Síða 1 af 3

NOVA selt til USA

Sent: Fös 07. Okt 2016 14:33
af GuðjónR
Bjöggi Thor búinn að selja, það verður fróðlegt að sjá hvernig gjaldskráin kemur til með að breytast.
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... yrirtaeki/

Re: NOVA selt til USA

Sent: Fös 07. Okt 2016 19:05
af emmi
Ef hún breytist þá verður það væntanlega til lækkunar vona ég því það er mun ódýrara að vera með GSM / 4G net hjá 365.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Fös 07. Okt 2016 19:14
af GuðjónR
emmi skrifaði:Ef hún breytist þá verður það væntanlega til lækkunar vona ég því það er mun ódýrara að vera með GSM / 4G net hjá 365.
Vonandi, en mig grunar nú að Björgólfur hafi ekki selt nema fá top dollar fyrir og þá þarf kaninn að hámarka arðinn.
Svo mér finnst gjaldskrá hækkun líklegri því miður.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Fös 07. Okt 2016 20:05
af Jón Ragnar
GuðjónR skrifaði:
emmi skrifaði:Ef hún breytist þá verður það væntanlega til lækkunar vona ég því það er mun ódýrara að vera með GSM / 4G net hjá 365.
Vonandi, en mig grunar nú að Björgólfur hafi ekki selt nema fá top dollar fyrir og þá þarf kaninn að hámarka arðinn.
Svo mér finnst gjaldskrá hækkun líklegri því miður.
Nei veistu, það er vont buisness model.

Nova hafa alltaf verið in in the long run. Þetta mun ekki hafa áhrif... strax

Re: NOVA selt til USA

Sent: Fös 07. Okt 2016 20:45
af vesley
Jón Ragnar skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
emmi skrifaði:Ef hún breytist þá verður það væntanlega til lækkunar vona ég því það er mun ódýrara að vera með GSM / 4G net hjá 365.
Vonandi, en mig grunar nú að Björgólfur hafi ekki selt nema fá top dollar fyrir og þá þarf kaninn að hámarka arðinn.
Svo mér finnst gjaldskrá hækkun líklegri því miður.
Nei veistu, það er vont buisness model.

Nova hafa alltaf verið in in the long run. Þetta mun ekki hafa áhrif... strax

Efast að þetta hafi neikvæð áhrif. Þeir auðvitað leitast eftir gróða í þessu og er þessi aðili jafnvel fjársterkari en Björgjólfur og leitast kannski eftir stærri markaðshlutdeild.

Meiri hagnaður hjá fyrirtækjum merkir ekki alltaf hærra verð til kúnnans.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Fös 07. Okt 2016 22:00
af Xovius
Ég held að samkeppnin á fjarskiptamarkaðinum sé það mikil í augablikinu að það sé lítið hægt að hækka án þess að fara að missa viðskipti.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Fös 07. Okt 2016 23:47
af chaplin
GuðjónR skrifaði: Vonandi, en mig grunar nú að Björgólfur hafi ekki selt nema fá top dollar fyrir og þá þarf kaninn að hámarka arðinn.
Svo mér finnst gjaldskrá hækkun líklegri því miður.
Ætli upplýsingar um notendur séu ekki verðmætari en gjaldskráin og þar sem mikil samkeppni er á markaðinum með nákvæmlega sömu "vöruna" þykir mér ólíklegt að verðið hækki.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 08. Okt 2016 08:41
af worghal
Fengu þeir bara nova eða fengu þeir novator og með því nova?

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 08. Okt 2016 10:47
af GuðjónR
Xovius skrifaði:Ég held að samkeppnin á fjarskiptamarkaðinum sé það mikil í augablikinu að það sé lítið hægt að hækka án þess að fara að missa viðskipti.
Já þú meinar mikil samkepnni eins og á bensínmarkaði, bankaþjónustu, trygginum, bygginga og matvörumarkaði svo eitthvað sé nefnt.
Gegnum tíðina þá hefur nú oft verið þannig að ef einn hækkar þá hækka hinir á sama tíma eða mjög fljótlega, sama með lækkanir.
En það kemur í ljós hvað gerist.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 08. Okt 2016 15:35
af halldorjonz
worghal skrifaði:Fengu þeir bara nova eða fengu þeir novator og með því nova?
Novator seldi NOVA úr fyrirtækinu. s.s. bara nova ahm

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 08. Okt 2016 23:30
af appel
..

