Síða 1 af 1

Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 06:46
af sghphoto
Er hægt að fá kælisökkla á RPI3 einhversstaðar hér á klakanum? Það er helst til dýrt að kaupa þá að utan eina og sér.

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 08:07
af svanur08
Hvernig dettur þér í hug það sé ódýrara hér en úti?

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 08:39
af hagur
svanur08 skrifaði:Hvernig dettur þér í hug það sé ódýrara hér en úti?
Með shipping, tollmeðferðargjaldi, vsk etc er örugglega dýrara að panta eitt svona stk að utan en að kaupa hérlendis.

Kælikubbur sem kostar kannski 3$ getur rokið upp í 2-3þús hingað kominn.

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 09:17
af Hizzman
eru tollurinn ekki hættir að skipta sér af smádóti sem kostar næstum ekkert?

er ekki verið að tala um kæliugga? þeir kosta ca 100kr á ebay

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 09:27
af russi
Ég prófaði að setja krónu á örran, það hafði nokkur áhrif, Þú gætir kannki prófað að setja 50kall eða 3-5 krónur í bunnti til að spara þér :D

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 09:35
af Hizzman
kælingin þarf helst að stækka flötinn, smápeningur sem liggur gerir ekki mikið, annað mál ef hann stendur einhvernvegin upp. álstykki 1x1 cm sem stæði upprétt myndi gera helling. þú ættir að geta fest það með smá lími og svo slatta á kælikremi. passaðu bara að gera ekki skammhlaup!

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 09:47
af dori
Einhversstaðar á ég svona staka kælikubba sem eru reyndar ekki hannaðir sérstaklega fyrir Raspberry Pi en ættu að gera eitthvað. Á ég að athuga hvort ég finni það fyrir þig?

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 11:15
af slapi
Það var ódýrast fyrir mig að panta sett fyrir 10 Pi3 af Ali

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 13:51
af zedro
Ég notaði litlu heatsinkin af skjákorti. Pottþétt eitthvað til í þinni uppáhalds tölvuverslun.
Mæli með að þú kikir eða hringir, færð þetta eflaust á klink.

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 14:09
af Tbot
Hvað með Miðbæjarradio eða Íhluti?

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Fös 02. Des 2016 15:47
af jonsig
Ég keypti bland í poka af þessum límdu kælisökklum á kúk á kanil á ebay. Þeir virka fínt.

Re: Raspberry Pi 3 kæling

Sent: Lau 03. Des 2016 19:39
af sghphoto
Takk fyrir góð svör. Ég held ég rífi sökkul af einhverju af gömlu skjákortunum sem ég tími aldrei að henda, geta loksins gert eitthvað af gagni.