Síða 1 af 1

Loftblásari vs canned air ?

Sent: Sun 26. Mar 2017 21:09
af Hnykill
Hef verið að sjá um tölvur fyrir fjölskylduna og vini og svona og þarf reglulega að vera rykhreinsa og annað. sá þennann blásara hérna .. https://www.amazon.com/Performance-Tool ... air+blower og var að spá hvort að það væri ekki bara skynsamlegra að fjárfesta í einum svona í stað þess að vera alltaf að kaupa eitthvað þrýstiloft á litlum brúsum ? ..ekki eins og þetta sé dýr blásari. veit að hann er 120v og örugglega með Amerísk rafmagnsplugg, en er ekki alveg hægt að kaupa breytistykki fyrir það bara ?

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Sun 26. Mar 2017 21:32
af svanur08
Ég keipti mér þennan, svaka góð græja mikill kraftur í þessu. ----> https://www.amazon.co.uk/gp/product/B00 ... UTF8&psc=1

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Sun 26. Mar 2017 22:00
af Hnykill
svanur08 skrifaði:Ég keipti mér þennan, svaka góð græja mikill kraftur í þessu. ----> https://www.amazon.co.uk/gp/product/B00 ... UTF8&psc=1
Svo þetta er að virka vel við rykhreinsun á tölvum ?

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Sun 26. Mar 2017 22:26
af svanur08
Hnykill skrifaði:
svanur08 skrifaði:Ég keipti mér þennan, svaka góð græja mikill kraftur í þessu. ----> https://www.amazon.co.uk/gp/product/B00 ... UTF8&psc=1
Svo þetta er að virka vel við rykhreinsun á tölvum ?
Já svínvirkar.

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Sun 26. Mar 2017 23:02
af jonsig
Eina vesenið með svona rafmagnsblásara er þegar smá olía kemur með blástrinum

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Sun 26. Mar 2017 23:09
af arons4
jonsig skrifaði:Eina vesenið með svona rafmagnsblásara er þegar smá olía kemur með blástrinum
Hægt að leysa það að mestu með því að hleypa uppsafnaðri olíu af áður en maður byrjar. Líka hægt að fá inline rakagleypir framaná venjulegar loftpressur(eins og er á airbrush græjum). Annars finnst mér líklegt að þessi sem svanur08 linkaði æli ekki út mikilli olíu þar sem hann er jú auglýstur fyrir raftæki.

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Mán 27. Mar 2017 08:13
af Hnykill
Glæsilegt. takk fyrir góð svör strákar :happy

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Mán 27. Mar 2017 13:39
af zedro
Loftpressa?

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Mán 27. Mar 2017 15:05
af Hnykill
zedro skrifaði:Loftpressa?
Hehe nei, held að loftpressa sé aðeins og mikið. en ég hef heyrt að menn séu einmitt að nota þessa "litlu" rafmagnsblásara með góðum árangri. ætla panta svona og sjá hvort þetta sé ekki bara eina vitið.

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Mán 27. Mar 2017 17:01
af zedro
Endilega komdu svo með video review af þessum gæja. Er spenntur að sjá hvernig hann virkar. :D

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Mán 27. Mar 2017 17:42
af beggi90
Hnykill skrifaði:
zedro skrifaði:Loftpressa?
Hehe nei, held að loftpressa sé aðeins og mikið. en ég hef heyrt að menn séu einmitt að nota þessa "litlu" rafmagnsblásara með góðum árangri. ætla panta svona og sjá hvort þetta sé ekki bara eina vitið.
Hægt að fá mjög litlar "airbrush" pressur sem koma líka yfirleitt með svona water trap á.
En láttu vita hvernig þú kannt við rafmagnsblásarann sem þú færð þér. Af því sem ég hafði séð af þeim þegar ég skoðaði þetta á sínum tíma þótti mér margir þeirra full háværir.

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Lau 01. Apr 2017 21:00
af jonsig
Á verksmiðju línu sem ég skoðaði erlendis var með ionized loft til að blása af kísil hálfleiðara dóti. Svosem aldrei hægt að taka esd nógu alvarlega.

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Lau 01. Apr 2017 22:00
af Hnykill
ég reyndar fór í gegnum Ebay og amazon ferlið til að panta þennan litla blásara. kom í ljós að með öllu kostar hann þig litla 99 dollara með öllu :/ en ekki 22 eins og margt bendir til. með öllu og svo er sendingarkostnaður eftir :/ ..græjan er fín og greinilega margir sem mæla með henni. en common. frá 22 dollurum yfir í 100 ? ..já Ebay og Amazon er sko ekkert Ísland, þar sem þér er bara sagt verðið og sagt að taka því eða fara bara :Þ

Ef ég væri ekki bara svona á kafi í tölvum, en ég í alvörunni þarf á þessu tæki að halda. og ég er ekkert að gera neinn verðsamanmun á milli þrýstilofts í brúsum eða milli þessara blásara. ég var í alvörunni hjá litlu systur minni. sem spilar helling af leikjum og er með "gömlu" tölvuna mína. og þegar ég blés út rykinu þá festist það í Silicon linsunum mínum. og linsur virka þannig að þegar eitthvað festist í þeim þá eru þær dauðar. í alvöru.. þú lagar ekki linsur.. nokkurntíman :/ .. svo fínt ryk líka :/ .. get ekkert verið að bara blása og blása rykið burt ! og hún á 2 ketti líka. þetta er ekkert reykingaryk "verst af öllu" bara svona, hef tölvuna á gólfinu og eg setti viftu í botninn til að auka kalt loftfæði í gegnum hana þá. hún var uppá borði hjá mér en er niðri hjá henni.

Svo fínt ! .. skal taka þetta á 100 dollara.. s.s 11.300 kall .. og ekki nóg með það. þetta er gert fyrir 120v og þarf breytistykki. ég er nú bara að kaupa þetta útaf nauðsyn. Þetta er samt nokkurveginn saga heimsins. en allavega. keypti þennan blásara. og takk fyrir að segja mér frá olíunni sem blæs með þessu.

Haldandi að ég sé að fara fá einhvern 22 dollara blásara í hendurnar var bara fáránlegt. ætla að fara til Indlands einn daginn :( þar sem lífið kostar minna =)

nei ég elska Ísland :/ ..skal frekar borga 100 þús kall og 2 fingur en að láta koma svona fram við mig eins og gengur og gerist í heiminum. 3d world problem kallast það.

Re: Loftblásari vs canned air ?

Sent: Lau 01. Apr 2017 22:21
af jojoharalds
er sj´
alfur búin að vera með þennan í nokkur ár
http://www.ebay.com/itm/New-Metro-500-W ... Sw5ClXxSrg

[keypti mér tvo :) ]

algjörlega þess virði ,virkar lika til að blása lauf í garðinum .

http://www.ebay.com/itm/New-Metro-500-W ... Sw5ClXxSrg