Síða 1 af 1

27" skjár 144hz á 59.900. hefur einhver reynslu af þessum

Sent: Mán 19. Sep 2016 12:10
af arnaros
http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala ... 2770PF.ecp
Er að skoða 27" eða stærri skjái rakst á þennan á Elko en veit ekkert um þetta merki er að spá hvort einhver er þegar með svona skjá, og hvernig hann reynist, eða hvað eru bestu 27 tommu skjáir sem hægt er að fá. takk fyrir.

Re: 27" skjár 144hz á 59.900. hefur einhver reynslu af þessum

Sent: Mán 19. Sep 2016 12:45
af Urri
Hef ekki persónulega reynslu af AOC en einn sem ég spjalla mikið við á netinu hefur verið að reyna að fá mig til að kaupa mér AOC skjái þegar ég hef verið að kaupa skjái því að honum finnst þeir góðir.

En burt séð frá merkinu myndi ég halda að 27" 144Hz 1ms gtg er fínt en það stendur ekki hvort það sé hægt að hækka lækka snúa tilta og svoleiðis... myndi nú bara fara og skoða gripinn og eg þér lýst vel á þennan að kaupa hann.

Verðið finnst mér ásættanlegt en ekkert svakalega lágt en heldur ekki dýrt...

bara það sem mér fynnst.

Re: 27" skjár 144hz á 59.900. hefur einhver reynslu af þessum

Sent: Mán 19. Sep 2016 16:56
af htmlrulezd000d
persónulega myndi ég bara kaupa hann ef ég væri með AMD skjákort til að nýta freesync tæknina sem þessi skjár er með.

Re: 27" skjár 144hz á 59.900. hefur einhver reynslu af þessum

Sent: Mán 19. Sep 2016 17:13
af EOS
Ég er með þennan og er mjög sáttur með hann :)

Re: 27" skjár 144hz á 59.900. hefur einhver reynslu af þessum

Sent: Mán 19. Sep 2016 19:17
af Alfa
Í fyrsta lagi er AOC og Philips nánast sama fyrirtækið, og share-a oft panel-a í skjái, svo ekki láta AOC sem slíkt vera fráhrindandi.

Persónulega hef ég séð þennan 27" í action og ég varð fyrir smá vonbrigðum, þó aðarlega er það því að kenna að 1080p í 27" skjá er of léleg upplausn fyrir svona stóran flöt. 60 þús fyrir hann er þó fínt verð sérstaklega þar sem hann hefur freesync en það nýtist þér bara ef þú átt AMD skjákort. Þetta er TN panel svo með tilheyrandi lélegum view angles en overall sem gaming monitor fínn fyrir peninginn.

Fyrir 10 þús meira geturðu t.d. fengið 144hz Asus skjá sem er betri að mínu mati en reyndar ekki með Freesync (Computer.is)

Re: 27" skjár 144hz á 59.900. hefur einhver reynslu af þessum

Sent: Mán 19. Sep 2016 21:32
af stefankarl
Alfa skrifaði:Í fyrsta lagi er AOC og Philips nánast sama fyrirtækið, og share-a oft panel-a í skjái, svo ekki láta AOC sem slíkt vera fráhrindandi.

Persónulega hef ég séð þennan 27" í action og ég varð fyrir smá vonbrigðum, þó aðarlega er það því að kenna að 1080p í 27" skjá er of léleg upplausn fyrir svona stóran flöt. 60 þús fyrir hann er þó fínt verð sérstaklega þar sem hann hefur freesync en það nýtist þér bara ef þú átt AMD skjákort. Þetta er TN panel svo með tilheyrandi lélegum view angles en overall sem gaming monitor fínn fyrir peninginn.

Fyrir 10 þús meira geturðu t.d. fengið 144hz Asus skjá sem er betri að mínu mati en reyndar ekki með Freesync (Computer.is)
Sammála því sem ég feitletraði í textanum. Ég er með 27" BenQ 144hz en til að fixa upplausnina nota ég Dynamic Super Resolution hjá Nvidia eða hækka Resolution Scale í leikjunum t.d. Battlefront. Var með AMD kort og þeir eru með Virtual Super Reso​lution en ég gat ekki verið með 144hz í 2560x1440 bara 100hz svo ég seldi kortið, en hjá Nvidia er hægt að vera með 144hz í 2560x1440.

Re: 27" skjár 144hz á 59.900. hefur einhver reynslu af þessum

Sent: Þri 20. Sep 2016 09:27
af arnaros
Takk allir fyrir góð infó var einnig að skoða þennan sem er í allt öðrum price en huge, en fannst hann samt soldið dökkur hefur einhver reynslu af þessum skjá, https://www.tolvutek.is/vara/benq-xr350 ... ar-svartur

Re: 27" skjár 144hz á 59.900. hefur einhver reynslu af þessum

Sent: Þri 20. Sep 2016 09:30
af HalistaX
Já, mér skilst að user OddurBoga hafi verið að fá sér akkúrat þennann skjá! Sjá hér

Endilega skjóttu á hann skeyti og svalaðu forvitni þinni :D