Síða 1 af 1
Vélbúnaður fyrir RÚV
Sent: Fim 18. Ágú 2016 15:11
af Dúlli
Hvað mynduð þið segja að maður þyrfti góða tölvu til að keyra þessa drasl vefsíðu ?
Re: Vélbúnaður fyrir RÚV
Sent: Fim 18. Ágú 2016 15:32
af Njall_L
Til að birta textagreinar eða til að horfa á sarpinn og slíkt?
Re: Vélbúnaður fyrir RÚV
Sent: Fim 18. Ágú 2016 16:03
af Dúlli
Njall_L skrifaði:Til að birta textagreinar eða til að horfa á sarpinn og slíkt?
Til að horfa beinu útsendinguna sem er inná rúv.is.
Er að lenta í því að straumurinn frjósi eða hökti.
Re: Vélbúnaður fyrir RÚV
Sent: Fim 18. Ágú 2016 16:10
af Njall_L
Dúlli skrifaði:Njall_L skrifaði:Til að birta textagreinar eða til að horfa á sarpinn og slíkt?
Til að horfa beinu útsendinguna sem er inná rúv.is.
Er að lenta í því að straumurinn frjósi eða hökti.
Sit núna í vél með i3-4130, 8GB RAM, 500GB HDD disk og W8.1. Er að horfa á ÓL í beinni í Chrome án nokkurra vandræða. Einnig er ég með 2 Word skjöl opinn og 16 glugga opna í Chrome í heildinni. Þetta er nú ekki öflug vél en hún virðist höndla þetta fínt
Re: Vélbúnaður fyrir RÚV
Sent: Fim 18. Ágú 2016 16:14
af Dúlli
Já maður myndi búast við það, tölvan sem er með mesta vesenið er með dual core örgjörva og 4 Gb í minni en síðan frís stöðugt við RÚV strauminn, en youtube virkar fíntví 720p og 1080p.
Re: Vélbúnaður fyrir RÚV
Sent: Fim 18. Ágú 2016 16:37
af Hizzman
mann gæti grunað að strauma-serverarnir eða þeirra tengingar hjá RUV væru ekki alveg að duga...
Re: Vélbúnaður fyrir RÚV
Sent: Fim 18. Ágú 2016 16:46
af Dúlli
Hizzman skrifaði:mann gæti grunað að strauma-serverarnir eða þeirra tengingar hjá RUV væru ekki alveg að duga...
Það er nefnilega það sem ég er farin að hugsa. Rugl að maður þurfi betri hardware en dual core og 4Gb ram með ljósleiðara.
Re: Vélbúnaður fyrir RÚV
Sent: Fim 18. Ágú 2016 16:49
af russi
Re: Vélbúnaður fyrir RÚV
Sent: Fim 18. Ágú 2016 16:58
af hfwf
Rúv er auðvita með sitt í Flash, youtube komið algjörlega í html5 held ég. mín 9 ára IBM thinkpad með 2gb minni, ssd disk, ofhitnar á rúvsíðunni

, svín virkar á youtube.