Síða 1 af 1

Skrifstofutölvur

Sent: Fös 21. Jan 2005 11:15
af gnarr
það sem við sækjumst eftir er snögg tölva í skrifstofu vinnslu (semsagt office pakkann, dreamweaver, photoshop, internet flakk, autocad og fleira). hún verður að vera hljóðlát og taka lítið pláss.

hérna er það sem ég setti saman. endilega komið með hugmyndir hvernig ég get bætt hana.

http://194.144.26.86/

Sent: Fös 21. Jan 2005 16:30
af Sveinn
Þurfiði svona stórann HDD? Annars þekki ég ekkert hvað eru góðar skrifstofutölvur :S

Re: Skrifstofutölvur

Sent: Fös 21. Jan 2005 18:32
af urban
gnarr skrifaði:það sem við sækjumst eftir er snögg tölva í skrifstofu vinnslu (semsagt office pakkann, dreamweaver, photoshop, internet flakk, autocad og fleira). hún verður að vera hljóðlát og taka lítið pláss.

hérna er það sem ég setti saman. endilega komið með hugmyndir hvernig ég get bætt hana.

http://194.144.26.86/
þarf virkilega þetta öfluga tölvu í skrifstofu vinnu .... t.d. 1 GB í minni ???

Sent: Lau 22. Jan 2005 00:52
af gnarr
autocad er mjög þungt forrit. photoshop líka. svo erum við oft með alltof mörg forrit í gangi í einu... 1GB er eiginlega lágmark.

ég held að það sé líka miklu meira vit í því að kaupa aðeins of öflugt, sem dugir þá í fleiri fleiri ár, heldur en að kaupa réttsvo nóg, og skipta svo aftur út eftir ár. ódýr drasl tölva kostar kanski minnst 50.000kr meðan þessi kostar um 100.000kr og endist margfalt lengur.