Síða 1 af 1
Íslenskt stafasett - Límmiðar fyrir lyklaborð
Sent: Mið 21. Des 2016 14:39
af Hjaltiatla
Sælir/Sælar
Var að pæla hvort þið gætuð svarað mér einni spurningu varðandi Íslenskt stafasett og límmiða fyrir lyklaborð. Hvaða lyklaborð á fartölvum er hægt að líma
þessa límiða á (þ.e hvaða layout ).
Re: Íslenskt stafasett - Límmiðar fyrir lyklaborð
Sent: Mið 21. Des 2016 15:53
af dori
Þú getur náttúrulega límt þetta á hvaða layout sem er en mér sýnist þetta vera samsett til að breyta lyklaborði með UK merkingum yfir í að vera með réttum íslenskum merkingum.
Sem sagt. Ef þú ert með UK lyklaborð mun þetta merkja alla takka rétt fyrir íslenskt layout. Ef þú ert með US lyklaborð mun það ennþá verða eitthvað rangt (t.d. er shift+2 @ merki á US lyklaborði og þetta merkir það ekki rétt) en samt mun skárra.
Re: Íslenskt stafasett - Límmiðar fyrir lyklaborð
Sent: Mið 21. Des 2016 16:04
af Hjaltiatla
dori skrifaði:Þú getur náttúrulega límt þetta á hvaða layout sem er en mér sýnist þetta vera samsett til að breyta lyklaborði með UK merkingum yfir í að vera með réttum íslenskum merkingum.
Sem sagt. Ef þú ert með UK lyklaborð mun þetta merkja alla takka rétt fyrir íslenskt layout. Ef þú ert með US lyklaborð mun það ennþá verða eitthvað rangt (t.d. er shift+2 @ merki á US lyklaborði og þetta merkir það ekki rétt) en samt mun skárra.
Ok , takk fyrir svarið.
Var einmitt að pæla í þessu ef maður ákveður að versla sér fartölvu af amazon.co.uk
Myndu samt ekki einnig Nordic iso layout-in henta í að líma þessa límmiða yfir takkana , þekkiru það ?
En jú vissi þetta með US layout-in t.d staðsetningin á < > táknum er ekki í takt við það sem maður er vanur.
Re: Íslenskt stafasett - Límmiðar fyrir lyklaborð
Sent: Mið 21. Des 2016 17:10
af dori
Ég hef bara ekki hugmynd. Skoðaðu bara mynd af nordic lyklaborðum og tékkaðu á því hvaða takkar eru mismunandi. Það gæti hugsanlega verið að einhver talnatakki myndi vera með röngu shift+X tákni eða eitthvað en þetta ætti að láta næstum því allt lúkka rétt.
Re: Íslenskt stafasett - Límmiðar fyrir lyklaborð
Sent: Mið 21. Des 2016 17:38
af Hjaltiatla
Mehh..vill vera viss (reikna með að einhver hérna inni þekki þetta)
Nordic ISO QWERTY skv Googl-i:
https://deskthority.net/wiki/Region-specific_layouts
Re: Íslenskt stafasett - Límmiðar fyrir lyklaborð
Sent: Fim 22. Des 2016 07:53
af rattlehead
Sælir
keypti mér tölvu í Póllandi og þurfti bara að hala niður íslenska stafasetti til að fá þetta rétt. Þarf reyndar að fara og kaupa mér límmiða til að merkja takkana enn það er annað.