Spurning til kjósenda Bjartrar framtíðar
Sent: Mán 14. Nóv 2016 16:49
Þið sem kusuð Bjarta framtíð, hvað finnst ykkur um u-beygjuna sem flokkurinn virðist hafa tekið eftir kosningar?
Tölvu og tækniáhuga samfélagið.
https://gamma.vaktin.is/
Ertu þá að meina:Stuffz skrifaði:finnst þetta eitthvernveginn Óttarlega fyrirsjáanlegt movie-Propp á pólitíska sviðinu![]()
(btw kaus ekki).
http://stundin.is/blogg/pall-asgeir/the ... ogedslegt/Styrmir Gunnarsson skrifaði:„Ég er búinn að fylgjast með þessu þjóðfélagi í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“
Ég held að fyrrnefndur sé í raun að reyna það sem Gnarr fór af stað með í gríniGuðjónR skrifaði:Ertu þá að meina:Stuffz skrifaði:finnst þetta eitthvernveginn Óttarlega fyrirsjáanlegt movie-Propp á pólitíska sviðinu![]()
(btw kaus ekki).http://stundin.is/blogg/pall-asgeir/the ... ogedslegt/Styrmir Gunnarsson skrifaði:„Ég er búinn að fylgjast með þessu þjóðfélagi í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“
Fyndið að sjá hvernig BB er allt í einu farinn að spegla Óttarr í klæðaburði, grænar buxur, taujakki og vestið. Það vantar bara sixpensarann.
Ætli hann hafi fengi ráð hjá sálfræðimenntuðum til að búa til falskt traust með svipuðum klæðaburði áður en hann étur Óttarr með húð og hári?
Akkúrat. Svo koma flokkarnir sínum málum auðvitað frekar í gegn þegar þeir eru í stjórn heldur en í stjórnarandstöðu - þrátt fyrir að þurfa að bakka með einhver mál.Revenant skrifaði:Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir að markmið stjórnmálaflokka er að komast til valda en ekki sitja í stjórnarandstöðu.
Það þýðir að flokkarnir verða að gefa afslátt af sínum málefnum við stjórnarmyndun. Ef þeir gera það ekki þá sitja þeir í stjórnarandstöðu.
Revenant skrifaði:Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir að markmið stjórnmálaflokka er að komast til valda en ekki sitja í stjórnarandstöðu.
Það þýðir að flokkarnir verða að gefa afslátt af sínum málefnum við stjórnarmyndun. Ef þeir gera það ekki þá sitja þeir í stjórnarandstöðu.
Með öðrum orðum þá þíðir þetta að fyrir utan að hafa enga tryggingu fyrir neinu sem þeir segja sem þú kýst þá búist þið beinlínis við því að allt sem þeir segja sem þið kjósið geti verið svikið?hagur skrifaði:Akkúrat. Svo koma flokkarnir sínum málum auðvitað frekar í gegn þegar þeir eru í stjórn heldur en í stjórnarandstöðu - þrátt fyrir að þurfa að bakka með einhver mál.
Maður skilur því alveg að samstarf við "andstæðinginn" sé reynt til hins ítrasta.
Þetta snýst um málamiðlanir.
Já einmitt, þetta sagði Samfylkingin einu sinni þegar ákveðið var að fara í stjórnarsamstarf með XDRevenant skrifaði:Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir að markmið stjórnmálaflokka er að komast til valda en ekki sitja í stjórnarandstöðu.
Það þýðir að flokkarnir verða að gefa afslátt af sínum málefnum við stjórnarmyndun. Ef þeir gera það ekki þá sitja þeir í stjórnarandstöðu.
JapaneseSlipper skrifaði:Ég kaus BF og ég sé ekki eftir því. Eins og Björt hefur bent á í viðtölum þá er möguleiki að koma sjálfstæðisflokknum á frjálslyndari veg þá tel ég það jákvætt skref. EF sjálfstæðisflokkur myndi bakka með sérhagsmunastefnuna og fara actually að vinna að málefnum sem þeir leggja fram þá væru þeir ekki svo slæmir að mínu mati.
Ég er ekki að segja að þetta hafi verið óskastaðan fyrir kosningar en mér finnst VG bara lítið skárri (fyrir utan Kötu). Staðan er bara sú að það er ekki hægt að mynda ríkisstjórn án VG eða xD.
Jájá, að bakka með mál og fara leið málamiðlana er skiljanlegt, en 180 gráðu beygja á stefnu hlýtur að vera aðeins meira en það. Fyrir utan það, hvenær hefur xD gert málamiðlandir án þess að svíkja þær? Þið sjáið t.d. hversu sveigjanlegir þeir voru í verðtryggingarmálinu með xB. En xB beinlínis vann kosningarnar út á það loforð og það var yfirlýst forsenda fyrir stjórnarsamstarfi.hagur skrifaði:Akkúrat. Svo koma flokkarnir sínum málum auðvitað frekar í gegn þegar þeir eru í stjórn heldur en í stjórnarandstöðu - þrátt fyrir að þurfa að bakka með einhver mál.
