Síða 1 af 1
Vesen með logitech g500s mús
Sent: Sun 09. Okt 2016 15:06
af einarn
Er í dálitlum vandræðum með 2 1/2 árs Logitech g500s mús. Hún er byrjuð að taka upp á því að double clicka á einu clikki, eins og smellidæmið sé orðið hyper viðkvæmt. Þekkir einhver þetta? er að vona að það sé eitthvað stillingaratriði sem er að fara framhjá mér. Eða er kominn tími til að kaupa nýja

Re: Vesen með logitech g500s mús
Sent: Sun 09. Okt 2016 19:20
af jonsig
Getur reynt að skipa um omron -microswitch´inn í henni. Alls ekki vandamál ef þú ert laginn með lóðboltann.
Getur pantað hann á ebay / eða keypt hann á 30x verði í Miðbæjarradíó þeir panta hann frá farnell.
Re: Vesen með logitech g500s mús
Sent: Sun 09. Okt 2016 20:21
af einarn
jonsig skrifaði:Getur reynt að skipa um omron -microswitch´inn í henni. Alls ekki vandamál ef þú ert laginn með lóðboltann.
Getur pantað hann á ebay / eða keypt hann á 30x verði í Miðbæjarradíó þeir panta hann frá farnell.
Kanski prófa ef ég kaupi aðra, er ekki laginn við svona viðgerðir..
Re: Vesen með logitech g500s mús
Sent: Sun 09. Okt 2016 20:32
af Black
í sumum tilfellum er hægt að laga þetta ánþess að lóða.Ég lagaði eina deathadder mús um daginn með því að beygja fjaðrablaðið inní rofanum. og hreinsa hann að innan
5s video
https://www.youtube.com/watch?v=D3fepD-Ffws
Re: Vesen með logitech g500s mús
Sent: Sun 09. Okt 2016 21:29
af jonsig
einarn skrifaði:jonsig skrifaði:Getur reynt að skipa um omron -microswitch´inn í henni. Alls ekki vandamál ef þú ert laginn með lóðboltann.
Getur pantað hann á ebay / eða keypt hann á 30x verði í Miðbæjarradíó þeir panta hann frá farnell.
Kanski prófa ef ég kaupi aðra, er ekki laginn við svona viðgerðir..
láta vaða , maður lærir ekki nema með mistökum.
Re: Vesen með logitech g500s mús
Sent: Sun 09. Okt 2016 21:32
af einarn
Grunar að þetta sé bara uppsöfnuð drulla. Ætla að gera tilraun með að blása þrýstilofti innum raufarnar, ef það virkar ekki þá er ég að hugsa um að reyna opna hana og reyna hreinsa. Takk fyrir ábendingarnar

Re: Vesen með logitech g500s mús
Sent: Sun 09. Okt 2016 21:57
af Black
einarn skrifaði:Grunar að þetta sé bara uppsöfnuð drulla. Ætla að gera tilraun með að blása þrýstilofti innum raufarnar, ef það virkar ekki þá er ég að hugsa um að reyna opna hana og reyna hreinsa. Takk fyrir ábendingarnar

Mæli með að taka hárþurrku og hita sleðana undir henni áður en þú tekur þá af.
Þá verður límið lausara og þá geturu notað sleðana aftur.