Síða 1 af 1

furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Fös 21. Apr 2017 12:35
af J1nX
Sælir.. ég er að lenda í því að þegar ég er að spila Battlegrounds (https://www.playbattlegrounds.com/main.pu) að þá fer geymsludiskurinn minn alltaf í 100% vinnslu og ég byrja að fá massívt fps drop eftir smáspilun.. skrítna við þetta er að leikurinn er ekki einu sinni installaður á geymsludiskinn heldur á leikja(steam) ssd diskinn minn (er með 1x ssd fyrir windows, 1x fyrir leiki og 2tb geymsludisk fyrir þætti/myndir/installs).. vitiði eitthvað hvað gæti verið að valda þessu og hvernig ég get lagað þetta?

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Fös 21. Apr 2017 13:38
af mind
Windows 10 rétt ?

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Fös 21. Apr 2017 13:42
af Hjaltiatla
Spurninga að prófa þetta.

Start >> Run >> Msconfig >> Services >> velja Hide All Microsoft services >> taka hak úr öllum service-um sem þú telur að séu að keyra í bakgrunninum án þess að þú fattir það.

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Fös 21. Apr 2017 13:57
af stebbi-
Er möguleiki á því að þú sért ekki með nógu mikið minni og ert að full nýta það?
Ef svo er þá er þetta líklegast page file að skrifa og lesa af disknum.

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Fös 21. Apr 2017 15:51
af Hjaltiatla
Oft er líka ágætt að tékka á DISM tólinu : https://technet.microsoft.com/en-us/lib ... 24869.aspx

Ég keyri oft upp þessa skipun ef það er vandamál með Windows image og til að repaire-a corruption

Kóði: Velja allt

dism /online /cleanup-image /restorehealth
Keyri síðan upp þessa skipun

Kóði: Velja allt

sfc /scannow
https://support.microsoft.com/en-us/hel ... stem-files

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Fös 21. Apr 2017 21:48
af J1nX
Þakka ykkur :) skoða þetta eftir næturvaktina :)

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Lau 22. Apr 2017 09:42
af J1nX
Hjaltiatla skrifaði:Oft er líka ágætt að tékka á DISM tólinu : https://technet.microsoft.com/en-us/lib ... 24869.aspx

Ég keyri oft upp þessa skipun ef það er vandamál með Windows image og til að repaire-a corruption

Kóði: Velja allt

dism /online /cleanup-image /restorehealth
Keyri síðan upp þessa skipun

Kóði: Velja allt

sfc /scannow
https://support.microsoft.com/en-us/hel ... stem-files
prófaði bæði og fann engar villur :) spurning hvort það geti verið að ég sé ekki með nóg minni eins og einn hérna fyrir ofan sagði :) (er með 8gíg)

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Lau 22. Apr 2017 11:04
af olihar
Hljómar eins og cache vandamál, stækkaði RAM-ið ef þú hefur tök á því.

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Lau 22. Apr 2017 13:02
af Olafurhrafn
Myndi mæla með því að slökkva á öllum forritum sem þú ert með í gangi og prófa að keyra bara leikinn, ef vandamálið leysist þá er þetta án efa cache issue og þá ætti meira vinnsluminni að leysa það.

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Lau 22. Apr 2017 22:01
af stebbi-
Í fyrra var ég sniðugur og sagði bara við fólk, "það er 2016 þannig þú þarft 16 gíg".
En annars er 16gb orðið lágmark fyrir þá sem eru að spila leiki og með Chrome í gangi. (smá skot á Chrome)

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Lau 22. Apr 2017 22:59
af Gunnar
stebbi- skrifaði:Í fyrra var ég sniðugur og sagði bara við fólk, "það er 2016 þannig þú þarft 16 gíg".
En annars er 16gb orðið lágmark fyrir þá sem eru að spila leiki og með Chrome í gangi. (smá skot á Chrome)
tja ég er með 8gb og oft með 20+ tabs opna i chrome og hef aðeins einusinni cappað minnið.

Re: furðulegt vandamál með hdd..

Sent: Lau 22. Apr 2017 23:30
af Revenant
Opntaðu Process Monitor, veldu Filter -> Filter og settu í filterinn "Path - begins with - d:\ (eða önnur slóð)"
Þá sérðu hvaða process er að lesa hvaða skrá á geymsludisknum.