Síða 1 af 1
Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 07:53
af zetor
Sælir Vaktarar!
Er að leita að nýjum saman settum leikjaturn fyrir budget 160þús. Frá hvaða íslenskri tölvuverslun er best að versla svona
turn? Ætla að spila deus x og gta 5.
Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 08:14
af I-JohnMatrix-I
Það er fullt af flottum samsettum tölvum inná þínu budget hjá Tölvutækni.
http://tolvutaekni.is/index.php?cPath=23_96
Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 08:16
af Klemmi
Viltu að stýrikerfi sé innifalið í þessari tölu eða ekki?
Annars lítur þessi mjög vel út, sprækur örgjörvi og fínasta skjákort á góðu verði:
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=3232
Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 08:41
af I-JohnMatrix-I
Myndi svo athuga hvort þeir gætu ekki skipt út aflgjafanum(mjög mikilvægt að vera með góðan og öruggan aflgjafa), vaktarar hafa almennt ekki verið ánægðir með þessa energon aflgjafa.
Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 08:44
af Hnykill
Skrítið að þessar tölvuverslanir skuli setja 1x minniskubb í móðurborðin. t.d 1x 8Gb í staðin fyrir 2x 4Gb. því þessir örgjörvar og borð keyra best á Dual DDR uppsetningu.
Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 10:22
af vesley
Hnykill skrifaði:Skrítið að þessar tölvuverslanir skuli setja 1x minniskubb í móðurborðin. t.d 1x 8Gb í staðin fyrir 2x 4Gb. því þessir örgjörvar og borð keyra best á Dual DDR uppsetningu.
Performance munurinn er svo rosalega lítill, sett er frekar stakan kubb svo að fólk eigi auðveldara með að uppfæra minnið seinna.
Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 12:15
af Klemmi
Hnykill skrifaði:Skrítið að þessar tölvuverslanir skuli setja 1x minniskubb í móðurborðin. t.d 1x 8Gb í staðin fyrir 2x 4Gb. því þessir örgjörvar og borð keyra best á Dual DDR uppsetningu.
Tek undir með Vesley, munurinn á afköstum á single channel og dual channel er mælanlegur en ekki sjáanlegur, betra að eiga lausa minnisrauf fyrir uppfærslur seinna meir
Auðvitað getur fólk farið út í dýrari borð með 4x minnisraufum, en spurning hvort að það sé þess virði í budget leikjatölvu.
Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 18:07
af zetor
takk fyrir ábendingarnar, mun heimsækja þá í Tölvutækni

Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 18:38
af Xovius
Um að gera líka að biðja þá um að breyta því sem hentar ekki 100%. Þessir turnar eru ekkert endilega algjörlega fyrirfram ákveðnir. Myndi tildæmis pottþétt fá þá til að nota annann aflgjafa í þessa tölvutæknivél

Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fim 22. Sep 2016 22:35
af Bartasi
Sjalfur versla eg allt við
http://www.kisildalur.is
Flott dót hja þeim.
Svo geturu lika sagt við þa 160k budget. Og þeir galldra oft margt gott utur því

Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Fös 23. Sep 2016 14:51
af Alfa
Maður kaupir ekki gaming vél í dag með 8gb minni, mig svíður í augun líka að sjá svona drasl aflgjafa svo ég er sammála mönnum hér fyrir ofan.
Hér er dæmi um vél sem þú gætir sett saman sjálfur fyrir sama pening með helmingi stærri disk og minni, sjákortið er pínu spurningarmerki en samt drulluöflugt ennþá og á lækkuðu verði. (e'ða kaupa ATI 480 eða 1060 6gb annarstaðar á ca 50 þús) og Bæta við betri CPU viftu kannski fyrir 4-5 þús, t.d. bara TX3 á 3750 væri meira en nóg og mun betri en retail.
Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Lau 24. Sep 2016 07:25
af zetor
takk fyrir ráðin! ég keypti þennann
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=3226
og lét sétja annann aflgjafa í hana.
Ég verð líka að hrósa tölvutækni fyrir góða þjónustu, þeir voru sveigjanlegir og veittu góð ráð.
Re: Hvaða leikjaturn? Budget 160þús
Sent: Lau 24. Sep 2016 10:06
af worghal
Tölvutækni eru mínir go-to gæjar þegar ég þarf að versla eitthvað og ég bendi öllum mínum vinum á þá líka.
þeir hafa líka staðið sig eins og hetjur í ábyrgðamálum!