Re: NOVA selt til USA

Sent: Þri 11. Okt 2016 12:28
af SIKk
appel skrifaði:..
Tveir góðir punktar :happy
...Til að leggja orð í belg þá held ég að áhrifin verði amk ekki neikvæð ..

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 26. Nóv 2016 01:50
af Stuffz
best að færa sig

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 26. Nóv 2016 11:26
af Squinchy
Kannski smá off-topic en eftir 5.nov var 3/4G hjá nova nánast dautt. ætli voda sé ekki næsta stop hjá mér

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 26. Nóv 2016 12:20
af hkr
Tja, hagnaður Nova jókst um 44% á síðasta ári og skilaði um 1 milljarði í arð.

Sé voðalitla ástæðu fyrir því að nýjir eigendur munu eiga eitthvað við verðskránna miðað við þessar tölur.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 26. Nóv 2016 12:34
af GuðjónR
hkr skrifaði:Tja, hagnaður Nova jókst um 44% á síðasta ári og skilaði um 1 milljarði í arð.

Sé voðalitla ástæðu fyrir því að nýjir eigendur munu eiga eitthvað við verðskránna miðað við þessar tölur.
Ef þeir borguðu 16 milljarða og fá 1 til baka á ári í hagnað þá er það 6.25% arður af fjárfestingunni, veit ekki hvort það þykir mikið eða lítið.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 26. Nóv 2016 19:37
af Televisionary
Hverju skiluðu þeir síðustu 5 ár á undan? En það verður gaman að fylgjast með framhaldinu. Ég hef aldrei verið í föstum viðskiptum við þá en alltaf fengið toppþjónustu. Greiði aftur á móti 25-35 þúsund á mánuði til Vodafone og get ekki sagt að ég sé himinlifandi með þjónustuna.

Hef verið að hitta fullt af litlum fyrirtækjum síðasta hálfa árið (starfsmannfjöldi 2-20 c.a.) og allir segja það sama þjónustan er vond hjá Vodafone aldrei hægt að leiðrétta neitt sem miður fer og þeir hafa allir farið til Nova. Til langs tíma þá telur þetta og ef að Nova heldur vel á spilunum ættu þeir að geta haft meira af viðskiptum frá bæði Vodafone og Símanum.

*Leiðrétt eftir ábendingu frá Guðjóni
GuðjónR skrifaði:
hkr skrifaði:Tja, hagnaður Nova jókst um 44% á síðasta ári og skilaði um 1 milljarði í arð.

Sé voðalitla ástæðu fyrir því að nýjir eigendur munu eiga eitthvað við verðskránna miðað við þessar tölur.
Ef þeir borguðu 16 milljarða og fá 1 til baka á ári í hagnað þá er það 6.25% arður af fjárfestingunni, veit ekki hvort það þykir mikið eða lítið.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 26. Nóv 2016 21:05
af GuðjónR
Televisionary skrifaði:Ég hef aldrei verið í föstum viðskiptum við þá en alltaf fengið toppþjónustu.
Sammála, einstaklega almenninlegt starfsfólk, er með 3 farsímanúmer og borga 333. kr. á mánuði per númer og inneignin hækkar og hækkar.
Televisionary skrifaði:Hef verið að hitta fullt af litlum fyrirtækjum síðasta hálfa árið (starfsmannfjöldi 2-20 c.a.) og allir segja það sama þjónustan er vond hjá Vodafone aldrei hægt að leiðrétta neitt sem miður fer og þeir hafa allir farið til Vodafone.
??

