Síða 1 af 1
Verktakagreiðslur
Sent: Fös 24. Mar 2017 22:34
af isr
Ef ég er með 1,5 til 2mill í verktakalaun á ári þarf ég þá að standa skil á öllum gjöldum,vsk ,lýfeyrissj,tryggingagjald,tekjuskatt og allt þetta.
Er að reyna skoða þetta á netinu,en er eitthvað svo ruglingslegt.

Re: Verktakagreiðslur
Sent: Fös 24. Mar 2017 23:04
af loner
Eftir því sem ég veit best, er það já.
En best væri að hringja í skattinn og fá þar leiðbeiningar gegnum þetta, það hefur virkað vel fyrir mig.
Re: Verktakagreiðslur
Sent: Fös 24. Mar 2017 23:15
af loner
Ég gæfi samt mikið fyrir að vera besti vinur, ADMIN hjá skattinum,.
Lol, hvað ég væri ríkur.
Re: Verktakagreiðslur
Sent: Fös 24. Mar 2017 23:16
af hagur
Já. Það sem þú ert væntanlega að rugla með er að þú mátt hafa allt að 1 milljón (var 500þús, held það sé komið í milljón) á hverju 12 mán tímabili í verktakatekjur án þess að greiða af þeim VSK. Þarft alltaf að borga tekjuskatt og launatengd gjöld af öllu.
Re: Verktakagreiðslur
Sent: Fös 24. Mar 2017 23:25
af vesley
hagur skrifaði:Já. Það sem þú ert væntanlega að rugla með er að þú mátt hafa allt að 1 milljón (var 500þús, held það sé komið í milljón) á hverju 12 mán tímabili í verktakatekjur án þess að greiða af þeim VSK. Þarft alltaf að borga tekjuskatt og launatengd gjöld af öllu.
Búið er að hækka það upp í 2 milljónir.
Ef tekjur eru undir 450.000kr þarf ekki að standa skil á "staðgreiðslu" En þú þarft alltaf að taka allar tekjur fram í skattframtalinu og borga tekjuskatt.
Re: Verktakagreiðslur
Sent: Lau 25. Mar 2017 00:15
af GuðjónR
vesley skrifaði:hagur skrifaði:Já. Það sem þú ert væntanlega að rugla með er að þú mátt hafa allt að 1 milljón (var 500þús, held það sé komið í milljón) á hverju 12 mán tímabili í verktakatekjur án þess að greiða af þeim VSK. Þarft alltaf að borga tekjuskatt og launatengd gjöld af öllu.
Búið er að hækka það upp í 2 milljónir.
Ef tekjur eru undir 450.000kr þarf ekki að standa skil á "staðgreiðslu" En þú þarft alltaf að taka allar tekjur fram í skattframtalinu og borga tekjuskatt.
Tekjuskattur og staðgreiðsla er það ekki það sama?
Re: Verktakagreiðslur
Sent: Lau 25. Mar 2017 09:44
af vesley
GuðjónR skrifaði:vesley skrifaði:hagur skrifaði:Já. Það sem þú ert væntanlega að rugla með er að þú mátt hafa allt að 1 milljón (var 500þús, held það sé komið í milljón) á hverju 12 mán tímabili í verktakatekjur án þess að greiða af þeim VSK. Þarft alltaf að borga tekjuskatt og launatengd gjöld af öllu.
Búið er að hækka það upp í 2 milljónir.
Ef tekjur eru undir 450.000kr þarf ekki að standa skil á "staðgreiðslu" En þú þarft alltaf að taka allar tekjur fram í skattframtalinu og borga tekjuskatt.
Tekjuskattur og staðgreiðsla er það ekki það sama?
Gæti vel verið ég var einfaldlega að lesa beint af vefsíðu ríkisskattstjóra og þar stóð að staðgreiðsla sé undanskilin en engu að síður eigi maður að borga skatt af öllum launum.
Skildi þetta ekki alveg nógu vel og finn ekki linkinn hér í símanum. Of latur að standa upp og kíkja í tölvuna.
