Síða 1 af 1

RÚV 2 í HD

Sent: Fim 12. Jan 2017 17:20
af JReykdal
RÚV 2 er komin í HD í lofti og amk. hjá Vodafone IPTV.

Gæti borgað sig að skanna aftur loftnetið.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Fim 12. Jan 2017 21:34
af lexusinn
Líka hjá Síminn iptv

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Fim 12. Jan 2017 22:38
af Hizzman
Hvenær ætli allar opnu íslensku rásirnar komi í HD á alvöru IPTV? Þá er ég að meina almennt internet óháð ISP.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Fös 13. Jan 2017 10:52
af depill
Hizzman skrifaði:Hvenær ætli allar opnu íslensku rásirnar komi í HD á alvöru IPTV? Þá er ég að meina almennt internet óháð ISP.
Ja þar sem IPTV stendur bara fyrir Internet Protocol TeleVision þá er Sjónvarp Símans og Vodafone klárlega "alvöru" IPTV þó það sé á lokuðu netkerfi. Ein af ástæðunum fyrir því að það er á lokuðu netkerfi er nottulega vegna þess að það er enn soldið áhorf á línulega dagskrá og multicast streymi umhverfi er hreinlega bara mikið betra fyrir línulega dagskrá.

Varðandi svo ólínulega má færa ákveðin rök fyrir QoS en þau eru klárlega mikið minni þar sem það er alltaf unicast.

Enn þú ert væntanlega að tala um hvenær ætli allar opnu Íslensku rásinar komi í OTT ?

Enn eru þær ekki flest allar til, eru ekki allar rásinar á OZ/Sjónvarpi 365 fyrir utan Sjónvarp Símans og ég held að þær séu allar í IPTV appinu hjá Vodafone ( líka Sjónvarp Símans ), man ekki hvort þær séu allar N4 og Hrinbraut í Sjónvarp Símans appinu en þær eru það flestar þar

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Fös 13. Jan 2017 15:46
af zetor
verður Rúv2 færð uppí 720p á vefnum þeirra líka?

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 17. Jan 2017 14:31
af JReykdal
zetor skrifaði:verður Rúv2 færð uppí 720p á vefnum þeirra líka?
Er í 720p á vefnum.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 17. Jan 2017 15:00
af Hizzman
JReykdal skrifaði:
zetor skrifaði:verður Rúv2 færð uppí 720p á vefnum þeirra líka?
Er í 720p á vefnum.

Sæll J - Hverjar eru slóðirnar á 720p TV streymi hjá RÚV?

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 17. Jan 2017 15:05
af JReykdal
www.ruv.is :)

Ekki græna um slóðirnar sjálfar.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 17. Jan 2017 16:27
af zetor
JReykdal skrifaði:
zetor skrifaði:verður Rúv2 færð uppí 720p á vefnum þeirra líka?
Er í 720p á vefnum.
Ég bjóst við meiri gæðabreytingum á straum Rúv2 á vefnum.
Sé að það er komin 1080p á Rúv þar sem áður var 720p á vefnum.
Mér finnst Rúv á 720p koma betur út heldur en Rúv2 á 720p! Eða þarf ég að fara í sjóntjekk?

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Mið 18. Jan 2017 00:14
af russi
Hizzman skrifaði: Sæll J - Hverjar eru slóðirnar á 720p TV streymi hjá RÚV?
Þær eru uppgefnar hér í nokkrum spjall þráðum, ég ætla að leyfa þér að leita smá fyrst.

Hint fyrir leitarorð: iptv, rúv, plex, kodi, m3u8, hls, stream, strm

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Fös 27. Jan 2017 16:56
af Hauxon
Leigan mætti nú vera í HD hjá RÚV. Óþolandi að horfa á þætti sem maður missir af í "beinni" í þessum skítagæðum.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Fös 27. Jan 2017 17:05
af GuðjónR
Hauxon skrifaði:Leigan mætti nú vera í HD hjá RÚV. Óþolandi að horfa á þætti sem maður missir af í "beinni" í þessum skítagæðum.
Sammála, upplausnin er svo léleg að í 65" UHD tæki þá þekkir maður varla RUV logoið.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Fös 27. Jan 2017 17:54
af Andri Þór H.
Rúv er líka komið i 1080p á vefnum.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 31. Jan 2017 15:23
af zetor
Rúv2 kominn í 1080p á vefnum sé ég

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 31. Jan 2017 15:31
af hagur
Næs.

Bara ef Sjónvarp Símans myndi nú bjóða uppá vefstraum í 720p eða 1080p líka. Þá gæti maður smellt þessu öllu inn í Kodi og losað sig við aukaafruglarann. Er einhver innanbúðarmaður hér hjá Símanum sem getur svarað því hvort það standi til að gera þetta? Þeir voru með straum á s1.is til að byrja með, eftir að þeir fóru í opna dagskrá en svo var það tekið burt fljótlega.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 31. Jan 2017 15:57
af zetor
hagur skrifaði:Næs.

Sammála!
Ég auglýsi einnig eftir innanbúðarmanni hjá Rúv varðandi að fá Sarpinn í HD

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 31. Jan 2017 18:53
af worghal
hagur skrifaði:Næs.

Bara ef Sjónvarp Símans myndi nú bjóða uppá vefstraum í 720p eða 1080p líka. Þá gæti maður smellt þessu öllu inn í Kodi og losað sig við aukaafruglarann. Er einhver innanbúðarmaður hér hjá Símanum sem getur svarað því hvort það standi til að gera þetta? Þeir voru með straum á s1.is til að byrja með, eftir að þeir fóru í opna dagskrá en svo var það tekið burt fljótlega.
Er ekki appel að vinna við sjónvarp símans?
Senda honum kanski pm :)

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 31. Jan 2017 19:32
af appel
worghal skrifaði:

Það er nú óþarfi að senda mér PM.

Svarið við þessu er bara einfalt.

Það er krafa á okkur um að DRM sé notað við dreifingu á efni erlendra stúdíó.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 31. Jan 2017 20:13
af hagur
appel skrifaði:
worghal skrifaði:
Það er nú óþarfi að senda mér PM.

Svarið við þessu er bara einfalt.

Það er krafa á okkur um að DRM sé notað við dreifingu á efni erlendra stúdíó.
Já ég skil það svo sem þegar þú nefnir það. Ætli Rúv sé þá með annarskonar samninga við sína content providera? Þeir virðast geta dreift öllu sínu efni live á netinu. Líklega geo-blockað samt.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 31. Jan 2017 20:28
af appel
Geo-blocking er ekki DRM.

DRM er end-to-end content encryption.

Re: RÚV 2 í HD

Sent: Þri 31. Jan 2017 20:58
af hagur
Já ég átta mig alveg á því.