Þú kennir ekki dauðum hundi að sitja.JapaneseSlipper skrifaði:Eins og Björt hefur bent á í viðtölum þá er möguleiki að koma sjálfstæðisflokknum á frjálslyndari veg þá tel ég það jákvætt skref.
Sjálfstæðisflokkurinn er stofnaður í kringum sérhagsmuni, það er ekkert leyndarmál og hefur aldrei verið leyndarmál. Ég er ekkert endilega að segja að það sé slæmt, ef ég ætti fiskinn í sjónum þá myndi ég eflaust elska sjálfstæðisflokkinn.JapaneseSlipper skrifaði: EF sjálfstæðisflokkur myndi bakka með sérhagsmunastefnuna og fara actually að vinna að málefnum sem þeir leggja fram þá væru þeir ekki svo slæmir að mínu mati.
GuðjónR skrifaði:Jájá, að bakka með mál og fara leið málamiðlana er skiljanlegt, en 180 gráðu beygja á stefnu hlýtur að vera aðeins meira en það.
Eftir að hafa hlustað á þessa ræðu korter í kosningar þá finnst manni skrítið að xD sé allt í einu besti vinurinn:vesley skrifaði:180 gráðu beygja?GuðjónR skrifaði:Jájá, að bakka með mál og fara leið málamiðlana er skiljanlegt, en 180 gráðu beygja á stefnu hlýtur að vera aðeins meira en það.
Björt framtíð hefur alltaf horft á sig sem miðjuflokk og því sé ég ekkert athugavert við að taka við boðinu um að taka þátt í viðræðum um stjórnarmyndun,
Það er vissulega ein kenningin, önnur kenning segir að það hafi verið herbragð hjá xD að splitta sér upp í tvo hópa til að ná breiðara fylgi, sameinast svo eftir kosningar eins og stefnir í með yfir 40% atkvæða á bak við sig. Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur eru sitthvor skálmin á sömu buxunum.vesley skrifaði:ég er alveg viss um að Viðreisn hafi ekkert tekið vel í þessar viðræður til að byrja með, þó fólk segji að þetta sé bara afrit af sjálfstæðisflokkinum þá má ekki gleyma að þessi flokkur varð til vegna reiði meðal flokksmanna sjálfstæðisflokksins svo að margir í Viðreisn horfa ekki fallega til Sjálfstæðisflokksins.
Munurinn á XD og Viðreisn að mínu mati er að Viðreisn er alvöru hægri flokkur , XD fer frá vinstri til hægri eftir hentisemi. T.d dreymdi XD að komast í stjórnarsamstarf með VG (vegna ESB stefnu VG) sem er ekki beint í anda hægri flokka í Evrópu.GuðjónR skrifaði:Það er vissulega ein kenningin, önnur kenning segir að það hafi verið herbragð hjá xD að splitta sér upp í tvo hópa til að ná breiðara fylgi, sameinast svo eftir kosningar eins og stefnir í með yfir 40% atkvæða á bak við sig. Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur eru sitthvor skálmin á sömu buxunum.vesley skrifaði:ég er alveg viss um að Viðreisn hafi ekkert tekið vel í þessar viðræður til að byrja með, þó fólk segji að þetta sé bara afrit af sjálfstæðisflokkinum þá má ekki gleyma að þessi flokkur varð til vegna reiði meðal flokksmanna sjálfstæðisflokksins svo að margir í Viðreisn horfa ekki fallega til Sjálfstæðisflokksins.
Hefði þetta verði raunverulegt reiðiframboð þá hefðu þeir notað nafnið Uppreisn en ekki Viðreisn.
GuðjónR skrifaði: Það er vissulega ein kenningin, önnur kenning segir að það hafi verið herbragð hjá xD að splitta sér upp í tvo hópa til að ná breiðara fylgi, sameinast svo eftir kosningar eins og stefnir í með yfir 40% atkvæða á bak við sig. Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur eru sitthvor skálmin á sömu buxunum.
Hefði þetta verði raunverulegt reiðiframboð þá hefðu þeir notað nafnið Uppreisn en ekki Viðreisn.
GuðjónR skrifaði:Jájá, að bakka með mál og fara leið málamiðlana er skiljanlegt, en 180 gráðu beygja á stefnu hlýtur að vera aðeins meira en það. Fyrir utan það, hvenær hefur xD gert málamiðlandir án þess að svíkja þær? Þið sjáið t.d. hversu sveigjanlegir þeir voru í verðtryggingarmálinu með xB. En xB beinlínis vann kosningarnar út á það loforð og það var yfirlýst forsenda fyrir stjórnarsamstarfi.hagur skrifaði:Akkúrat. Svo koma flokkarnir sínum málum auðvitað frekar í gegn þegar þeir eru í stjórn heldur en í stjórnarandstöðu - þrátt fyrir að þurfa að bakka með einhver mál.
