Síða 1 af 1

Wireless access point

Sent: Lau 11. Mar 2017 12:59
af KHx
Sælir.

Þá er komið að því að losna við netsnúruna frá skrifstofunni fram í router og banka massa stig hjá konunni :-)

Ég er með 2 tölvur inni í herbergi og vantar að tengja þær þráðlaust við routerinn sem er frammi,
mig langar helst ekki til þess að setja þráðlaus kort í þær þar sem þær eru nú þegar með ethernet.

Er til einhver wireless access point græja sem ég get tengt inn á þráðlausa netið og er með ethernet útgangi
sem ég get tengt í sviss?
Það kæmu svo nokkrar IP tölur yfir þennan access punkt sem myndi senda það áfram á routerinn.

Er þetta gerlegt?


MK
K

Re: Wireless access point

Sent: Lau 11. Mar 2017 22:06
af ojs
Vissulega er þetta hægt, þarft bara tæki sem styður Client Bridging, t.d. getur þessi þetta: https://tolvutek.is/vara/trendnet-tew-7 ... cess-point. N.B. bendi bara á þetta vegna þess að það er til hérna á landi, eru ábyggilega til fleiri, sýnist að vísu þessi bara styðja wifi IEEE 802.11n (max 150 Mbit/s), þú vilt kannski tæki sem styður IEEE 802.11ac (max 866,6 Mbit/s).

En það sem þig vantar er semsagt þessi fítus, Client Bridging.

Re: Wireless access point

Sent: Lau 11. Mar 2017 23:34
af KHx
ojs skrifaði:Vissulega er þetta hægt, þarft bara tæki sem styður Client Bridging, t.d. getur þessi þetta: https://tolvutek.is/vara/trendnet-tew-7 ... cess-point. N.B. bendi bara á þetta vegna þess að það er til hérna á landi, eru ábyggilega til fleiri, sýnist að vísu þessi bara styðja wifi IEEE 802.11n (max 150 Mbit/s), þú vilt kannski tæki sem styður IEEE 802.11ac (max 866,6 Mbit/s).

En það sem þig vantar er semsagt þessi fítus, Client Bridging.
Takk, þetta er hugtakið sem mig vantar.