Síða 1 af 1

[Seldur] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Mán 26. Sep 2016 22:58
af Njall_L
Hef til sölu Samsung Galaxy S7 Edge Svartan 32GB snjallsíma ásamt aukahlutum
Síminn er keyptur í Nova þann 29.4.2016 og er í tveggja ára ábyrgð. Síminn hefur aldrei farið í vatn en er vatns og rykvarinn. Hann hefur alltaf verið í hulstri en datt einu sinni og skildi það eftir sig skrámu á neðra vinstra horni, sjá myndir. Að öðru leyti er síminn í fullkomnu standi.

Með símanum fylgir:
Kassinn og allir aukahlutir, heyrnatól eru ennþá innsigluð og hafa aldrei verið notuð
Gear4 Höggvarið hulstur að verðmæti 3.990kr
Original Samsung hulstur að verðmæti 4.990kr
32GB Sililcon Power Superior Pro MicroSD minniskort að verðmæti 9.990kr

Síminn er með tryggingu hjá Viss sem gildir til 29.4.2017. Tryggingin dekkar t.d. brotinn skjá, vatnstjón eða þjófnað. Nýr eigandi fær afrit af vátryggingarskírteini með símanum.

Nýr myndi þessi pakki kosta tæplega 160.000kr út úr búð.
VERÐ: 95.000kr en skoða öll tilboð

Nánar um símann
http://www.gsmarena.com/samsung_galaxy_s7_edge-7945.php
Framhlið_slökkt.JPG
Framhlið_slökkt.JPG (926.82 KiB) Skoðað 1218 sinnum
Framhlið_kveikt.JPG
Framhlið_kveikt.JPG (1.06 MiB) Skoðað 1218 sinnum
Bakhlið.JPG
Bakhlið.JPG (1.12 MiB) Skoðað 1218 sinnum
Skemmd.JPG
Skemmd.JPG (611.15 KiB) Skoðað 1218 sinnum
Aukahlutir.jpg
Aukahlutir.jpg (225.32 KiB) Skoðað 1218 sinnum

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Þri 27. Sep 2016 21:14
af Njall_L
Upp, skoða öll tilboð en myndi vilja selja þetta allt saman í pakka

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Fim 29. Sep 2016 09:00
af Njall_L
Upp

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Fös 30. Sep 2016 21:48
af HalistaX
Ohhh, mig langar í þennann... Flott verð á flottum síma!

Ef S7 Edge er eitthvað eins og S6 Edge+ þá er þetta klárt mál geggjað verð á geggjuðum síma!

Finnst bara að þeir hefðu mátt halda sig við 5,7" skjáinn sem er á S6 Edge+, það er svo þæginlegt að vera með svona stórann skjá!

Finnst iPhone'inn hennar systur minnar vera písl miðað við minn og eiginlega meika ég ekki að halda á honum, mér finnst ég þurfa eitthvað stærra í hendurnar. iPhone'inn hennar systur minnar minnir mig bara á iPod Shuffle miðað við minn S6 Edge+...

Þetta er svona eins og ef maður ætlar að heilsa einhverjum en fer full hratt, full lágt í áttina að honum og hendin grípur í eitthvað í klofinu á honum. Þá er ómögulegt að pissa á eftir, maður er svo óánægður með stærðina....

En já, gangi þér vel með söluna! Þessi á eftir að þjóta út! Ég sé ekki hvernig hann getur annað á þessu verði!

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Fös 30. Sep 2016 22:41
af chaplin
HalistaX skrifaði: Þetta er svona eins og ef maður ætlar að heilsa einhverjum en fer full hratt, full lágt í áttina að honum og hendin grípur í eitthvað í klofinu á honum. Þá er ómögulegt að pissa á eftir, maður er svo óánægður með stærðina....
Mynd

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Fös 30. Sep 2016 22:58
af HalistaX
chaplin skrifaði:
HalistaX skrifaði: Þetta er svona eins og ef maður ætlar að heilsa einhverjum en fer full hratt, full lágt í áttina að honum og hendin grípur í eitthvað í klofinu á honum. Þá er ómögulegt að pissa á eftir, maður er svo óánægður með stærðina....
[img]http://p.fod4.com/p/media/5c597eb60b/uF ... 20Bale.gif[/img.]
Brandararnir mínir eru voða mikið svona; A hit and a miss...

