Haha þetta var nú bara grín... með smá alvara
Overpriced: JÁ!
Junk: Ehh... nei.
Fór kanski overboard með junk statementing en get ekki með nokkru móti skilið af hverju þeir gátu ekki sett gott fartölvuskjákort í svona dýrar tölvur. Illa speccaðar þessar vélar í þokkabót og getur fengið miklu betri gaming laptop fyrir þetta verð.
En það er ennþá headphone jack
Re: Setti saman smá myndband fyrir Apple MacBook Pro
Sent: Lau 29. Okt 2016 21:26
af psteinn
Viggi skrifaði:
Fór kanski overboard með junk statementing en get ekki með nokkru móti skilið af hverju þeir gátu ekki sett gott fartölvuskjákort í svona dýrar tölvur. Illa speccaðar þessar vélar í þokkabót og getur fengið miklu betri gaming laptop fyrir þetta verð.
En það er ennþá headphone jack
Já akkúrat. Maður hefði búist við betri vélbúnaði miðað við tæknina í dag.
Ég nenni ekki að fara í miklar Apple umræður en þeir meiga eiga það að þeir eru bestir í að nýta vélbúnaðinn. iPhone 7 og 6S algjörlega jarða Android í optimization "leiknum". En það er vel skiljanlegt miðað við að Apple vita nákvæmlega hvað þeir eru að vinna með. Á meðan Andorid/Windows eru með miljón tegundir af devices sem að keyra stýrikerfið þar sem allt verður að virka.
Þú talar líka um leikjatölvu á þessu verði. Já ef maður er að fara í þá áttina áttu ekki að koma nálægt Apple vörum. En ef þú ert í production bransanum, þá er séns að þér lítist frekar vel á Apple. Final Cut Pro X er mjög gott dæmi um afhverju þú myndir fá þér frekar MacBook Pro í staðin fyrir PC fartölvu. Skoðaðu endilega þetta og sjáðu hvað þér finnst.
Specs segja lítið. Þetta er allt um jafnvægi á milli hugbunaðarins og vélbúnaðarins.
Re: Setti saman smá myndband fyrir Apple MacBook Pro
Sent: Sun 30. Okt 2016 03:42
af slapi
Specs eru allt í videó framleiðslu, dual core og kalla það pro er hlægilegt á þessari öld. Væri miklu skynsamlegra að versla gaming fartölvu fyrir svipaðan pening og videó vinna á því
Re: Setti saman smá myndband fyrir Apple MacBook Pro
Sent: Sun 30. Okt 2016 09:53
af arnarj
Það er skondið að oft á tíðum eru hörðustu gagnrýnendurnir á Macbook Pro vélunum þeir sem hafa litla sem enga reynslu af þeim af eigin raun. M.ö.o. hafa ekki vit á því sem þeir eru að segja.
Re: Setti saman smá myndband fyrir Apple MacBook Pro
Sent: Sun 30. Okt 2016 11:34
af psteinn
slapi skrifaði:Specs eru allt í videó framleiðslu, dual core og kalla það pro er hlægilegt á þessari öld. Væri miklu skynsamlegra að versla gaming fartölvu fyrir svipaðan pening og videó vinna á því
Slapi ég er sammála þér með að vera enþá með dual core í vélunum og kalla það pro er skondið. Það er no doubt alveg fáránlegt. Hérna sérðu hvað iOS er vel optimized. Hérna sérðu Final Cut Pro X samanburð. (af sjálfsögðu er þessi vél ekki dual core.)
En haha þetta er að fara smá off topic. Þetta var mjög fyndið video. Vel gert agust1337
Re: Setti saman smá myndband fyrir Apple MacBook Pro
Ég held að þessi MBP sé aðallega hönnuð fyrir fanboy lið sem vill fá tölvu í space gray til að vera í stíl við iPadinn og símann og vill alltaf kaupa pró útgáfuna af öllu.
Re: Setti saman smá myndband fyrir Apple MacBook Pro
Sent: Mán 31. Okt 2016 02:02
af tdog
Drasl? Alls ekki. Dýrt? já...
Ég er búinn að eiga mína MacBook Pro í 7 ár núna í febrúar... Dagleg þung vinnsla, fyrst var það video og hljóð, mikið af því. Tók upp og mixaði oft 24-32 rásir samtímis, keyrði þung plugin ofl.
Núna uppá síðkastið keyrir hún aðallega Vmware Fusion, bara svo ég þurfi ekki að dröslast með PC fartölvu viðbjóð með mér milli verka
Re: Setti saman smá myndband fyrir Apple MacBook Pro
Sent: Mán 31. Okt 2016 10:12
af GullMoli
Uhm, síðasta kynslóð MBP var líka með Dual Core i5/i7 örgjörva.. Einungis 15" vélin var með quad core, líkt og núna.
Sjálfur er ég með Dual Core i7 í Thinkpadinum mínum og hann tætir allt í sig. Hef verið að taka benchmarks á móti félaga mínum sem er með 2015 MBP Quad Core og vélin hjá mér hefur verið að slá honum út öðru hverju, þar sem fjöldi þráða er ekki nýttur almennilega og þá kemur hærri klukkuhraði sér betur.
Annars trúi ég því að vel optimisað umhverfi sé mjög mikilvægur partur af þessu, svona eins og hversu mikið djók performancið á Android tækjum er samanborðið við iOS tæki.
EDIT: Ég var alltaf pínu á móti þessum Apple græjum hér áður fyrr, en eftir að hafa umgengist þetta svona mikið í skólanum og sjálfur m.a. verið með iPhone 5s í meira en ár núna (eftir að hafa notað bæði Android og Windows Phone), þá er ég byrjaður að sjá það sem heillar við þetta
EDIT2: Las greinina sem GudjonR postaði. Mikið til í þessu, skilst að vélin sé ekkert mikið performance boost.. svosum lítið hægt að sakast við nýju örgjörvana þar sem performancið á þeim er hálf staðnað. Svo eru þær með AMD Radeon kort? Ha? Ég þarf að sjá einhver benchmarks.
Það er samt svo margt sniðugt við þessar vélar (gömlu og nýju), t.d. toppar ekkert hátalarana í MBP vél vinar míns (og nýja er víst með ennþá betri), skjárinn í þessum vélum er snilld, rafhlöðuendingin slær öllu öðru út, getur verið með tölvuna upp í rúmi og það hefur engin áhrif á kælinguna. Amk eru þetta hlutir sem ég hef pælt í samanborið við TP tölvuna mína sem bar svipaðan verðmiða og MBP vél.
Re: Setti saman smá myndband fyrir Apple MacBook Pro
Sent: Mán 31. Okt 2016 10:44
af GuðjónR
Þetta millistykkjadrasl er þvílíkt fail.
Re: Setti saman smá myndband fyrir Apple MacBook Pro