Síða 1 af 1
Gigabyte vs MSI
Sent: Fim 13. Jan 2005 17:48
af Róbert
hvoru skjákortinu mælið þið með ?
Gigabyte Nvidia Geforce FX 5700 Series
MSI FX 5700LE
kostir og gallar
móðurborð er Gigabyte GA-7N400 Pro2
kv.
Róbert
Sent: Fim 13. Jan 2005 18:31
af CendenZ
ekki fá þér LE útgáfu af neinu korti.
Sent: Fim 13. Jan 2005 20:31
af zaiLex
Hvað eru LE útgáfur?
Sent: Fim 13. Jan 2005 21:51
af hagur
Ég myndi giska að þær standi fyrir Lite edition eða Limited edition* eða eitthvað álíka ... þetta eru low-performance Budget kort.
* Ekki í sama skilningi og Grand Cherokee samt, þar sem Limited Edition þýðir í raun meiri búnaður

Sent: Fös 14. Jan 2005 00:47
af gnarr
það eru til tvær merkingar fyrir LE
Limited Quantity Edition - þar sem að það er búið til takmarkað magn af betri hlutum
og
Limited Features Edition - þar sem að hluturinn er búinn til í miklu magni, en hann er "minnkaður" til að gera hann ódýrari.
í tölvuheiminum stendur það fyrir seinni hlutinn í 99% tilvika.
Sent: Fös 14. Jan 2005 15:41
af Yank
Ekki bara fá þér nýtt 5700 yfir höfuð. Úrelt!!.
Kostar einhvern 15-16 þús skv. vaktin
Eyddu aðeins meiri pen og skoðaðu 9800 pro á 22 þús eða jafvel 6600 GT á ca 25. Svona mætti reyndar lengi halda áfram og enda í X800 XT PE eða 6800 Ultra

. En þú einn getur svarað hversu miklu þú vilt eyða í þetta.
Allavega 5700 sennilega meira en helmingi veikara en 6600 GT. Og 6600 GT keyrir flesta nýja leiki í fínni upplausn á meðan 5700 er að gera í sig.