Síða 1 af 1
Forn Farstölvuharðurdiskur
Sent: Fim 20. Apr 2017 18:03
af Perks
Sælir
Ég er með eldgamlan harðan disk úr fartölvu (Medion 95303) og vantar að bjarga myndum af honum og vantar aðstoð.
Hvernig tengi er þetta?

- Mynd1.PNG (266.84 KiB) Skoðað 788 sinnum
Datt strax í hug IDE en það er ekkert rafmagn sem tengist sérstaklega í diskinn þá. Er bara með sata docku og luma ekki á móðurborði með ide ef svo væri raunin.
Er eitthvað fyrirtæki sem getur náð gögnum af þessu með 0 fyrirvara á föstudegi sem þið vitið um eða þarf ég einfaldlega tímavél?
Diskurinn

- Mynd2.PNG (407.77 KiB) Skoðað 788 sinnum
Re: Forn Farstölvuharðurdiskur
Sent: Fim 20. Apr 2017 18:13
af Dúlli
Þetta er fartölvu ide, vantar bara millistykki.
Re: Forn Farstölvuharðurdiskur
Sent: Fim 20. Apr 2017 18:18
af Perks
Dúlli skrifaði:Þetta er fartölvu ide, vantar bara millistykki.
Ide í sata millistykki, það er of einfalt!
Takk höfðingi
Re: Forn Farstölvuharðurdiskur
Sent: Fim 20. Apr 2017 18:23
af Dúlli
Perks skrifaði:Dúlli skrifaði:Þetta er fartölvu ide, vantar bara millistykki.
Ide í sata millistykki, það er of einfalt!
Takk höfðingi
Ekki alveg, þig vantar svona.
https://ae01.alicdn.com/kf/HTB1YDQcOpXX ... b-font.jpg
Re: Forn Farstölvuharðurdiskur
Sent: Fim 20. Apr 2017 18:24
af kizi86
Re: Forn Farstölvuharðurdiskur
Sent: Fim 20. Apr 2017 18:40
af Perks
ég óttaðist mest að mig vantaði svona
Re: Forn Farstölvuharðurdiskur
Sent: Fös 21. Apr 2017 10:16
af Klemmi
Ég er með svona Manhattan græju sem þú getur fengið lánaða í einhverja daga/vikur, ef þú nennir að skutlast eftir henni og skutla henni heim hingað í Hafnarfjörðinn þegar þú ert búinn

Re: Forn Farstölvuharðurdiskur
Sent: Fös 21. Apr 2017 23:57
af Perks
Klemmi skrifaði:Ég er með svona Manhattan græju sem þú getur fengið lánaða í einhverja daga/vikur, ef þú nennir að skutlast eftir henni og skutla henni heim hingað í Hafnarfjörðinn þegar þú ert búinn

Fallega boðið en ég rauk til og keypti svona. Alltaf gaman að sjá hvað það er mikið kammeraterí hér á vaktinni