En það er bara einfaldlega það sem gerir þá betri...

Þetta er samt alveg satt... Þegar maður fær að halda á einhverju aðeins stærra en maður er vanur af samskonar hlut, þá finnst manni sinn eigin hlutur ekki lifa upp til væntingana.

Þetta iPhone kríli vs. Edge+'inn minn er alveg eins og skaufinn á mér vs. skaufinn á Maciek vini mínum, augljós stærðarmunur og er allt sem ég geri með mínum skaufa í framtíðinni ruined forever því hann er svo lítill í samanburði við það sem maður hefur óvart gripið í.

Sama má segja með kraftmikla bíla vs. kraftlilta bíla. Ég á aldrei eftir að fá mér 100höhö bíl aftur eftir að ég fékk mér 200höhö Superb. 100höhö bílar eru bara svo pointless í samanburði við 200....

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Fös 30. Sep 2016 23:02
af Njall_L
HalistaX skrifaði: Þetta er svona eins og ef maður ætlar að heilsa einhverjum en fer full hratt, full lágt í áttina að honum og hendin grípur í eitthvað í klofinu á honum. Þá er ómögulegt að pissa á eftir, maður er svo óánægður með stærðina....
Hahaha þetta er gull. En já, síminn er virkilega góður og tel ég þetta vera sanngjarnt verð fyrir pakkann. Ótrúlegt að hann sé ekki farinn

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Fös 30. Sep 2016 23:27
af halldorjonz
Gef þér klárlega hit á þennan brandara, held ég hhafi ekki hlegið svona mikið á vaktini síðan 2014 hahaha

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Fös 30. Sep 2016 23:46
af chaplin
HalistaX skrifaði: Brandararnir mínir eru voða mikið svona; A hit and a miss...
Þú veist að þessi fór bara beint í mark og í gegnum netið haha, líklegast sú allra besta viðlíking sem ég hef nokkurn tíman heyrt.. :lol:

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Sun 02. Okt 2016 14:42
af Njall_L
Upp

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Þri 11. Okt 2016 00:11
af Nordal95
Afhverju ertu að seljann?

Re: [TS] Samsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Þri 11. Okt 2016 19:15
af Njall_L
Nordal95 skrifaði:Afhverju ertu að seljann?
Síminn er seldur, en ég var að skipta yfir í iPhone

Re: [Seldur] SSamsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Mið 12. Okt 2016 03:05
af Bartasi
Langar að minna á að það er verið að Inkalla Samsung Galaxy S7, Vegna Eldhættu.
2.5 milljón eintök inkölluð bara í september.

Re: [Seldur] SSamsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Mið 12. Okt 2016 03:37
af MarsVolta
Bartasi skrifaði:Langar að minna á að það er verið að Inkalla Samsung Galaxy S7, Vegna Eldhættu.
2.5 milljón eintök inkölluð bara í september.
:no :face Samsung Galaxy S7 Edge Samsung Galaxy Note 7

Re: [Seldur] SSamsung Galaxy S7 Edge ásamt aukahlutum

Sent: Fös 14. Okt 2016 12:18
af Bartasi
MarsVolta skrifaði:
Bartasi skrifaði:Langar að minna á að það er verið að Inkalla Samsung Galaxy S7, Vegna Eldhættu.
2.5 milljón eintök inkölluð bara í september.
:no :face Samsung Galaxy S7 Edge Samsung Galaxy Note 7
Ahhh... ](*,) heyrði bara i utvarps frettunum með galaxy 7