Finnst þessi stofnun nú vera hálfgerður brandari. T.d. reglurnar þeirra um skil á reikningum og hvaða kerfi má nota fyrir reikninga. Í staðinn fyrir ákveðnar reglur um útlit reikninga og þær upplýsingar koma fram þá velja þeir handvirkt örfá kerfi sem þú átt að nota og öll hin eru bönnuð.
Re: Verktakagreiðslur
Sent: Lau 25. Mar 2017 10:11
af depill
vesley skrifaði:

Þetta er algengur misskilningur. Það eru ákveðnar reglur um geymslu, útlit o.s.frv. varðandi prentun rafræna reikninga í einriti sem snúast að því hvernig data integrity er og fleirra. Hver sem er getur skilað yfir yfirlýsingu til RSK um að ákveðið kerfi uppfylli þessar kröfur.
Þú mátt hins vegar notaða hvaða kerfi sem er svo lengi sem þú ert með forprentað númer á þeim ( þeir sem versla við Tölvutek, taka eflaust eftir því að það eru tvö númer á reiknungum þeirra, eitt forprentað og eitt kerfisprentað ).
Skilyrðin fyrir prentun rafræn reiknings í einriti eru ekki einu sinni ósanngjörn
https://www.rsk.is/atvinnurekstur/bokhald-og-tekjuskraning/rafraen-bokhaldskerfi/ skrifaði:
Fyrirliggjandi í bókhaldi þarf að vera undirrituð yfirlýsing, þess efnis að viðkomandi bókhaldskerfi uppfylli skilyrði sem þeim eru sett, frá seljanda eða hönnuði viðkomandi bókhaldskerfis.
Skilyrðin eru eftirfarandi:
Skrifleg lýsing á skipulagi bókhaldsins og uppbyggingu þegar rafrænt bókhald er fært og skriflegar lýsingar vegna gagnaflutninganna sjálfra og þeirra viðskiptafærslna sem rekja má til þeirra liggi fyrir. Framangreindar lýsingar skulu gefa skýra mynd af öryggi og rekjanleika færslna, hvort sem þær eru í bókhaldskerfinu sjálfu eða sérstöku gagnavinnslukerfi vegna gagnaflutninganna.
Þegar færslur í bókhaldinu eiga rætur að rekja til gagnaflutninga skulu liggja fyrir upplýsingar um það með hvaða hætti þeir aðilar sem stunda slík rafræn viðskipti haga samskiptum sínum, m.a. skráningu í gagnadagbók. Ef aðilar hafa gert samskiptasamninga við gagnaðila sinn vegna gagnaflutninga skulu þeir og liggja fyrir.
Reglugerðin er svo hér
http://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/505-2013.
Re: Verktakagreiðslur
Sent: Lau 25. Mar 2017 10:23
af vesley
@Depill takk fyrir þessar upplýsingar
Það sem ég tala um er þær upplýsingar sem ég sá hér.
http://www.skatt.is/spurningarsvor/
Leyfilegt er að nota rafræn sölukerfi sem eru samþykkt af RSK (hægt að sjá lista inn á heimasíðu RSK). Þar sem rafræn sölukerfi þurfa að vera samþykkt af RSK þá er ekki leyfilegt að nota rafræn sölukerfi á erlendum heimasíðum.
Re: Verktakagreiðslur
Sent: Lau 25. Mar 2017 11:05
af hagur
GuðjónR skrifaði:vesley skrifaði:hagur skrifaði:Já. Það sem þú ert væntanlega að rugla með er að þú mátt hafa allt að 1 milljón (var 500þús, held það sé komið í milljón) á hverju 12 mán tímabili í verktakatekjur án þess að greiða af þeim VSK. Þarft alltaf að borga tekjuskatt og launatengd gjöld af öllu.
Búið er að hækka það upp í 2 milljónir.
Ef tekjur eru undir 450.000kr þarf ekki að standa skil á "staðgreiðslu" En þú þarft alltaf að taka allar tekjur fram í skattframtalinu og borga tekjuskatt.
Tekjuskattur og staðgreiðsla er það ekki það sama?
Nei. líka hægt að gefa upp á skattframtali og gera svo upp við álagningu, einu sinni á ári.