Síða 1 af 1

Bestu budget Cherry MX Brown lyklaborð?

Sent: Mið 28. Des 2016 04:00
af tomasandri
Hver eru bestu budget Cherry MX Brown lyklaborðin sem eru fáanleg á landinu?
Budget=ódýrustu

Re: Bestu budget Cherry MX Brown lyklaborð?

Sent: Mið 28. Des 2016 08:32
af Njall_L
Ódýrustu borðin með MX Brown sem ég hef séð voru hjá Computer.is. Mér fannst þau þó gefa leiðinlega mikið eftir þegar var verið að skrifa á þau ásamt því að vera einstaklega plastleg, myndi persónulega ekki mæla með þeim ef þú ætlar að nota borðið við tölvuna hjá þér.
http://www.computer.is/is/product/lykla ... -mekaniskt

Ég myndi benda þér á að kíkja á útsöluna í Tölvutek og skoða Ducky, þeir eru með nokkuð flott verð á borðunum hjá sér og það munar rosalega á hvernig þau eru byggð á móti þessum í Computer.is
https://tolvutek.is/leita/cherry+mx+brown

Re: Bestu budget Cherry MX Brown lyklaborð?

Sent: Mið 28. Des 2016 09:19
af Sultukrukka
Get staðfest að þessi Ducky one eru solid græjur. Ég keypti svona lyklaborð þegar að þau lentu og ég er enn sáttur þrátt fyrir að hafa borgað 30k þegar ég verslaði þetta. Plús að það er alveg mega solid build quality í þessu.

Ég myndi allavega ekki hika við að kaupa það aftur en reikna með að þetta borð muni endast amk 10 ár án skakkafalla.

Edit: Entist akkúrat í 25 mánuði, byrjaði svo að keyboard chattera. Bömmer.