Síða 1 af 1

Hvar fær maður POST kort á klaknum?

Sent: Lau 22. Jan 2005 19:24
af MezzUp
Sælir,

Ég var að velta fyrir mér hvort að þið vissuð hvort/hvar hægt væri að fá POST kort hérna heima?

Kv. MezzUp

Sent: Lau 22. Jan 2005 20:53
af SolidFeather
Hjá Póstinum?

<_<
>_>

Sent: Lau 22. Jan 2005 22:32
af Pandemic
Hvað er það ef ég mætti spyrja :)
Alltaf gaman að læra einhvað nýtt

Sent: Lau 22. Jan 2005 22:41
af MezzUp
Power-On-Self-Test (POST) er ferlið sem að BIOS fer í gegnum við ræsingu.
Ef að einhverjar villur verða í POST ferlinu þá tilkynnir BIOSinn það oftast með því að birta textaskilaboð á skjánum og/eða lætur tölvuhátalarann pípa eftir ákveðnu mynstri.
POST kort er kort sem að fer í eina ISA eða PCI rauf í tölvunni og birtir með 2 hex tölum(LED á kortinu) hvar í POST ferlinu BIOSinn er staðsettur, og þannig getur maður troubleshoot'að á hvaða hlut einhver ákveðinn vél er að hanga í booti.

Ég er nefnilega með 2 AT tölvur hérna sem að hanga(hvorki video né bíp) og var að vonast til þess að geta púslað þeim saman í eina starfhæfa tölvu ef að ég finn bilunina í þeim báðum.(og það er ekki sami hluturinn)

Svo er bara gott að eiga POST kort ef að maður vill vera alvöru tölvunörd :P

Sent: Sun 23. Jan 2005 23:01
af ErectuZ
...
Ég hélt í alvöru að þú værir að meina póstkort fyrst...
...
:lol: