka fínt hjá mér. Aldrei átt í vandræðum með þá. Kannski er þetta of þung mynd fyrir það, hef ekkert reynt þessar stærðir... aðeins of stórt fyrir minn smekk