Re: NOVA selt til USA

Sent: Lau 26. Nóv 2016 22:44
af Televisionary
Nova vildi ég sagt hafa. Var að skrifa þetta á hlaupum hérna, leiðrétti.
GuðjónR skrifaði:
Televisionary skrifaði:Ég hef aldrei verið í föstum viðskiptum við þá en alltaf fengið toppþjónustu.
Sammála, einstaklega almenninlegt starfsfólk, er með 3 farsímanúmer og borga 333. kr. á mánuði per númer og inneignin hækkar og hækkar.
Televisionary skrifaði:Hef verið að hitta fullt af litlum fyrirtækjum síðasta hálfa árið (starfsmannfjöldi 2-20 c.a.) og allir segja það sama þjónustan er vond hjá Vodafone aldrei hægt að leiðrétta neitt sem miður fer og þeir hafa allir farið til Vodafone.
??

Re: NOVA selt til USA

Sent: Sun 27. Nóv 2016 00:26
af Stuffz
Önnur fræg Íslensk fyrirtæki sem hafa verið keypt/flutt
DECODE/Íslensk Erfðagreining
ÖSSUR
FRISK/Friðrek Skúlason, (Vírusvarnir)
QUIZUP/PLAIN VANILLA
..

CCP, Marel næst?

Fær mann til að velta fyrir sér hver önnur eignarhöld á starfsemi/þjónustu hérlendis gætu verið á leið vestur um haf á næstu árum, ætti samt ekki að vera í neinum að neðangreindum flokkum

Geirar þar sem GATS skuldbindingar um markaðsaðgang erlendra aðila eru ekki til staðar

- Lyfja- og tannlæknaþjónusta
- Þjónusta sem ljósmæður, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfar og sjúkraflutningamenn veita
- Þjónusta tengd fiskveiðum
- Þjónusta tengd námuvinnslu
- Þjónusta tengd orkudreifingu
- Rannsóknir og öryggi
- PÓSTÞJÓNUSTA
- HRAÐFLUTN.ÞJÓNUSTA
- Gerð kvikmynda og myndbanda og dreifingarþjónusta
- Kvikmyndasýningar
- Útvarps- og sjónvarpsþjónusta
- Útsendingarþjónusta vegna útvarps og sjónvarps
- Hljóðupptökur
- MENNTUNARÞJÓNUSTA Á ÖLLUM STIGUM
- SPÍTALAÞJÓNUSTA
- ÖNNUR ÞJÓNUSTA TENGD HEILBRIGÐI MANNA
- FÉLAGSLEG ÞJÓNUSTA
- Viðhald og viðgerðir skipa
- Stuðningsþjónusta tengd flutningum á sjó
- ALLIR FLUTNINGAR Á SKIPGENGUM VATNALEIÐUM:
- ÖLL FLUTNINGAÞJÓNUSTA Í LOFTI (en ekki viðhald og viðgerðir flugvéla)
- GEIMFLUTNINGAR
- ALLIR FLUTNINGAR MEÐ JÁRNBRAUTUM
- ALLIR FLUTNINGUR UM LEIÐSLUR

https://www.utanrikisraduneyti.is/media ... ingnum.pdf

Re: NOVA selt til USA

Sent: Sun 27. Nóv 2016 16:38
af vesley
Er ekki Quizup/Plain Vanilla í söluferli vegna gjaldþrots ?

CCP er núþegar að einhverjum hluta í eigu erlendra fjárfestingaraðila, en efast ég að þeir séu að færa sig út þar sem þeir eru nú að fara að færa höfuðstöðvarnar í nýtt hús hér í Reykjavík.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Mán 28. Nóv 2016 12:56
af Stuffz
vesley skrifaði:Er ekki Quizup/Plain Vanilla í söluferli vegna gjaldþrots ?

CCP er núþegar að einhverjum hluta í eigu erlendra fjárfestingaraðila, en efast ég að þeir séu að færa sig út þar sem þeir eru nú að fara að færa höfuðstöðvarnar í nýtt hús hér í Reykjavík.
Þeir fengu eitthver vilyrði frá erlendu fyrirtæki um samvinnuverkefni sem þeir svo stóluðu (um of á), erlendi aðilinn kippti svo að sér hendinn óvænt í haust og þeir sögðu öllu íslensku starfsmönnunum upp í kjölfarið.

