Síða 1 af 1

Vantar Google sheets snilling

Sent: Mán 24. Okt 2016 12:18
af playman
Er að reyna að setja upp tímapöntunar lista með verðskrá.

Þetta á að virka þannig að pantaður sé tími fyrir bíl í þvott, svo valið bílastærð úr drop menu og að lokum
er valið hvaða þvott á að framkvæma úr öðru drop menu.
það er allt komið hjá mér, en nú vantar mér að geta byrt verðið sem er byggt á því hvað var valið
úr þessum tveim drop menus.

Td.
Fólksbíll er valin
Alþrif er valið
Útkoman yrði þá 7.000,-

eða
Fólksbíll er valin
Þvottur og skolbón er valið
Útkoman yrði þá 1.500,-

eða
Stórir pallbílar er valin
þvottur og skolbón er valið
útkoman yrði þá 2.000,-

Var búinn að googla þetta eitthvað, komst að því best væri að notast við VLOOKUP, en fann engar útskýringar sem pössuðu
við mína hugmynd og/eða skildi ekki formúluna nógu vel til þess að geta notast við hana.
Er ekki einhver snillingurinn hérna sem að getur aðstoðað mig við þetta? [-o<

Re: Vantar Google sheets snilling

Sent: Mán 24. Okt 2016 12:55
af Klemmi
Hérna er uppkast, svo geturðu þróað þetta meira, bætt við lookup fyrir tíma og sett unique constraint einhvernvegin á að það geti ekki tveir verið skráðir á sama tíma o.s.frv :)

https://docs.google.com/spreadsheets/d/ ... sp=sharing

Re: Vantar Google sheets snilling

Sent: Mán 24. Okt 2016 13:27
af playman
Snillingur, það er bara eitt vandamál samt.
Öll verðin eru þegar til í töflu, getur séð það hérna.
http://fjolsmidjan.com/#bilatvottur

VLOOKUP formúlan virkar þarna hjá þér með Data--> Validation--> list of items (drop down menu) :happy , en eins og þú ert með þetta
uppsett þá þarf að fynna verð fyrir hvern hlut fyrir sig sem svo plúsast, en í raun þyrfti að fara td.
A2 og B1 og sækir verðið 7.000 sem er í dálki B2
eða A3 og D1 og sækir verðið 2.000 sem er í dálki D3
Setti töflu dæmi í sheet 3

Þetta var kanski ekki alveg auðskyljanlegt hjá mér í fyrsta pósti hehe :) en vona
að ég hafi náð að skíra betur af hverju ég er að leitast eftir.

Re: Vantar Google sheets snilling

Sent: Mán 24. Okt 2016 14:21
af Klemmi
Komið :)

Re: Vantar Google sheets snilling

Sent: Mán 24. Okt 2016 14:26
af playman
Klemmi skrifaði:Komið :)
Mér sýnist það bara, djöfulsins snillingur ertu og kærar þakkir fyrir þetta. :D