Þú kennir ekki dauðum hundi að sitja.JapaneseSlipper skrifaði:Eins og Björt hefur bent á í viðtölum þá er möguleiki að koma sjálfstæðisflokknum á frjálslyndari veg þá tel ég það jákvætt skref.
Sjálfstæðisflokkurinn er stofnaður í kringum sérhagsmuni, það er ekkert leyndarmál og hefur aldrei verið leyndarmál. Ég er ekkert endilega að segja að það sé slæmt, ef ég ætti fiskinn í sjónum þá myndi ég eflaust elska sjálfstæðisflokkinn.JapaneseSlipper skrifaði: EF sjálfstæðisflokkur myndi bakka með sérhagsmunastefnuna og fara actually að vinna að málefnum sem þeir leggja fram þá væru þeir ekki svo slæmir að mínu mati.
p.s. annars er ég farinn að hallast að því að það væri ágætt að fá gelda stjórn með eins manns meirihluta, þeir munu þá væntanlega ekki koma heinum einkavinagreiðum í gegn á kjörtímabilinu og ef BjarniB fer með rétt mál þá hefur þriggja flokka stjórn aldrei lifað heilt kjörtímabil. Björt framtíð mun svo þurrkast út í næstu kosningum.
http://www.visir.is/ogagnsaei-og-thogn- ... 6161119468
Ég hef mikið verið að velta þesu fyrir mér líka en ég er farinn að hallast að því að xD í stjórn yfir höfuð sé mjög slæmt. Einkavinagreiðarnir gerast nefnilega í gegnum framkvæmdavaldið (ráðuneytin) en ekki þingið. Ef xD fær nokkur djúsí ráðuneyti þá mun þetta sama gamla halda áfram þar og hefur verið síðustu tugi ára.GuðjónR skrifaði:p.s. annars er ég farinn að hallast að því að það væri ágætt að fá gelda stjórn með eins manns meirihluta, þeir munu þá væntanlega ekki koma heinum einkavinagreiðum í gegn á kjörtímabilinu og ef BjarniB fer með rétt mál þá hefur þriggja flokka stjórn aldrei lifað heilt kjörtímabil. Björt framtíð mun svo þurrkast út í næstu kosningum.
http://www.visir.is/ogagnsaei-og-thogn- ... 6161119468
Ástæðan kom mér ekki á óvart, fiskurinn er einkaeign sem ekki má hrófla við, xD mega eiga það að þeir bíta ekki í höndina sem fóðrar þá!Hjaltiatla skrifaði:Virðist enginn vilja vera vinur XD þessa dagana Búið að slíta stjórnarmyndunarviðræðum
Kjarninn skrifaði:Búið er að slíta stjórnarmyndunarviðræðum milli Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, sem hófust formlega á föstudag. Það var gert í dag og ástæðan er ágreiningur milli flokkanna um sjávarútvegsmál sem ekki náðist sátt um.
Já , þetta er áhugavert. XD vill ekki bjóða upp kvótann á frjálsum markaði líklega ( ekki beint í anda hægrimennskunar).GuðjónR skrifaði:Ástæðan kom mér ekki á óvart, fiskurinn er einkaeign sem ekki má hrófla við, xD mega eiga það að þeir bíta ekki í höndina sem fóðrar þá!Hjaltiatla skrifaði:Virðist enginn vilja vera vinur XD þessa dagana Búið að slíta stjórnarmyndunarviðræðumKjarninn skrifaði:Búið er að slíta stjórnarmyndunarviðræðum milli Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, sem hófust formlega á föstudag. Það var gert í dag og ástæðan er ágreiningur milli flokkanna um sjávarútvegsmál sem ekki náðist sátt um.
Það hefur verið vel þess virði að taka þátt í stjórnarmyndunarviðræðum til þess að reyna að ná saman um frjálslyndar áherslur og umbætur í íslensku samfélagi. Á endanum reyndist hugmyndin um að þjóðin fengi að greiða atkvæði um áframhald viðræðna við ESB annars vegar, og umbætur í kvótakerfinu hins vegar, of stór biti fyrir menn að kyngja. Björt framtíð hefur frá upphafi verið skýr um það að við erum tilbúin að axla ábyrgð til góðra verka en ekki lélegra. Við höfum staðið fast á þeim prinsipum og munu gera það áfram. Á endanum er það almannahagur sem skiptir máli. Ekkert annað. Ást og friður,