Bónus
Væri gaman að hafa snapshot af spurningabankanum til sögulegs samanburðar við seinni tíma eigenda áherslur sérstaklega allt er varðar t.d sögu landa sem tengist alþjóðapólitík, tilhneygingin er að sumt vill gleymast og annað skerpast milli eigenda.

Re: NOVA selt til USA

Sent: Mán 28. Nóv 2016 13:21
af GuðjónR
vesley skrifaði:Er ekki Quizup/Plain Vanilla í söluferli vegna gjaldþrots ?
Talandi um það, ég man þegar ég las þessa frétt á sínum tíma að ég hugsaði; TAKE THE MONEY AND RUN !!!
visir.is skrifaði:Hluthafar íslenska tölvuleikjaframleiðandans Plain Vanilla höfnuðu nýverið tólf milljarða yfirtökutilboði bandaríska tölvuleikjafyrirtækisins Zynga Games. Zynga hafði tvívegis gert yfirtökutilboð í íslenska leikjaframleiðandann. Fyrra tilboðið hljóðaði upp á hundrað milljónir dala, um tólf milljarða króna, og seinna var umtalsvert hærra.
Og núna er þetta búið, þeir hefðu betur hamrað járnið meðan það var heitt, tekið gróðan og lifað góðu lífi það sem eftir er, en nei tólfþúsundmilljónir voru ekki nóg. :face
http://www.visir.is/hofnudu-tolf-millja ... 3131219713

Re: NOVA selt til USA

Sent: Mán 28. Nóv 2016 22:04

Kannski ef eitthverjir gaurar vilja ekki selja eign sem eitthver Hákarla-blokkin þarna úti vill kaupa þá vill það verða að núbbarnir leiðast útí offjárfesta í eitthverju "drauma" verkefni og svo er fjárhags fótunum kippt undan þeim á kritískum tímapunkti.

“We placed our bets on the extensive collaboration with the television giant NBC. One could say that we placed too many eggs in the NBC basket. We have spent a lot of time and energy on developing the show. When I received the message from NBC that they were canceling the production of the show, it became clear that the conditions for further operation, without substantial changes, were gone,” Þorsteinn stated.

NBC segir m.a. hérna Zynga has struggled to follow up on its early hit games
Zynga’s fourth quarter financial results saw an overall decline in audience due to the lack of any significant new releases.

Stick to what you are good at, dont be a sucker :P

og hvað hét bitinn sem stóð í CCP.. World of Darkness?

Líka áhugavert, NBC droppaði Quiz-Up í lok ágúst
Svo í beinu framhaldi af því sýndu þeir næst Íslensku seríunni Réttur áhuga, segjast ætla kalla hana Infamous

Kannski svo kannski viðeigandi að Infamous nafnið var hafnað á seríu 2012 sem að lokum var Kaldhæðnislega kölluð DECEPTION (Blekking) lol

Re: NOVA selt til USA

Sent: Þri 29. Nóv 2016 00:31
af urban
GuðjónR skrifaði:
hkr skrifaði:Tja, hagnaður Nova jókst um 44% á síðasta ári og skilaði um 1 milljarði í arð.

Sé voðalitla ástæðu fyrir því að nýjir eigendur munu eiga eitthvað við verðskránna miðað við þessar tölur.
Ef þeir borguðu 16 milljarða og fá 1 til baka á ári í hagnað þá er það 6.25% arður af fjárfestingunni, veit ekki hvort það þykir mikið eða lítið.
hugsa að þetta sé nú ekki alveg svona einfalt.

Þar sem að það er líka verið að kaupa þig og aðra notendur og þið eruð alveg óhemju mikils virði.

Ótrúlegar upphæðir sem að fyrirtæki eru tilbúin í að borga fyrir gagnagrunna annars vegar og notendagrunna hins vegar, það sést á sölum á stórum samskiptamiðlum í gegnum tíðina.